FLENSBORGARHLAUPIÐ 2012

Skráning á Hlaup.is – KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Hlaup | Slökkt á athugasemdum við FLENSBORGARHLAUPIÐ 2012

VIKA 39

Félagi okkar og þjálfari Steinn Jóhannsson dró sig í hlé sem þjálfari í síðustu viku.  Hann er einn af upphafsmönnum okkar ágæta hlaupahóps.  Við eigum vonandi eftir að hitta hann á æfingum þegar fram líða stundir og á sama tíma og við þökkum honum fyrir frábært starf óskum við honum góðs gengis í framtíðinni.

Uppbyggingatímabilið heldur áfram hjá okkur eins og æfingar vikunnar bera með sér. Þegar líður á haustið færum við okkur svo meira í brekkuspretti og tröppuhlaup.

Það er ágætis veðurspá fyrir vikuna – njótum haustsins.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 39

Komið að leiðarlokum hjá Steini

Eins og félagar hafa séð hef ég lítið getað hlaupið með hópnum í september vegna anna í nýju starfi og einnig hrjá mig hnémeiðsli 🙂
Því hef ég ákveðið að stíga til hliðar og hætta þjálfun hópsins. Ég mun örugglega vera áfram viðloðandi hópinn sem iðkandi þegar ég kemst aftur á hlauparól. Annars er maður mjög stoltur af þessum ótrúlega hóp og árangurinn hefur verið hreint út sagt lygilegur. Ekki spillir heldur þessi frábæri félagsskapur sem er að finna í hópnum. Boltinn er þá núna eingöngu í höndum Péturs og Hrannar og nýr maður kemur í manns stað.
Sjáumst við tækifæri á æfingu,
Steinn

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | 4 athugasemdir

Æfingin í dag – fimmtudag

Við ætlum að hittast uppi á braut fyrir æfingu í dag en ekki inni í Kapla.

C hópur:  4-5km jafn hraði vaxandi í lokin

B hópur: 8-10km rólegt hlaup

A hópur: 11-12km með 4km tempó @ MP hraða.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingin í dag – fimmtudag

I am a runner

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við I am a runner

VIKA 38

Eftir skemmtilegt sumar og haust tekur við rólegt uppbyggingartímabil hjá öllum hópum nema þeim sem stefna á maraþon erlendis og haustþonið.  Þau eiga nokkrar vikur eftir, Berlínarmaraþonið fer fram 30. september, Chicago maraþonið 7. október og haustþon Félags maraþonhlaupara fer fram 20. október.

Það er smá könnun frá skemmtinefndinni hér til hliðar, endilega takið þátt!

Félagsfundur Hlaupahóps FH verður haldinn miðvikudaginn 19 september í Kaplakrika.
Fundurinn hefst kl 20:00 og stendur í um tvo tíma.

Dagskrá:
Heiðar Birnir Kristjánsson, segir frá ferðalagi sínu úr sófanum og í hlaupaskóna.

Matti Oswald, markþjálfari fjallar um markþjálfun og að sigra sjálfan sig.

Stjórnin fer yfir nokkra punkta:
* Uppskeru- / árshátíð í október
* Hlaupaferð á næsta ári
* Fyrirspurnir

Félagar eru hvattir til að fjölmenna

Stjórnin og þjálfarar

Æfingaáætlun vikunnar er hér.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 38

Afmælishlaup Atlantsolíu

Afmælishlaup Atlantsolíu fór fram i gærkvöldi.  Aðstæður voru ekki sem bestar, mikill vindur og riging.  En þrátt fyrir það tóku 117 þátt og skemmtu sér vel.

Í kvennaflokki sigraði Fríða Rún Þórðardóttir á tímanum 28:56.  Í karlaflokki sigraði Kári Steinn Karlsson á tímanum 22:57.

Öll úrslit má nálgast á hlaup.is

Hér má sjá myndir sem félagi Guðni Gíslason tók, eins eru mydir á fésbók hlaupahóps FH.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Afmælishlaup Atlantsolíu

VIKA 37

Næstu daga og vikur verður nóg um að vera. Á þriðjudaginn 11. september verður nýliðakynnig hjá okkur.  Við vonumst til að sjá áhugasamt fólk taka fram hlaupaskóna og mæta og taka þátt.  Ef þið vitið af einhverum sem langar til að taka fram hlaupaskóna, endilega látið þá vita af þessu.

Á miðvikudag fer afmælishlaup Atlantsolíu fram og við hvetjum sem flesta til að taka þátt.  Skráning fer fram á hlaup.is.

Þann 19. september verður félagsfundur haldinn í Sjónarhól, Kaplakrika og hefst hann klukkan 20.  Þar verður farið yfir starfið í vetur, væntanlega utanferð á næsta ári og fleira.  Endilega takið kvöldið frá.

Það líður líka að uppskeru / árshátíð okkar.  Hún verður föstudagskvöldið 26. október.  Skemmtinefnd hefur hafði störf og má búast við sérlaga frábærri árshátið. TAKA KVÖLDIÐ FRÁ.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 37

Afmælishlaup Atlantsolíu

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Afmælishlaup Atlantsolíu

Nýliðakynning 11. september 2012

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Nýliðakynning 11. september 2012