Vefurinn okkar og hlaup.com

HHFH vefurinn
Á næstunni er stefnt að því heimasíðan okkar, hhfh.is. breytist aðeins.  Settar verða inn greinar og fróðleikur um hlaup og hlaupatengt efni ásamt ýmsu öðru.  Ef þið lumið á áhugaverðu efni svo sem reynslusögum, góðum ráðum og fleiru og viljið deila því með hópnum, sendið það á netfangið hbirnir( )gmail.com

Hlaup.com
Hlaupadagbókin á hlaup.com er frábært tæki til að halda utan um æfingar sínar.  Margir félagar í hlaupahópnum skrá ástundun sína þar og fylgjast þannig með árangri sínum.

Nýliðar, sem og aðrir félagsmenn, eru hvattir til að nota dagbókina og muna eftir að skrá Hlaupahóp FH sem liðið sitt.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vefurinn okkar og hlaup.com

Verum sýnileg

Nú í svartasta skammdeginu er áríðandi fyrir okkur hlaupara að vera vel sýnileg.  Endurskins– merki, belti og vesti eru nauðsynlegur búnaður og ætti enginn að hlaupa á eða við götur nema klæðast einhverju slíku.  Eins þurfum við að sýna mikla aðgát þegar hlaupið er meðfram götum og þegar við förum yfir þær, sem við gerum náttúrulega hvergi nema á gangbrautum.

Eins er mikilvægt að vera vel sýnilegur á reiðhjóli, en margir úr hlaupahópnum eru duglegir við að hjóla allt árið, til og frá vinnu og/eða sér til gamans.  Endurskinsmerki og ljóst koma þar sterkt inn.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Verum sýnileg

Jón Ómar Erlingsson í New York maraþoninu

Félagi okkar í HHFH, Jón Ómar Erlingsson, tók þátt í New York maraþoninu sem fram fór í dag.  Hann kláraði hlaupið með sóma á glæsilegum tíma 3:25:24.  Við óskum honum til hamingju með hlaupið.

Búið er að setja inn æfingaáætlun næstu viku.  Nýliðarnir halda sínu striki, það er frábært að sjá framfarirnar hjá þeim.  Hinir hóparnir hlaupa rólega á þriðjudagsæfingunni en á fimmtudag verða brekkusprettir.

Munið að klæða ykkur eftir veðri.

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á árshátíðina … KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Jón Ómar Erlingsson í New York maraþoninu

Hressleikahlaupið og laugardagshlaup HHFH

Á morgun, laugardag, verður hefðbundin hlaupaæfing hjá hlaupahópnum. Hlaupið verður frá Suðurbæjarlaug og lagt af stað klukkan 9.  Pottaseta á eftir fyrir þá sem það kjósa.

Við viljum minna á að Hressleikahlaupið fer fram á svipuðum tíma.  Þar er boðið upp á 5km. 10km og 20km.  Hlaupið verður frá Hress, Dalshrauni, ræsing klukkan 9:15.

Þátttökugjald er 1000 kr. sem rennur óskipt til styrktar Ragnars Emils Hallgrímssonar, 4. ára snáða sem greindist með taugahrörnunarsjúkdóm.

Skráning fer fram í Hress Dalshrauni 11.  Einnig er hægt að greiða inn á reikning 0135-05-71304 kt. 540497-2149, og er þá viðkomandi sjálfkrafa skráður.

Það er rétt rúm vika í UPPSKERUHÁTÍÐINA, ert þú búin(n) að skrá þig?
Uppskeruárshátíð Hlaupahóps FH.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hressleikahlaupið og laugardagshlaup HHFH

Fræðslufundur 2. nóv og árshátíð 12. nóv.

Fræðslufundur 2. nóv.
Framundan eru tveir stórir atburðir fyrir félaga í HHFH. Miðvikudaginn 2. nóvember höldum við fræðslufund fyrir félaga í fyrirlestrarsalnum í íþróttahúsi Setbergsskóla. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20:00 og mun Steinar B. Aðalbjörnsson halda erindi um næringu og Kári Steinn Karlsson Íslandsmethafi í maraþonhlaupi segir frá æfingum og keppnum. Einnig verður fjallað um útbúnað og annað sem skiptir máli fyrir hlaup.
Í hléi mun vera vörukynning á vörum frá Compressport og SPIBELT. Nánar um vörurnar inn á www.ironviking.is

Árshátíð HHFH
Laugardaginn 12. nóvember ætlum við að halda árshátíð hlaupahópsins í Sjónarhóli í Kaplakrika og eru félagar hvattir til að fjölmenna og skemmta sér saman. Boðið verður upp á dýrindis kvöldverð og munu félagar aðeins greiða kr. 2500- fyrir fjórrétta máltíð. Verð fyrir maka er kr. 3500-.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður í boði.
Eru allir hvattir til að skrá sig og eiga notalega og skemmtilega kvöldstund saman.
Smelltu hér til að skrá þig

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fræðslufundur 2. nóv og árshátíð 12. nóv.

Ingólfur sigraði í haustþoninu

Um liðna helgi fór fram Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara og átti HHFH fjóra keppendur sem tóku þátt.

