VIKA 26

Fjölmargir félagar hlaupahópsins tóku þátt í  Miðnæturhlaupinu sem fram fór sl. fimmtudagskvöld.  Það var fínasta stemning og veðrið var eins og best gat orðið.

Á fésbókarsíðu okkar er hægt að skoða myndir sem teknar voru þá um kvöldið.

Úrslitin er hægt að sjá hér.

Félagi okkar, Friðleifur Friðleifsson, er á fullu þessa dagana í gær tók hann þátt og sigraðið Mt. Esja Ultra V (5 ferðir) 2012 á tímanum 4:07:23.  Við óskum honum til hamingju með frábæran árangur.

Nú er jakkasendingin komin til landsins en því miður kom enginn kvk jakki í þeirri týpu sem við vorum með sýnishornið af.

Við fengum senda nýja týpu sem við viljum að allar konur máti áður en jakkarnir fara í merkingu.

Á næstu þriðjudagsæfingu, 26. júní n.k verður mátun fyrir æfingu. Gott að mæta tímanlega.

Við hörmum að sjálfsögðu þessa töf sem þetta mun valda en vonum jafnframt að nýja týpan njóti vinsælda og allir verði sáttir að lokum.

Karlajakkarnir fóru í merkingu fyrir helgi.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 26

Félagakynning

Þá höldum við áfram að kynnast félögum okkar.  Siggi stefnir á að hanga í pilsfaldi Arnar.  Nú viljum við hin fá að sjá Eldinguna hlaupa í pilsi.

Nafn: Sigurður Ísólfsson

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Alinn upp í Hafnarfirði og hefbúið þar undanfarin 13 ár.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Byrjaði í hlaupahópnum í lok febrúar 2012.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Hjóla, syndi og fer í ræktina reglulega. Markmiðið er að gera eitthvað á hverjum degi.

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Gerði það aðeins til að byrja með, en er svotil hættur því upp á síðkastið.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Hef skráð alla hreyfingu síðan ég byrjaði af alvöru.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Að hlaupa 10km undir 49 mínútum. Fyrir utan það er aðalmarkmiðið að hanga í pilsfaldinum á Erni á æfingum.

Hvers vegna HHFH: Er rótgróinn FH-ingur, annað því ekki í boði.

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Jógúrt og banana fyrir morgunæfingu, annars er það misjafnt, stundum ekkert, stundum banana eða e-h snarl, engin sérstök regla á því.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Er mikill stuðningsmaður FH í 5 flokki í handbolta og fótbolta þar sem yngsta dóttir mín spilar. Hef einnig fylgt eldri stelpunum mínum í þeirra tónlistariðkun. Reyni að fikta aðeins við Golf og Veiði. Stefni á að fara í nokkrar fjallgöngur í sumar.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Svona út með okkur …

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Svona út með okkur …

VIKA 25

Í vikunni fer fram Miðnæturhlaup Suzuki og hvetjum við sem flesta í hópnum til að taka þátt. Hlaupið er eitt það fjölmennasta sem er haldið í sumar og hentar jafnt byrjendum sem þeim sem eru lengra komnir. Forskráningu í hlaupið lýkur 19.júní á miðnætti.

Æfingaáætlun vikunnar er létt í upphafi vegna hlaupsins á fimmtudag. Veðurspáin er góð þessa vikuna og vonast þjálfarar eftir góðri mætingu.

Félagar okkar, þau Carola, Tobba, Svenni og Sveinn Baldurs tóku þátt í Hamarshlaupinu sem fram fór fyrir ofan Hveragerði í gær.  Heildarúrslitin má nálgast á hlaup.is

Sveinn Baldurs sigraði sinn aldursflokk og Tobba varð í öðru sæti í sínum flokkum.  Carola og Svenni gerðu einnig fína ferð austur.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 25

Næring, afslættir og Hamarshlaupið

Fríða Rún Þórðardóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson hafa sent frá sér rit um næringu fyrir hlaupara.  Ritið fjallar um þætti sem skipta hlaupara máli, allt frá vatnsbúskap líkamans til fæðubótarefna sem geta hjálpað hlaupurum.

Í bókinni er meðal annars að finna leiðbeiningar um næringu á undirbúningstíma, fyrir keppnishlaup, næringu í hlaupinu sjálfu og eftir hlaupið. Allt leiðbeiningar sem ættu að reynast okkur hlaupurum vel og draga úr hættu á álagseinkennum og þreytu.

Frekari upplýsingar má finna á fésbókinni og þar er hægt að sjá hvar ritið fæst.

Sveinn K. Baldursson kom með þá hugmynd að þau sem ætla að taka þátt í Hamarshlaupinu n.k. sunnudag sameinist í bíla.  Því er kjörið að þau sem ætla að taka þátt tali sig saman á æfingunni á morgun.

Félagar Hlaupahóps FH njóta afsláttar hjá TRI, Suðurlandsbraut.  ATLAS – göngugreiningu, Laugardal og EAS, Garðabæ.  Það á að vera nóg fyrir félagsmenn að láta vita að þeir séu í Hlaupahópi FH, búðirnar eiga að vera með lista yfir félagsmenn.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Næring, afslættir og Hamarshlaupið

VIKA 24

Búið er að breyta heitum á hópunum, nú verða þeir kallaðir A, B og C.  A hópurinn er fyrir þau sem stefná á lengstu vegalengdirnar, B hópurinn er fyrir þau sem stefna á 5-10 km. hlaup og C hópurinn er nýliðahópurinn.

Næsta þriðjudag stefnum við á að taka tvo hópa á Víðistaðatún þar sem frjálsíþróttamót verður haldið í Kaplakrika kl. 17:30.  Hægt er að nálgast æfingaáæglunina hér.

Ef þið hafið ábendingar um efni fyrir heimasíðuna endilega sendið póst á hbirnir(a)gmail.com

KOMASO…

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 24

Friðleifur Friðleifsson sigraði 7 tinda hlaupið

Friðleifur Friðleifsson kom fyrstur í mark í 7 tinda hlaupinu sem var að ljúka en hlaupið var eitt af dagskrárliðum Landsmóts UMFÍ sem nú stendur yfir í Mosfellsbæ. Hlaupið er utan vega, um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar og komið aftur í mark við Varmá. Friðleifur hljóp vegalengdina 37 km á 3 klukkustundum og 37 mínútum.

,,Ég byrjaði 2007 að hlaupa af einhverju viti. Ég hef verið að hlaupa á götum en þó meira utan vega síðustu misseri þar sem ég kann vel við mig. Þetta hlaup er erfitt og ótrúlega krefjandi. Ég held ég geti sagt að þetta er erfiðasta hlaup sem ég hef farið í á Íslandi. Ég hef hlaupið Laugaveginn, Jökulsárshlaupið, Snæfellsjökulinn og víðar. Mér finnst 7 tinda hlaupið það erfiðasta sem boðið er upp á,“ sagði Friðleifur Friðleifsson.

Tindarnir sem hlaupið er upp á eru Úlfarsfell, Reykjaborg, Reykjafell, Æsustaðafjall, Stórhóll, Mosfell og Helgafell.
,,Ég spilaði lengi handbolta og var ekki svo í íþróttum í töluverðan tíma áður ég fór að hlaupa fyrir alvöru. Ég hleyp á hverjum degi en maður getur alveg stjórnað tímanum sjálfum varðandi æfingar. Hlaupið er frábær vakning en ég er í sterkum og fínum hlaupahóp og með frábærum æfingafélögum í FH. Þar er andinn góður og það hjálpar manni á hlaupunum. Þetta sport gefur mér mikla lífsfyllingu og það er ekkert betra en vellíðanin eftir gott hlaup, hvort sem það er eftir hlaup eða æfingu. Ég hvet alla til að hlaupa,“ sagði Friðleifur Friðleifsson.

Mynd: Friðleifur Friðleifsson nýkominn í mark sem sigurvegari í 7 tinda hlaupinu á Landsmóti UMFÍ 50+.

Af heimasíðu UMFI

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Friðleifur Friðleifsson sigraði 7 tinda hlaupið

Helgarhlaupin í kortunum

Það var frábær mæting og skemmtileg stemning í á fjölmennri æfingu í gær, við vorum örugglega 130 samankomin og hlupum hefðbundinn Setbergshring, rúma 5 kílómetra með okkar frábæra nýliðahópi.  Eftir hlaupið var boðið upp á Myllu hafrakökur og íþróttadrykki.

Nýliðarnir vita núna hvað þeir geta og nú er um að gera að halda áfram af sama eldmóði.  Þetta er líka svo gaman og alveg FRÁBÆR félagsskapur!!!!

Á Facebook síðu hópsins er búið að setja inn myndir frá gærdeginum.

Á morgun ætla hópar 1 og 2 að hlaupa 7-26 km.  Nýliðarnir fara 10×2 mínútur með 1 mín. göngupásu á milli.

Það er smá kuldakast í kortunum en spáð björtu og fallegu veðri.  Sjáumst á æfingu.

KOMASO!

… og fyrir þau sem vilja hlaupa á bretti …

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Helgarhlaupin í kortunum

Samhlaupið okkar og fleira

Við minnum félaga á samhlaup okkar á morgun, fimmtudag en þá munum við hlaupa með nýliðum okkar 5. km hring.  Á eftir verður boðið upp á hressingu á brautinni.  Þau allra sprækustu halda svo áfram og bæta svo við, eins og þeim líkar 🙂

Hlaup.is er frábær síða sem er uppfull af fróðleik um hlaup og fleira.

Asics eru greinilega vinsælustu hlaupaskór félaga Hlupahóps FH, miðað við könnunina sem sem við vorum með.  49% félaga hlaupa í þeim.  Næsti á eftir koma New Balance skór en 15% félaga hlaupa þeim. Brooks og Adidas komu næst og þar á eftir Nike og Under Armour.  Aðrar tegundir sem voru nefndar eru Reebok, Vibram Five Fingers og Ecco.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Samhlaupið okkar og fleira

VIKA 23

Það var alveg súper veður um helgina og félagar voru á hlaupum báða dagana.  Svona á þetta að vera 🙂

Í vikunni munu nýliðarnir hlaupa sitt fyrsta 5km. samfellda hlaup og að sjálfsögðu ætlum við öll að hlaupa með þeim.  Við erum virkilega stolt af þessum flotta hópi. Eftir hlaupið verður boðið upp á hressingu á brautinni.  Við hvetjum að alla félaga til að mæta!

Það styttist í Miðnæturhlaup Suzuki það fer fram 21. júní.  Við stefnum á að fjölmenna í Laugardalinn og hafa það skemmtilegt.  Skráning er hafin.

Hér er æfingaáætlun vikunnar.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 23