Félagakynning

Hún hleypur um götur Hafnarfjarðar, en þegar hún er ekki að því verða fjöll undir skónum hennar.

Nafn: Sesselja Hreinsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Í Hafnarfirðnum

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég byrjaði í október 2010 og sé ekki efir því, frábær hópur.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já já t.d. fer á fjöll búin með 42 stk þetta árið 🙂

Á hvernig skóm hleypur þú: Mjög góðum Nike skóm, made in China

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Gerði það fyrst og þá þann besta í bransanum Pál Óskar 🙂 en nú masa ég útí eitt við þetta frábæra fólk sem hleypur með mér.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Nei er því miður komin uppá lagið með það.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Það væri gaman að geta farið einhverntíma hálft maraþon.

Hvers vegna HHFH: Bý við hliðina á Kapla og FH er mitt félag.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin:
Já, fjallamennskuna og svo elska ég að baka og elda góðan mat 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Fatnaður í vetrarhlaupin – Kaldárhlaupið

Hver er rétti eða besti klæðnaðurinn þegar hlaupið er úti í kulda?

Við þessari spurningu eru mörg svör og sitt sýnist hverjum.  Hér koma smá ráðlegginargar sem hægt er að styðjast við.

Það er auðvelt að klæða kuldann af sér, en ekki er gott að klæða sig í öll föt sem til eru og fara þannig út að hlaupa því strax á fyrstu skrefum verður manni óbærilega heitt og gamanið hverfur fljótt.

Gott er að vera í dry-fit bol næst sér, því næst þunnum langerma ullarbol frá til dæmis frá  Cintamani, eða þunnri flíspeysu, og að endingu hlaupajakkanum.  Ég er í  Craft hlaupajakka, sem er vindheldur að framan og andar vel á bakinu.  Buxurnar sem ég nota eru í þykkara lagi, með flísáferð, vindheldar að framan en anda vel, sérstaklega að aftan.  Alveg fyrirtaks buxur frá Craft.  Ég hef prófað að vera í síðum nærbuxum innanundir, en oftast verður mér allt of heitt.

Til að stjórna hitanum betur er ég með húfu á hausnum og í vettlingum sem ég fer svo úr ef hitinn verður óbærilegur.  Eins er gott að vera með buff um hálsinn.

Bómullarflíkur eru afleitur kostur bæði sem nærföt eða eitthvað annað.

Niðurstaða:  Lang best er að klæða sig ekki of mikið, því um leið og maður fer að hreyfa sig fer allt kerfið af stað og framleiðir nægilega orku til að halda á manni hita.

Endilega leggið til málanna hvernig ykkur finnst best að klæða af ykkur veturinn.  Þetta er alls ekki heilagur sannleikur, allar tillögur eru vel þegnar.

Kaldárhlaupið
Kalárhlaupið fer fram næstkomandi sunnudag.  Hægt er að skrá sig á Hlaup.is.  Munið að skrá Hlaupahóp FH sem skokkhóp ykkar.  Veðurspáin fyrir sunnudaginn er góð; lítilsháttar snjókoma, -2°c frost og örlítill vindur (meðvindur).

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fatnaður í vetrarhlaupin – Kaldárhlaupið

Félagakynning

Hlaupahópur FH er fyrir alla og alla aldurshópa, enda er aldur líka afskaplega afstætt hugtak.  Félaginn sem við kynnumst í dag er 65 ára, eldhress og með mörg járn í eldinum.

Nafn:  Þorsteinn Ingimundarson

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Í hjartkæra Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég held í janúar á þessu ári sem sagt bráðum 1 ár.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já er í garpasundi SH 2svar í viku þriðjud og fimmtd. Frá 19:50-20:50 á eftir hlaupunum. Einnig sjósundi einu sinni í viku, á mánud. Kl 18.

Á hverngi skóm hleypur þú: Reebok premier road plus nr 46 hundómerkilegir, nógu
góðir fyrir gamlan kall.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Aldrei þegar ég
hleyp. Í vinnu heyrnahlífar með útvarpi, gufan útí eitt.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Því miður ekki, en stendur vonandi til bóta.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Langar í hálft maraþon

Hvers vegna HHFH: Bý í Setberginu því stutt að fara, svo er FH mitt félag.  Hafði hlaupið einn og fannst ég staðnaður.  HHFH er frábær hópur.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaup? Er í píanótímum hjá  Tónheimum.  Á stóra fjölskyldu, barnabörn sem ekki er síður áhugamál.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Vika 49

Það er óhætt að segja að það sé nóg í boði fyrir okkur í HHFH þessa vikuna.  Fyrir utan hefðbundnar æfingar, er okkur boðið í heimsókn, það eru keppnir í gangi og námskeið.

