Haustþon 2012

Laugardaginn var fór fram haustþon Félags Maraþonhlaupara.  126 manns tóku þátt í hálfu þoni og 26 í heilu þoni, þar af einn keppandi í hjólastólaflokki.

Átta félagar  hlaupahóps FH tóku þátt, fremst í flokki fóru hjónin Þóra Gísladóttir og Grétar Snorrason.  Bæði urðu þau í fimmta sæti í sínum flokkum.

1:26:05   Grétar Snorrason
1:40:24   Þóra Gísladóttir
1:42:49   Sigurður Ísólfsson
1:45:14   Helgi Harðarson
1:45:17   Þorbjörg Ósk Pétursdóttir
1:45:17   Sveinbjörn Sigurðsson
1:46:16   Hringur Baldvinsson
1:52:17   Áki Árnason
2:22:50  Þorsteinn Ingimundarson

Úrslitin má nálgast hér á hlaup.is.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Haustþon 2012

VIKA 43

Á föstudaginn ætlum við að lyfta okkur upp og skemmta okkur rækilega á uppskeruárshátíðinni.  Það er frábær þátttaka og kvöldið verður stórskemmtilegt.

Æfingaáætlun vikunnar er er kominn á sinn stað.  Pétur og Hrönn gefa ekki neinn afslátt á laugardagsæfingunni.  Það er mæting klukkan 9 í Suðurbæjarlaugina – stundvíslega.  Líklega mæta aðeins þeir allra hörðustu!

KOMSAO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 43

Bílastæðamál

Þar sem það er nóg um að vera í Suðurbæjarlauginni á laugardagsmorgnum, m.a. er ungbarnasund á þeim tíma, eru félagar í hlaupahópsins sem koma á bíl, beðnir um að leggja á bílastæðinu við leikskólann Smáralund, það eru ekki nema nokkrir metrar þaðan og yfir í Suðurbæjarlaug.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Bílastæðamál

Hlaupadagbók á hlaup.is

Hlaupadagbók Hlaup.is er orðin virk og komin í gagnið.  Nú þegar er búið að stofna hóp þar inni fyrir okkur í Hlaupahóp FH.

Við fyrstu kynni lítur þetta mjög vel út og er um að gera að kynna sér alla þá fídusa sem boðið er uppá.  Vandaðar leiðbeiningar má nálgast hér.

Nú munu hlaupagarpar taka gleði sinni á ný 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupadagbók á hlaup.is

Frá árshátíðarnefnd

Kæru hlaupafélgar.

Í næstu viku verða afhendir miðarnir á árshátíðna fyrir þá sem eru búnir að borga. Miðarnir verða afhendir strax eftir æfingu þriðjudag, fimmtudag og laugardag.

Einnig verður hægt að greiða á staðnum með peningum (tökum ekki við korti).

Kær kveðja,

Árshátíðarnefnd Hlaupahóps FH

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frá árshátíðarnefnd

VIKA 42

Næstkomandi laugardag fer fram HAUSTþon Félags Maraþonhlaupara.  Ræst er í Elliðarárdalnum og hlaupið út á Ægissíðu.  Nánari upplýsingar er að finna hér.  Það munu án efa einhverjir félagar í Hlaupahópi FH taka þátt.

Árshátíðin fer fram föstudaginn 26. október.  Það stefnir í taumlausa gleði og fjör og því er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og tryggja sér miða í tíma.  Eftir 20. október hækkar verðið!

Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á heimasíðunni okkar.  Ný undirsíða með uppskriftum hefur verið sett í gang.  Við stefnum á að safna þar uppskriftum af hollum, en umfram allt góðum réttum.  Anna Eðavalds býður upp á íslenskt lamb í indverslum felubúningi sem hún galdraði fram þegar Kölnarfarar hittust nú fyrir skemmstu til að rifja upp frábæra ferð.

Síðuskrifari biður fólk um að senda sér uppskriftir að hollum og góðum réttum netfangið er hbirnir(a)gmail.com – til dæmis væri fengur í að fá uppskrift að “síðustu kvöldmáltíð” fyrir maraþon.  Morgunverð meistarans á keppnisdag!  Mánudagsmaturinn, hádegissnarl, létt á miðvikudagskvöldi.  Orukubitar.  Allar hugmyndir og uppskriftir eru vel þegnar.

Æfingaáætlun vikunnar er hér.

Hittumst hress á þriðjudag – KOMASO

ps. munum eftir endurskinsmerkjunum

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 42

Ekki bara hlaup

Nú á haustmánuðum, þegar uppbyggingartímabilið fer í hönd hjá okkur eftir sumarið, er ekki úr vegi að bæta styrktaræfingum við prógramið – styrkja undirstöðurnar.

Við þurfum nú ekki að leita langt yfir skammt því í næsta húsi við Kaplakrika er Elín.is.  Þar rekur félagi okkar, Elín Sigurðardóttir, hug og heilsuræktarstöð.  Nú í lok október byrja ný 8 vikna TRX/Rope Yoga námskeið, skráning er hafin.  Síðasta vetur skelltu nokkrir félagar sér á námskeið hjá henni og létu vel af.

Hress þar varla að kynna fyrir félögum hlaupahópsins.  Fjölmargir félagar mæta þangað reglulega til að fá útrás og stunda þar líkamsrækt.  Félagi okkar Egill Ingi starfar þar sem einkaþjálfari, eins kennir Ebba Særún, félagi okkar, m0rgunhressum spinning.

Silja Úlfars er okkur að góðu kunn.  Hún er reglulega með ýmis námskeið á boðstólnum, eins býður hún upp á fjarþjálfun sem hentar örugglega einhverjum.

Á Melabrautinni er CrossFit Hafnarfirði til húsa.

Eins er nú lítið mál að gera styrktaræfingarnar á stofugólfinu heima hjá sér.  Á YouTube má finna fínustu æfingar styrktaræfingar fyrir hlaupara.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ekki bara hlaup

VIKA 41

Félagar hlaupahóps FH hafa gert víðreist um allan heim síðustu vikur.  Þórdís, Carola, Ingólfur, Guðni, Finnur og Haraldur tóku þátt í Berlínarmaraþoninu 30. september sl.   –hér má sjá tíma Íslendinga í því hlaupi.  Um síðustu helgi fór fram Chicago maraþonið og tóku þau Friðleifur, Pétur, Fía og Ólafía þátt í því hlaupi.  Tímana má sjá hér.

Við óskup félögum okkar innilega til hamingju með árangurinn.

Powerade vetrarhlaupaserían hefst nk. fimmtudag.  Þó nokkrir félagar hafa ákveðið að taka þátt og væntanlega bætist við þann fjölda.  Hér er hægt að lesa sér til um seríuna.

Æfingaáætlunin er komin á sinn stað.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 41

Uppskeruárshátíð Hlaupahósp FH 26. október 2012

KOMASOOOOO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Uppskeruárshátíð Hlaupahósp FH 26. október 2012

Æfingaáætlun fimmtudagsins

Hér er æfingaáætlun fimmtudagsins.

Hópur C – 4-5 km jafn hraði
Hópur B – 1,5 km upphitun // 8-12 x 45 – 60 sek brekkusprettir // Niðurskokk
Hópur A – 1,5 km upphitun // 10-12 x  45 – 60 sek brekkusprettir  // Niðurskokk

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingaáætlun fimmtudagsins