Ingólfur Örn Arnarson gerði sér lítið fyrir og sigraði í heilu maraþoni á 2:58,04 klst sem er frábær árangur. Góðar æfingar undanfarið lögðu grunninn að þessumflotta tíma og óskum við honum innilega til hamingju með árangurinn.

Í hálfu maraþoni kom Friðleifur Friðleifsson 5. í mark á tímanum 1:20:00 klst og sigraði hann jafnframt í sínum flokk, 40-49 ára. Í sama flokki hljóp Bóas Jónsson á 1:30,05 klst og SigurÞór Einar Halldórsson var á 1:32,20 klst. Óskum við þeim öllum til hamingju með árangurinn.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ingólfur sigraði í haustþoninu

Skipulag næstu vikna

Næstu vikur munum við leggja áherslu á grunnþolið. Það þýðir að hlaupin eiga að vera róleg á lágum púls. Við sleppum intervali næstu tvær vikur og að því loknu förum við að hlaupa meira fartlek líkt og síðasta haust. Einnig munum við ci. 1-2 í mánuði taka brekkuspretti í Setberginu.

Annars er frábært að sjá hversu góð mætingin hefur verið undanfarið og er sérstaklega ánægjulegt að heyra hversu margir stefna á keppni í hálfu eða heilu maraþoni að ári. Eru félagar farnir að ræða næstu utanferð : )

Um næstu helgi fer fram haustþon FM og munu nokkrir félagar keppa. Það væri gaman að sjá félaga hvetja sína liðsmenn áfram.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Skipulag næstu vikna

Frábær mæting í nýliðahóp HHFH og skipulagið næstu vikur

Stór hópur nýliða mætti á fyrstu æfinguna sína síðasta fimmtudag eða 36 manns. Hópurinn mun fylgja æfingaáæltun sem miðar að því að allir í hópnum geti hlaupið 5km eftir 10 vikur, þ.e. þeir sem mæta reglulega og hlaupa 3x í viku. Við munum jafnframt breyta skipulaginu fyrir hina hópana í vetur og vera með spretti á fimmtudögum í stað þriðjudaga þar sem það fellur betur að skipulaginu. Þær keppnir sem eru í boði eru venjulega á fimmtudögum og þá hafa félagsmenn val um keppni eða spretti þá daga.

Við stefnum að því að vera með 3 hópa í vetur því eins og gefur að skilja er erfitt að halda úti 4-5 hópum. Það er gott að fólk fari að hugsa um markmið fyrir næsta sumar og miðað við árangurinn í sumar er ljóst að margir munu geta sett markið hátt.

Þann 12. nóvember stefnum við á að halda uppskeruhátíð hlaupahópsins og biðjum við félagsmann að taka þetta kvöld frá. Stefnt er að því að vera í veislusalnum í Kaplakrika (Sjónarhóli) og eiga góða stund saman. Er óskað eftir aðilum í skemmtinefnd til að skipuleggja kvöldið.

Sjáumst á næstu æfingu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær mæting í nýliðahóp HHFH og skipulagið næstu vikur

Tímarnir í Köln

Hér eru úrslitin úr Kölnarmaraþoninu. Frábærir tímar sem félagar náðu og margir að bæta sig um fleiri mínútur þrátt fyrir mikinn hita á keppnisdag. María Kristín náði þeim árangri að vera á verðlaunapalli í sínum aldurshóp og aðrir voru einnig mjög framarlega. Í hálfu maraþoni tóku þátt 8030 karlar og 4531 konur. Í heilu maraþoni kepptu 1454 konur og 5824 karlar og er þetta með fjölmennustu hlaupum Þýskalands en mótshaldarar töluðu um að þessa helgi voru rúmlega 26.000 manns að taka þátt í hlaupum tengdum maraþonhelginni. Eru félagar í HHFH þegar farnir að ræða hlaup sem kemur til greina að keppa í á næsta ári.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Tímarnir í Köln

Frábær árangur í Köln og nýr nýliðahópur fer af stað fimmtudaginn 6. okt

Um liðna helgi tóku þátt 27 félagar í heilu eða hálfu maraþoni í Köln og er óhætt að segja að allir í hópnum hafi verið hæstánægðir með árangurinn. Hitinn fór reyndar illa í marga en allir kláruðu með glæsibrag. Of langt mál væri að telja árangur hvers og eins upp en við hvetjum félaga til að skoða úrslitin. Smelltu hér til að skoða úrslitin.

Ferðasagan verður birt síðar en á þessum tímapunkti hafa félagar slegið um sig í Köln og lagt borgina undir sig.

Þjálfarar munu taka á móti nýliðum næstkomandi fimmtudag og biðjum við félaga að láta sem flesta vita sem kunna að hafa áhuga á að mæta. Við munum hitta nýliðana í anddyri Kaplakrika og fara með þá í 10 vikna sérstaka æfingaáætlun sem miðar að því að allir getið hlaupið 5km án þess að stoppa í lok tímabilsins.

Sjáumst á næstu æfingu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd