Félagakynning

Hún skrifar bækur og hleypur, vinnur hjá Hafnarfjarðarbæ og býr nærri Kapla.  Hlauparinn Steinunn er næst á dagskrá.

Nafn: Steinunn Þorsteinsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Í Hafnarfirði.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Fyrir ári síðan – í október 2010.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Ég er styrktaraðili í líkamsræktarstöð, kíki þar við öðru hverju til að athuga hvort allt sé í order.

Á hvernig skóm hleypur þú: Ég er með tvenna skó í gangi, Nike og Asics.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Hleyp yfirleitt ekki með tónlist.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Nei, var voða duglega eina viku fyrir næstum ári síðan. Þarf að fara að taka mig á með skráninguna.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Fyrst og fremst að halda áfram að hlaupa.

Hvers vegna HHFH: Frábærir félagar og flottar fyrirmyndir.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já fyrir utan fjölskylduna, vinnuna og hlaupin nota ég tímann til að skrifa og lesa.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

3SH – kynning

Í kvöld munu félagar í 3SH kynna þríþrautina. Kynningin fram í félagsaðstöðu Sundfélags Hafnarfjarðar í Ásavallalaug og hefst klukkan 20:00.

Steinn Jóhannsson og Kristín Laufey Steinadóttir munu halda kynningu á þríþraut. Þau munu í kynningu sinni sýna búnað sem notaður er í þríþraut, fjalla um mismunandi keppnir og hvernig sé best að æfa fyrir þríþraut. Áhersla verður lögð á umfjöllun um styttri þrautir sem henta öllum.

Einnig mun Ásdís Kristjánsdóttir segja frá IronMankeppni í Flórída en þar náði hún lágmarki fyrir heimsmeistaramótið í IronMan sem verður haldið á Kona, Hawaii á næsta ári.

Léttar veitingar í boði.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við 3SH – kynning

Vetrarhlaup

Á æfingunni í gær urðum við vör við að veturinn er farinn að minna aðeins á sig.  Það var víða hálka á götum og gangstéttum, til dæmis var fljúgandi hálka í Setberginu.  Það var búið að salta í Garðabænum svo stefnan var tekin þangað.

Að hlaupa í snjó, hálku og erfiðu vetrarfæri getur verið erfitt en það er algjör óþarfi að sitja heima þó hálka sé á götum.

Við förum bara í neglda skó eða setjum á okkur gorma eða brodda.
Yaktrax gormarnir hafa reynst vel og hafa hlauparar gefið þeim bestu meðmæli.  Þeir eru öruggir og einfaldir í notkun og góður kostur í erfiðri færð.  Þeir fást m.a. í Fjallakofanum Reykjavíkurvegi og Afreksvörum Glæsibæ.  Verðið er í kring um 5.500.-

Eins eru gömlu góðu broddarnir góðir og gildir.

Sumir skóframleidndur bjóða upp á vetrarskó með nöglum.  Slíkir skór frá Asics hafa sést innan hlaupahópsins, hún Hrönn Bergþórsdóttir hefur mætt á slíkum þegar færðin hefur boðið upp á það.

Svo eru aðrir sem eru svo fótvissir að þeir þurfa hvorki gorma né neglda skó, en það er um að gera að fara varlega.

Það er því ljóst að hálka á götum þýðir ekki algjört stopp, heldur er bara smá hindrun sem lítið mál er að yfirstíga.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Félagakynning

Nú kynnumst við elítunni Auði Þorkelsdóttur sem ásamt öðrum elítum setja svo sannarlega jákvæðan og skemmtilegan svip á okkar frábæra hlaupahóp.

Nafn: Auður Þorkelsdóttir.

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Verið með frá upphafi.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Á kort í World Class.

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Kayano 17.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Jú hlusta stundum á tónlist, hlusta á það sem börnin setja í shuffelinn minn.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Ligg undir feld  eins og er og hugsa minn gang varðandi hlaupamarkmið.

Hvers vegna HHFH: Flottasta félagið og  ekki verra að það er  stutt á Krikann heiman að frá mér 🙂

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Er að reyna að myndast við að spila golf með eiginmanninum.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Vika 47

Búið er að setja inn æfingaáætlun næstu viku.  Það verður áfram unnið í þolinu og verða sprettir og brekkusprettir meðal annars á dagskránni.

Ákafinn eyskt hjá nýliðunum og til marks um það hlaupa þeir 4×9 mínútur með eins og hálfs mínútna göngu á milli, næstkomandi laugardag.  Það styttis í að þeir hlaupi 5. kílómetra í einu.

Hornið er nýtt hér á síðunni. Markmiðið er að þar verið sett inn ýmis góð ráð fyrir hlaupara, sérstaklega fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref.  Allar hugmyndir eru vel þegnar, sendið þær á hbirnir(at)gmail.com.