Vikuáætlunina má finna hér!

Veðrið hefur alltaf smá áhrif á mætingu á æfingar, en það er nokkuð ljóst að í hlaupahópnum eru naglar sem láta smá frost og snjó ekki á sig fá, heldur mæta og taka á því!

Nokkrir punktar næstu viku:

  • 6. desember: Æfing samkvæmt áætlun.
    Heimsókn í Fjallakofann strax eftir æfingu.  Kakó og eitthvað gott.
    Um kvöldið er SmartMotion námskeið fyrir þá sem ætla á það.
  • 8. desember: Æfing samkvæmt áætlun.
    Nýliðarnir eru að hlaupa 5 km. í fyrsta sinn án þess að stoppa og er ætlunin að allur hópurinn fylgi þeim.  Um kvöldið er þriðja Powerade hlaup vetrarins og væntanlega taka einhverjir félagar þátt.
  • 10. desember: Laugardagshlaup rólegt.
  • 11. desember: Kaldárhlaupið.  10 kílómetra hlaup frá Kaldárseli niður í miðbæ.

Munið eftir að skrá ykkur á hlaup.com.  Alltaf gaman að fylgast með æfingum sínum og sjá framfarirnar.

Þetta verður frábær vika.  KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 49

Vantar þig hlaupadót fyrir veturinn?

IronViking félagarnir þeir Steinn, Pétur, Hákon og Helgi bjóða okkur í heimsókn í höfðustöðvar IronVíking, að Hlíðasmára 2 (jarðhæð) á morgun, laugardag,  milli klukkan 15:00 og 16:31.

Kaffi og kleinur á boðstólnum.

IronViking flytur inn:
Compressport:
Kálfahlífar, Lærahlífar, Heilhlífar, Þrýstisokkar, íþróttasokkar, hlaupasokkar og hjólasokkar

SPIBelt:
Hlaupabelti með vösum fyrir smáhluti

Pearl Izumi:
Hjóla skóhlífar, Merrino ullarsokkar, húfur og vettlingar

Air GUN:
Loftbyssur og skothylki, til að pumpa í reiðhjóladekk

Elite:
Hjólatrainerar með þráðlausum watt mæli

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vantar þig hlaupadót fyrir veturinn?

Smart motion

Það voru 22 eldhressir félagar í HHFH sem mættu á Smart motion hlaupastílsnámskeiðið í fyrradag.

Það er greinilega áhugi hjá fleirum að koma á námskeið.  Því vilja þeir Smári og Haffi bjóða þeim sem ekki komust fyrradagi að koma á námskeið á sömu kjörum, hálfvirði eða 6.250 kr.   Þau sem hafa áhuga velja þá annað hvort í dag, fimmtudaginn, 1. desember eða 6. desember fyrir fyrsta hluta.

Flest þau sem mættu í fyrradag ætla síðan að koma 13. desember á annan hluta. Þau sem koma mæta í dag 1. des. eða 6. des. mæta þá einnig 13. desember. Eða til vara 15. desember.

( 1. hluti), fimmtudagur 1. desember kl. 19.30 – 21.00 í Egilshöllinni í Grafarvogi (Smári)

( 1. hluti), þriðjudagur 6. desember kl. 20.00 – 21.30 í Kórnum í Kópavogi (Haffi)

( 2. hluti), Æfingatími 13. desember kl. 20.00 – 21.30 í Kórnum í Kópavogi (Haffi og Smári)

( 2. hluti), Æfingatími 15. desember kl. 19.30 – 21.00 í Egilshöllinni í Grafarvogi (Smári)

( 3. hluti), allir velkomnir aftur næsta vor/sumar þegar brekkuhlaups æfingum hefur verið bætt við.

Sendið póst á smari(hjá)smartmotion.is til að skrá ykkur.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Smart motion

Jólakakó í Fjallakofanum þriðjudaginn 6. des

Þriðjudaginn 6. desember n.k. kl. 18.30 (eða strax eftir æfingu) býður
Fjallakofinn Hlaupahópi FH í jólakakó og með því.

Allar vörur verslunarinnar verða í boði  með  20% afslætti!

Meða annars munu starfsmenn Fjallakofans kynna eftirfarandi:

Og margt fleira spennandi.

