Félagar okkar í 3SH standa fyrir íslandsmeistaramóti í hálfum járnkarli, 2XU hálfur járnkarl, næstkomandi sunnudag, 22. júlí.
Synt verður í Ásvallalaug (1900 m), hjólað á Krísuvíkurvegi (90 km) og hlaupið (21,1 km).
Keppt verður í tveimur aldursflokkum og veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin. Aldursskipting er eftirfarandi:
- 18 til 39 ára karla og kvennaflokkur
- 40 + karla og kvennaflokkur
Endilega kíkið á keppnina á sunnudag.
Á laugardeginum verða styrktaraðilar keppninnar með vörukynningar í andyri Ásvallalaugar frá klukkan 15:00 til 17:30. Það er um að gera að renna við og kanna hvort þar leynist ekki eitthvað gagnlegt á góðu verði.