Þetta verður frábær hlaupavika.  KOMASO.

Ljósmynd: Guðni Gíslason

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 47

Félagakynning

Það er ekki úr vegi að kynnast þjálfurunum aðeins, þeir eru í raun fólkið bak við tjöldin.  Við hin mætum bara á æfingarnar og látum þa teyma okkur hingað og þangað, og við bara gerum það sem okkur er sagt að gera, þurfum ekkert að hafa fyrir þessu, bara mæta og hlaupa..

Pétur er einn af stofnendum HHFH, kynnumst honum aðeins.

Nafn: Pétur Smári Sigurgeirsson

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég stofnaði hópinn ásamt ásamt Silju, Heiðu, Hrönn, Frey og Steini og hef verið með frá fyrstu æfingu.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já, ég hef stundað Boot Camp í 6 ár og fer á sundæfingar með 3SH ef ég næ að vakna en það hefur ekki gerst síðan í maí, en ég stefni að því að fara að stilla klukkuna um áramótin 🙂

Á hvernig skóm hleypur þú: Ég hef prufað nokkrar tegundir en eins og er er ég að hlaupa á skærlituðum adidas skóm eins og allir hafa tekið eftir, og líkar það mjög vel…

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Nei, ég hef aldrei vanið mig á að hlusta á tónlist, miklu skemmtilegra að tala og hlusta á hlaupafélagana nema þegar ég fer af stað með Friðleifi þá get ég hvorki talað né hlustað á hann 🙂

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já, en ég er í smá pásu núna, en kem sterkur inn eftir áramót…

Hver eru hlaupamarkmið þín: Maraþon á 2:59:59 og Laugavegurinn undir 5:30:00 og svo er stefnan að taka IronMan þegar ég verð búinn að klára þessa tíma….

Hvers vegna HHFH: Frábærir hlaupafélagar, þarf ekki að segja meira…

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaup: Nei, eins og er eru það bara hlaupin…….

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Ein athugasemd

Smart Motion

Á næstunni verður í boði Smart Motion hlaupastílsnámskeið fyrir þá sem vilja.  Nokkrir félagar okkar hafa þegar sótt slíkt og gefa því mjög góð meðmæli.

Á námskeiðinu verður kennt að :

  • Að hlaupa á léttari máta með minni áreynslu
  • Hlaupa með minna álagi á fætur, liðamót og mjóbak
  • Hlaupa með hlaupatækni sem minnkar líkur á meiðslum
  • Hlaupa, til að geta farið út að skokka þér til heilsubótar

Nánari upplýsingar var/verður félögum sendur í tölvupósti.

Við skráningu á námskeiðið fá þátttakendur sendar frekari upplýsingar, skráið ykkur með því að senda tölvupóst á Stein þjálfara.

Átt þú eftir að skrá þig í HHFH?  Endilega senda tölvupóst á Stein með upplýsingum um nafn og kennitölu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Félagakynning

Við höldum áfram að kynnast félögum okkar í hlaupahópnum.  Að þessu sinni ætlar Sunna að segja aðeins frá sér og hlaupunum sínum.

Nafn: Sunna Björg Helgadóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Dásamlega svefnbænum, Garðabæ – bænum sem við elskum að hlaupa í!

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Í byrjun maí 2011 og sé ekki eftir því.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já, ég æfi sund 2x í viku með 3SH og svo reyni ég að hjóla inn á milli. Stefni á keppni í þríþraut á komandi ári.

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Gel Kayano 17

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Þegar ég hleyp með HHFH þá hlusta ég á skemmtilegu sögurnar sem Elíturnar hafa að segja 🙂 en ef ég fer ein þá hlusta ég á tónlist. Nýjustu albúmin á iPodnum eru Florence and the Machine, Of monsters and Men, Mugison & GusGus.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já ég skrái alla mína hreyfingu inn á hlaup.com – æðisleg síða fyrir tölfræðinörda eins og mig 😉

Hver eru hlaupamarkmið þín: Aðalhlaupamarkmiðin mín eru að njóta þess að hlaupa og draumamarkmiðið væri að fara 1/2 maraþon undir 2 klst.

Hvers vegna HHFH: …afþví að „skokkhópur“ Garðabæjar var ekki fyrir byrjendur 🙂

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaup? Já, fjölskyldan mín og vinir eru vissulega áhugamál mín og það er sér kapítuli útaf fyrir sig að fylgjast með tveggja ára snót vaxa úr grasi – alltaf eitthvað nýtt að gerast 🙂 En svo fyrir utan hlaupin og þríþrautina þá elska ég að svífa um á snjóbretti, ferðast, hlusta á og uppgötva nýja tónlist, fara á góða tónleika, versla mér föt og eyða peningum $$$ 😉

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Uppskeruhátíðardagur

Í gær fór fram uppskeruhátíð hlaupahópsins.  Í raun má segja að allur dagurinn hafi verið undirlagður því um morgunin hlupu félagar í ýmsum búningum.