Að auki býður Fjallakofinn hlaupafélögum í FH 20% afslátt af Yaktrax hálkugormunum (ekki bara þetta kvöld).

Fjallakofinn á facebook og Fjallakofinn.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Jólakakó í Fjallakofanum þriðjudaginn 6. des

Félagakynning

Nýjasti þjálfari hópsins er næst á dagskrá.  Hún gefur ekki þumlung eftir og heldur uppi járnaga á æfingum.  Svo kann hún líka að flauta 🙂

Nafn: Hrönn Árnadóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Í stórborginni Hafnarfirði og vil sko hvergi annars staðar vera 🙂

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Í byrjun maí 2011

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já ég syndi og fer í spinning og stöðvaþjálfun í Hress. Svo er ég alltaf að reyna að koma mér betur inn í þríþrautina hjá 3SH en ég þarf víst að fá mér alvöru hjól fyrst.

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Nimbus 13 (Lightning)

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Áður en ég byrjaði í hlaupahóp FH komst ég ekki 500m nema hafa einhverja góða popptónlist í eyrunum en núna hleyp ég nánast alltaf án tónlistar – það er bara miklu skemmtilegra að spjalla við allt þetta frábæra fólk á hlaupunum….þó svo það geti stundum verið svolítið erfitt þegar við erum að taka vel á því.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Ég var alveg rosalega dugleg í sumar en eftir að ég veiktist datt það alveg niður en ég er að byrja aftur núna svo félagarnir í ungliðahreyfingunni geti séð hversu vel þeir taka á því 🙂

Hver eru hlaupamarkmið þín: Þar sem ég missti af keppnishlaupum í sumar þá hef ég ákveðið að mitt markmið fyrir hlaupaárið 2012 verði að fara 1/2 maraþon á undir 2 klst og ekki væri verra ef ég gæti pressað 10 km undir 55 mín…..ó nei þetta er orðið opinberlegt – jækst! :-O

Hvers vegna HHFH: Ég þjálfaði Helgu Rut dóttur Steins og Súsönnu í 4 ár í SH og frá því HHFH var stofnaður hefur Steinn beðið mig um að kíkja á æfingu – ég lét loksins verða af því síðastliðið vor – sé svo sannarlega ekki eftir því!

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já ég er svolítið ofvirk en ásamt því að vera í hlaupahópnum starfa ég í lífeyrisjóði, er í námi og þjálfa litlar skvísur í 6. flokki kvenna í handbolta í FH. Íþróttir í heild sinni eru samt aðaláhugamálið og allt sem viðkemur líkamlegu hreysti vekur áhuga minn. En ég reyni að slaka á inn á milli og því hef ég alltaf að hafa að minnsta kosti eina bók á náttborðinu og svo vissulega reyni ég eftir fremsta megni að sinna fjölskyldu og vinum 😉

KOMASO!!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Vika 48

Búið er að setja inn æfingaáætlun vikunnar.  Samkvæmt veðurspám er búist við almennilegum vetri næstu daga, klæðum okkur eftir veðri.

Á morgun, þriðjudag, fer fram SmartMotion hlaupastílsnámskeiðið.  Það er ljómandi góð þátttaka og verður gaman að heyra hvernig til tekst.

Þetta verður eðal flott vika.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 48

Meira um endurskinsmerki og hálkugorma

Það er ekki úr vegi að hamra dálítið á því hvernig best er fyrir okkur hlaupara að haga okkur í umferðinni. 

Endurskinsmerki
Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þessa vegna er notkun endurskinmerkja nauðsynleg. Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur þeim mun meira er öryggi þeirra síðarnefndu í umferðinni.  Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerka skilið milli lífs og dauða. (af vef Umferðastofu)

Með umferð eða á móti
Þegar við neyðumst til að hlaupa á götum er oftar en ekki öruggara að hlaupa á móti umferð.  Þá erum við sjálf við stjórnvölinn og getum fylgst með umferðinni og brugðist fljótt við ef við verðum vör við að ökumaðurinn sjái okkur ekki.  Við vitum að það getur verið erfitt fyrir bílstjóra að sjá gangandi vegfarendur og hlaupara – þó svo þeir séu í endurskinsvestum.

Úr einu í annað.

Hálkugormarnir
Félagi Guðni setti síg í samband við Halldór, eiganda Fjallakofans.  Hann býður okkur, félögum í Hlaupahópi FH,  20% afslátt af YaktraxPRO hálkugomunum.  Verslum í heimabyggð 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Meira um endurskinsmerki og hálkugorma