Laugardagsæfingin næsta og Reykjavíkurmaraþonið

Á næskomandi laugardagsæfingu verður að öllum likindum þjálfaralaust en það kemur ekki að sök.  Við hittumst samt við Suðurbæjarlaugina klukkan níu og hlaupum þaðan, okkar vegalengdir hver á sínum hraða.

Sem fyrr segir þá styttist í Reykjavíkurmaraþonið.  Þó hlaupið sé vissulega aðalmálið þann dag er ekki minni tilhlökkun fyrir grillveislunni okkar um kvöldið.  Búið er að skipa grillnefnd sem nú er að störfum og fljótlega fáum við frekari fréttir af stöðu mála.  Takið kvöldið frá, það verður stuð 🙂

Það er aukaæfing í kvöld klukkan 18:00, rólegt 8-10 km. hlaup frá Kapla. Svo er krefjandi tempóæfing á morgun – bara gaman.

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Laugardagsæfingin næsta og Reykjavíkurmaraþonið

VIKA 31

Það var ágætis mæting á helgaræfinguna á laugardag.  Hópurinn hittist við Suðurbæjarlaug og þaðan var hlaupið út um allt, Álftanes, Arnarnes og víða.  Veðrið var eins og best verður á kosið, GLAMPANDI SÓL, hlýtt og örlítill andvari.

Sem fyrr þá er ritstjórn vefsíðunar afskaplega rólegur í tíðinni og birtist afskaplega lítið efni milli vikna.  Ef þið lummið á áhugaverðu efni eða ábendingum, endilega sendið póst 🙂

Fésbókarsíða hlaupahópsins sprellilifandi og öllum opin. Félagar eru hvattir til að notfæra sér hana.  Þar má hvetja, auglýsa og nánast hvað sem er.

Og svo að lokum…

Running takes balls … other sports just play with them…

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 31

VIKA 30

Nú eru rétt um fjórar vikur fram að Reykjavíkurmaraþoni.  Æfingarnar fara að ná hámarki og félagar einbeita sér að sínum markmiðum.  Aðalatriðið er að vera með og hafa gaman af.

Þann 8. ágúst næstkomandi fer fram afmælishlaup Atlantsolíu.

Vegalengdin sem verður hlaupn er  7 km. Hlaupið hefst fyrir utan höfuðstöðvar Atlantsolíu að Lónsbraut 2 í Hafnarfirði.

Hlaupið er meðfram strandlengjunni að Hrafnistu og til baka.  Nánari upplýsingar er að finna á Hlaup.is.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 30

2XU Hálfur Járnkarl

Félagar okkar í 3SH standa fyrir  íslandsmeistaramóti í hálfum járnkarli, 2XU hálfur járnkarl, næstkomandi sunnudag, 22. júlí.

Synt verður í Ásvallalaug (1900 m), hjólað á Krísuvíkurvegi (90 km) og hlaupið (21,1 km).

Keppt verður í tveimur aldursflokkum og veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin. Aldursskipting er eftirfarandi:

  • 18 til 39 ára karla og kvennaflokkur
  • 40 + karla og kvennaflokkur

Endilega kíkið á keppnina á sunnudag.

Á laugardeginum verða styrktaraðilar keppninnar með vörukynningar í andyri Ásvallalaugar  frá klukkan 15:00 til 17:30.  Það er um að gera að renna við og kanna hvort þar leynist ekki eitthvað gagnlegt á góðu verði.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við 2XU Hálfur Járnkarl

VIKA 29

Árangur síðustu viku og helgarinnar var frábær og náðu margir félagar ótrúlegum bætingum á milli ára. Er óhætt að fullyrða að fáir hlaupahópar geta státað af eins árangri og Hlaupahópur FH hefur náð nú í sumar.

Friðleifur Friðleifsson varð í öðru sæti í Laugavegshlaupinu á glæsilegum tíma, 4:24:03

Pétur Smári sigraði Vetsturgötuhlaupið 45. km.  fræbærum tíma, 04:07:04

Úrslit Hlaupahátíðarinnar má nálgast hér og úrslitin í Laugaveginum má nálgast hér.

KOMASO

Ljósmyndir af Vesturförum voru teknar af Guðmundi Ágústssyni.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 29

VIKA 28

Framundan eru keppnir sem félagar hafa æft af kappi fyrir undanfarnar vikur, má í því samhengi nefna Laugaveginn og Vesturgötuna. Einnig ætla margir í hópnum að keppa í Ármannshlaupinu sem fer fram næstkomandi miðvikudag og má búast við að mörg persónuleg met falli i því hlaupi.

Það er mikilvægt að æfa ekki of stíft í vikunni fyrir þessar keppnir og miðast æfingaáætlunin fyrir hópa A og B við keppnishlaupin í vikunni.

——–

Þau ykkar sem fengu tölvupóst varðandi jakkana eru beðin um að sækja þá fyrir æfingu á þriðjudag.  Allir herrajakkarnir eru klárir til afhendingar og einnig hluti kvenjakkana.  Tölvpupóstur var sendur á þau sem sem eiga tilbúna jakka í þessari lotu.

Jakkarnir kosta kr. 10.500,- og er hægt að koma með pening eða leggja inn á 327-26-9036, kt. 681189-1229 og sýna kvittun fyrir greiðslunni.

———-

Ertu í vandræðum hvernig þú átt að klæða þig eftir veðri?  Þá gæti þessi síða mögulega hjálpað þér.

———–

Allar ábendingar um efni fyrir síðuna er vel þegnar.  Sendið póst á hbirnir(a)gmail.com

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 28

Ármannshlaupið 2012

Ármannshlaupið er 10 km götuhlaup. Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata braut þar sem margir hafa náð sínum besta tíma. Hlaupið í ár er þar engin undantekning í ár. Nú hafa skipuleggjendur fundið enn flatari og skemmtilegri braut. Ræsing og endamark er nú við Vöruhótel Eimskips. Munur á hæsta og lægsta punkti á brautinni er aðeins 6,7 metrar.

Helstu upplýsingar um hlaupið:

Tímasetning: 11.júlí 2012 kl. 20:00

Vegalengdir: 10 km hlaup með tímatöku (ekki flögur)

Staðsetning: Ræst að þessu sinni við Vöruhótel Eimskips. Sjá nánar á þessu korti. Flöt og skemmtileg fram og til baka braut sem hentar vel til bætinga.

Skráning: Tekið verður á móti forskráningum á hlaup.com. Smelltu hér til að skrá þig.

Þátttökugjald: Aðeins 1.500 krónur í forskráningu. 2.000 krónur ef skráð er á staðnum.

Verðlaun:

  • Verðlaunagripir fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna
  • Sigurvegarar í hverjum aldurflokki karla og kvenna hljóta verðlaun.
  • Þátttökupeningar
  • Útdráttarverðlaun

Aldursflokkar: 18 ára og yngri, 19-39 ára, 40-49 ára og 50-59 ára og 60 ára og eldri.

Hlaupaleið: Smellið hér til að skoða flata og skemmtilega 10 km braut Ármannshlaupsins 2012.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ármannshlaupið 2012

Afhending á jökkum

Jakkar verða afhentir fyrir æfingu á morgun, fimmtudag 5. júlí nk.  Um er að ræða karlajakkana og hluta af kvk jökkunum.  Ennþá er hluti af kvk jökkunum í pöntun.

Jakkarnir kosta kr. 10.500,- og er hægt að koma með pening eða leggja inn á 327-26-9036, kt. 681189-1229 og sýna kvittun fyrir greiðslunni.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Afhending á jökkum

VIKA 27

Félagar okkar gerði góða ferð á Snæfellsnesið nú um helgina og tóku þátt í Snæfellshlaupinu, þar sem hlaupið er frá Arnarstapa yfir jökulhálsinn og til Ólafsvíkur.  Friðleifur Friðleifsson gerði sér lítið fyrir og sigraði með nokkrum yfirburðum.

1      01:37:55    Friðleifur Friðleifsson
8      02:02:11    Pétur Smári Sigurgeirsson
20     02:08:18    Sveinbjörn Sigurðsson
21     02:09:50    Guðni Gíslason
43     02:30:46    Gísli Guðmundsson
44     02:34:16    Carola M. Frank

Við óskum félögum okkar til hamingju með hlaupið.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 27

Við þurfum öll hvatningu

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Við þurfum öll hvatningu