VIKA 36

Það voru margar keppnir á boðstólnum í síðustu viku og mikið um að vera.

Pétur Smári Sigurgeirsson gerði sér ferð í Reykjanesbæ á laugardag og tók þátt í Reyknaesmaraþoninu.  Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði það á fínum tíma, 1:28:38.  Heildarúrslitin má sjá hér.

Fossvogshlaupið fór fram 30. ágúst sl.  Félagar okkar gerðu mjög góða hluti þar.  Friðleifur Friðleifsson varð annar í 10 km hlaupinun á 35:28.  Í þessu hlaupi féllu persónuleg met nokkra félaga.  Til hamingju með það.  Heildarúrslitin má sjá hér.

1. september fór fram Brúarhlaupið á Selfossi við frekar erfiðar aðstæður.  Þá fór fram Íslandsmeistaramót í hálfu þoni á sama tíma.  Félagi okkar Haraldur Tómas Hallgrímsson varð í þriðjasæti á tímanum 1:20:54.  Kári Steinn Karlsson varð Íslandsmeistari.  Eyvindur Guðmundsson tók þátt í 5 km hlaupinu og varð annar á tímanum 18:36.

Það voru margir félagar okkar í hlaupahópnum sem tóku þátt og féllu mörg persónuleg met.   Eins unnu mörg okkar til aldursflokkaverðlauna. Heildarúrslitin má sjá hér.

Birna Björnsdóttir tók þátt í Olimpískri þríþraut í Köln.  Hún varð í þriðja sæti sem er frábær árangur.

Steinn Jóhannsson og Friðleifur Friðleifsson tók þátt í liðakeppni í hálfum járnkarli í Köln.  Steinn synti og Friðleifur hljóp og félagi þeirra sá um hjólalegginn.  Þeir gerðu sér lítði fyrir og urðu í öðru sæti.

Við óskum félögum okkar til hamingju með frábæran árangur.

Við höfum reynt að vera dugleg við að setja myndir inn á Fésbók hlaupahópsins nú í sumar. Það væri frábært ef þið mynduð merkja ykkur og félaga ykkar á þessum myndum, svona til að tengja andlit við nöfn.  Ef þið eigið myndir sem þið viljið leyfa okkur hinum að njóta og setja á fésbók hlaupahópsins þá endilega komið þeim til okkar.

Þetta verður ljómandi fín vika.

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 36

Fossvogshlaupið

Þó nokkrir félagar okkar í hlaupahópnum tóku þátt í Fossvogshlaupinu í gærkvöldi.  Samkvæmt öruggum heimildum féllu nokkur PB og stóðu félagar okkar sig með sóma.

Úrslit hlaupsins má nálgast hér.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Hlaup | Slökkt á athugasemdum við Fossvogshlaupið

VIKA 35

Nú er mesta gleðivíman að renna af okkur eftir Reykjavíkurmaraþonið en það er um að gera að nýta driftina sem er til staðar og pæla dálítið í því sem mann langar að gera næstu vikur.

Um næstu helgi er Brúarhlaupið á Selfossi.  Þar er boðið upp á 2,5 km. 5 km 10km og hálfmaraþon.  Þó nokkrir félagar hafa sýnt þessu hlaupi áhuga og ætla sér að mæta í það.

Á sama tíma fer fram Reykjanesmaraþonið í Reykjanesbæ.  Þar er boðið upp á hálfmaraþon, 3,5 km. skemmtiskokk og 10 km. hlaup.

Ekki má gleyma Fossvogshlaupinu, en það fer fram 30 ágúst nk. Þar er boði upp á 5 og 10 km.

Þann 12. september fer svo fram Afmælishlaup Atlantsolíu.  Félagar er sérstaklea hvattir til að mæta og taka þátt í því.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 35

Grillið

Einhverjir eiga eftir að greiða fyrir grillið á laugardagskvöldinu, það er að segja fyrir maka eða vin sem er ekki félagi í Hlaupahópi FH.

Upphæðin er 2500 kr.

Vinsamlegast leggið inn á reikning:
327-26-9036 – kt. 681189-1229.

Endilega gangið frá þessu sem fyrst.

Félagar sem greitt hafa félagsgjöld fengu frítt, þeir sem ekki hafa greitt félagsgjöldin eru  beðin um að greiða þessa upphæð.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Grillið

VIKA 34

Þá er frábær helgi að baki.  Mörg okkar tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og hlupum ýmist 10 kílómetra, hálft maraþon og einnig tóku félagar okkar þátt í heilu maraþoni!

Stemningin sem myndaðist við endamarkið (á túninu fyrir framan MR) var  einstök og við sem vorum þar munum eiga hana í minningunni um ókomna tíð.

Veðrið lék náttúrulega stórt hlutverk.  Aðstæður til hlaupa var eins og best er á kosið, þægilega hlýtt, logn og sólin braust fram þegar flestir höfðu lokið keppni.

Um kvöldið kom hópur saman í Skátalundi við Hvaleyrarvatn þar sem skálað var fyrir flottum árangri.  Það má segja að nú sé það orðin hefð hjá Hlaupahópi FH að hittast og grilla saman og eiga gott kvöld eftir svona frábæran dag.

En jólin taka víst enda eins og allt annað. Samkvæmt æfingaáætlun er æfing á þriðjudag, en við munum fara frekar rólega af stað eftir Reykjavíkurmaraþon.  Samkvæmt planinu  munum við hlaupa frá 4 til 10 km. rólega.  Annars má  sjá æfingaáætlunina hér.

Eins og við sáum á laugardaginn þá eru okkur allir vegir færir.  10 kílómetrar, hálft maraþon eða heilt, félagara í Hlaupahópi FH eru greinilega á öllum getustigum og blandaður.  Það er einmitt það sem gerir hópinn að því sem hann  er.

Á Hlaup.is er hægt hægt að sjá úrslitin úr Reykjavíkurmaraþoninu.

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 34

Reykjavíkurmaraþonið


Á morgun, hlaupadaginn mikla, ætlum við í Hlaupahópi FH að helga okkur reit sunnanmegin við MR, þar verðum við með tjald, flögg og vel sýnileg. Þar er tilvalið að hittast að loknu hlaupi, fagna glæstum sigrum og eiga góða stund með frábærum félögum. Munið eftir að taka með ykkur smá nesti t.d. banana og kókómjólk!

Svo er náttúrulega fagnaðurinn um kvöldið – rúmlega hundrað manns hafa staðfest komu sína.

Njótum dagsins, þetta er hápunktur hlaupasumarsins hjá mörgum okkar, nú uppskerum við eftir æfingar síðustu vikna.
Þetta verður úberflottur og frábær dagur og vonandi skemmtum við okkur og njótum eins og hægt er.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Reykjavíkurmaraþonið

OG ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ …

ps. muna eftir góða skapinu 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við OG ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ …

VIKA 33

Það styttist óðfluga í stóra daginn og allt að verða klárt hjá okkur öllum.  Þessa síðustu daga fyrir hlaup verða tiltölulega rólegir, þó verður sæmileg sprettæfing á þriðjudag, þar sem félagar skulu einsetja sér að hlaupa á keppnishraða og fá þann hraða á tilfinninguna.  Ekki vera með glennugang og hlaupa upp 🙂

Á netinu má finna ýmsan fróðleik um það hvernig gott sé að haga næringu fyrir keppnir, gullna reglan er þó sú að gera ekki rótækar breytingar á mataræði á hlaupadag eða einum – tveim dögum fyrr.  Best er að halda sig við það sem líkaminn er vanur og vera ekki að taka neina sénsa. En það er þess virði að benda á nokkrar greinar um um næringu og undirbúning.

Steinar B. Aðalbjörnsson, næringafræðingur hefur heimsótt okkur og lesið okkur pistilinn.  Hann skrifaði þetta á bloggið sitt fyrir um ári síðan.

Hér svarar Gunnar Páll Jóakimsson lesanda á hlaup.is

Á heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins má finna greinar eftir þau Geir Gunnar Markússon, næringafræðing (sem heimsótti okkur sl. vor).  Fríðu Rún Þórðardóttur, næringafræðing og dr. Sigurbjörn Árnason.

Svo er hér aftur linkur í pistil Fríðu Rúnar Þóraðrdóttur um lokaundirbúinginn.

Svo er bara að notfæra sér gúgúl, netið er stútfullt af gagnlegum og gagnslausum fróðleik 🙂

Ef langtímaverðurspáin gengur eftir verður ljómandi gott veður nk. laugardag. Samkvæmt venju ætlar hlaupahópurinn að helga sér reit við MR – þar verður gaman að hittast að loknu frábæru hlaupi, gleðjast yfir árangri sínum og allra hinna.  Við verðum vel sýnileg með flöggum og svo er um að gera að mæta í gulu jökkunum.

Vert er að minna á skráningahátíðina þann 17. ágúst.  Þann dag fá allir þátttakendur afhent keppnisgögn. Meðal annars þátttökunúmer, tímatökuflögu í skóinn og bol. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíðinni.

KOMASO – þetta verður frábær helgi!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 33

VIKA 32

Uppáhald okkar allra, hlaup.com var eyðilögð af tölvuþrjótum sl. þriðjudag. Það er vonandi að vefurinn verði endurbyggður svo við getum öll notið hans áfram.  Eftir því sem best er vitað þá var til afrit af gögnum, en mikil vinna liggur á bak við síðuna.

Nú styttist í stærstu hlaupahátíð ársins, þ.e. Reykjavíkurmaraþon og æfingar þessar viku taka mið af því. Það skiptir miklu máli að þeir sem eru að undirbúa sig fyrir lengri vegalengdir æfi næringarinntöku á laugardagsæfingu og miði við í tempóæfingum að hlaupa ekki of hratt.  Hópur C heldur sínu striki og æfingar hjá þeim hóp miðast við að geta hlaupið 7-10km á þægilegum hraða.  Æfingaáætlunin er hér.

Búið er að fresta Atlantsolíuhlaupinu sem vera átti á miðvikudaginn til 12. september nk.  Á fimmtudag verður Vatnsmýrarhlaupið haldið í 18 sinn.  Fyrir þau sem vilja má gjarnan taka þátt í því og nota sem tempóæfingu.

Á heimasíðu Reykjavíkurmaraþons er margt forvitnilegt, þar er meðal annar pistill eftir Fríðu Rún Þórðardóttur, hlaupara og næringafræðings um hvernig sé best að undirbúa sig fyrir hlaup.  Þó hann sé miðaður við maraþon, getum við, sem ætlum okkur að hlaupa styttra, fengð þar góð og gagnleg ráð.  Pistilinn er að finna hér.

Eins er bók þeirra Fríður Rúnar og Steinars Aðalbjörnssonar full af fróðleik fyrir hlaupara.

Myndin var tekin af hressum felögum Hlaupahóps FH og fylgifiskum eftir keppni í síðasta Reykjavíkurmaraþoni, 2011.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 32

RM – Maraþonsfögnuður Hlaupahóps FH

Þá er loksins komið að því, Reykjavíkurmaraþonið nálgast með tilheyrandi spennu, stressi og að sjálfsögðu tilhlökkun.

Flestir eru búnir að bíða eftir þessum degi í allt sumar. Eftir að við höfum keyrt okkur út í 10, 21,1, 42,2km hlaupi eða í hinu mikilvæga klappliði á hliðarlínunni, ætlum við að fagna árángri okkar saman með grilluðum eðal hamborgurum og fleiru ómissandi meðlæti um kvöldið.

-Boðslistinn miðast við félaga í HHFH en þar sem svo gríðarleg fjölgun hefur verið í hópnum gæti verið að einhver hafi alveg óvart gleymst og að sjálfsögðu takið þið þá málin í ykkar hendur og bætið þeim við á listann 😉

– Makar eru að sjálfsögðu velkomnir, en mjög mikilvægt er að ALLIR staðfesti komu sína fyrir 11.ágúst hvort sem um maka sé að ræða eða félaga í HHFH

-Endanlegt verð kemur síðar eða um 14.ágúst þegar allir hafa meldað sig.

-Ef þið sjáið þetta ekki á facebook þá senda  staðfestingu um mætingu á : margretkarls@simnet.is

Það verður STUÐ.

KOMASO – SKRÁ SIG!!!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við RM – Maraþonsfögnuður Hlaupahóps FH