Veðrið var upp á sitt besta og höfðu allir gaman af.  Lagt var af stað að venju frá Suðurbæjarlaug og hlaupið um bæinn.  Vakti uppátækið athygli, því bílstjórar og gangandi vegfarendur stoppuðu og fylgdust með og skemmtu sér yfir uppátæki hlaupafólksins.

Um kvöldið var svo sjálf uppskeruhátíðn.  Það var glimrandi góð þátttaka um 120 manns mætti og skemmti sér vel.  Frábær matur var snæddur og svo tóku skemmtiatrið við.  Guðni Gíslason fór yfir starf hópsins frá upphafi í máli og myndum og Elíturnar komu sáu og sigruðu með uppátæki sínu

Veittar voru viðurkenningar og hlutu þau Friðleifur Friðleifsson og María Kristín Gröndal viðurkenningu fyrir bestan árangur kvenna og karla.  Auður Þorkelsdóttir og Heiðar Birnir Kristjánsson hlutu viðurkenningu fyrir mestu framfarir á árinu.

Á myndinni eru tveir af þjálfurum hópsins, Steinn Jóhannsson og Pétur Smári Sigurgeirsson ásamt þeim Heiðari, Auði, Friðleifi og Maríu Kristínu.

Búið er að setja inn æfingaáætlun fyrir næstu viku.  Nú verða tröppur fyrir fótum okkar.  Nýliðarnir halda sínu striki.

Ljósmynd efri.  Guðni Gíslason
Ljósmynd neðri Egill Ingi Jónsson.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Uppskeruhátíðardagur

Félagakynning

Með hverjum erum við að hlaupa?  Í svona stórum hópi þekkjast náttúrulega ekki allir.  Við könnumst við andlitin og kinkum kolli þegar við hittumst í búðinni eða úti á götu; júbb, þetta er …hún… eða hann … úr hlaupahópnum mínum.

Því er ekki úr vegi að kynnast aðeins þessu frábæra fólki sem tilheyrir okkar skemmtilega hlaupahóp.  Það er elítan, Anna Eðvaldsdóttir, kynnir sig fyrst allra.

Nafn: Anna Eðvaldsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Ég bý í hinum dásamlega bæ Hafnarfirði (mér finnst eiginlega að við ættum að kalla Hafnarfjörð borg!)

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég fór á stofnhlaupaæfingu með HHFH og hef hlaupið 3-4x í viku síðan þá eða í janúar 2009.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Ég er í TRX 1x í viku og svo göngum við hjónakornin mikið. Það má segja að ég hreyfi mig markvisst 5x í viku.

Á hvernig skóm hleypur þú: Ég hleyp í Asics gel Nimbus 13 og er alsæl með þá.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur, og þá hvernig tónlist: Já ég hlusta á Ipodinn minn stuð lög úr hinum ýmsu áttum.  Svo finnst mér líka gaman að hlusta á þætti í Útvarpinu þegar ég hleyp, þar eru oft alveg frábær gömul og góð lög.

Skráir þú hreyfingu þín á hlaup.com: Já ég skrái hlaupin mín og alla hreyfingu á Hlaup.com

Hver eru hlaupamarkmið þín: Markmið mitt er að halda mér í góðu formi alla tíð. og ekki væri nú verra að ná 1/2marathoni á undir 2 klst Hver veit nema að það takist á gamals aldri.

Hvers vegna HHFH: Hversvegna HHFH !!! Annað kæmi bara aldrei til greina!! Hópurinn er alveg einstakur. Mórallinn til fyrirmyndar. Maður hættir ekki í fjölskyldunni sinni.  HHFH er einn hluti af fjölskyldunni minni.

Og svo að lokum.  Áttu þér einhver önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Önnur áhugamál hmm… vinnan mín er auðvitað áhugamálið mitt líka. Ljósmóðir af lífi og sál:-) En útivera og allar íþróttir , ekki hvað síst skíðaíþróttin er mér ofarlega í huga Ég fylgist vel með nánast öllum íþróttum . Strákarnir mínir allir 4 hafa æft skíði  og frjálsar þessvegna er áhugasvið mitt kannski svolítið þar. Svo fékk ég  knattspyrnuáhugann í vöggugjöf þessvegna finnst mér alltaf gaman að horfa á leiki , ekki hvað síst þegar bræðrabörnin eru að spila. Ég sem hélt að ég hefði ekki önnur áhugamál ég veit bara ekki hvar ég á að stoppa 😉 Væri kannski ágætt að bæta 4klst við sólarhringinn  🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning