MÍ öldunga

Um næstu helgi, 14 -15 janúar, verður MÍ öldunga haldið í Laugardalshöll. Keppt verður í eftirtöldum greimum:

Laugardagur:  60 m, 200 m, 800 m, kúluvarpi, langstökki og hástökki.

Sunnudagur:  60 m grind, 400 m, 3000 m, þrístökki, stangarstökki og lóðkasti.

Keppnin hefst báða dagana kl 10:30. Aldursflokkaskiptingin er:

Konur: 30-34, 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri
Karlar
: 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri

Keppendur raðast í aldursflokka miðað við afmælisdag en ekki fæðingarár samkvæmt reglum Evrópusambands öldunga, EVAA.

Hér má nálgast tímaseðil mótsins.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við MÍ öldunga

Það fellur ekki niður æfing hjá HHFH

Það fellur ekki niður æfing hjá Hlaupahópi FH vegna veðurs, það sannaðist í dag.  Það var ekki mjög spennandi veðrið – en þeir hörðust létu það ekki á sig fá heldur mættu á æfingu.  Steinn þjálfari skrifaði  á hlaup.com:  Um Setbergið í bjáluðu veðri og leiðindafærð.  Aðeins þeir hörðustu mættu í dag á æfingu.

En margir félagar notfærðu sér hlaupabrettin í líkamsræktarstöðvunum á meðan aðrir gerðu ekki neitt.

Smá fróðleikur í Hornið;

RODALON
Æfingafötin sem við klæðumst eru vel flest úr gerviefnum.  Við notkun festist í þeim vond lykt sem getur verið erfitt, jafnvel ómögulegt, að ná úr í venjulegum þvotti.

Eftir því sem ég kemst næst þá er Rodalon eina svarið við þessu.
Rodalon, sótthreinsar, drepur bakteríur og eyðir vondri lykt úr hlaupaskóm og íþróttafatnaði.

Efnið er blandað, samkvæmt leiðbeiningum og eru flíkurnar látnar liggja í blöndunni í 30 mínútur.  Efir það eru þær þvegnar í þvottavél.

Rodalon er einnig hægt að setja á spreybrúsa og úða með honum skóna.  Það steindrepur slæma lykt sem getur myndast þar.

Rodalon fæst m.a. hjá Eiberg Stórhöfða, Afreksvörum Glæsibæ og Apótekum.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Það fellur ekki niður æfing hjá HHFH

VIKA 2 – Atlantsolíuhlaup FH og þorrablót Frjálsíþróttadeildar

HLÁKA
Hláka setti stirk í reikninginn hjá hlaupurum um helgina, en þeir alhörðust létu það ekki á sig fá heldur stukku á milli polla, skautuðu á svelli og hlupu á auðum götum þar sem það var hægt. 

HLAUPASERÍA ATLANTSOLÍU OG FH
Hlaupasería Atlantsolíu og FH fer af stað nú í janúar.  Um er að ræða þrjú hlaup sem fara fram  síðasta fimmtudag í mánuði.  Fyrsta hlaupið er fimmtudaginn 26. nk.  Leiðin er sú sama  og í fyrra, 5 kílómetrar.  Ræst við höfðustöðvar Atlantsolíu við Lónsbraut í Hafnarfirði, hlaupið meðfram ströndinni að Sundhöll Hafnarfarðar, þar sem snúið er við og hlaupin sama leið til baka.  Ræst er klukkan 19:00

Keppt verður í efirfarandi flokkum karla og kvenna:  14 ára og yngri, 15-29 ára, 30-39, 40-49, 50-59 og 60 ára og eldri.  Ekki verða veitt verðlaun fyrir hvert hlaup heldur samanlagðan árangur.

ÞORRABLÓT
Líkt og í fyrra ætlum við að halda þorrablót með Frjálsíþróttadeildinni.  Það verður  þann 28. janúar og verður í Sjónarhól, Kaplakrika.  Verðinu verður stillt í hóf.  Nánari upplýsingar koma síðar en það er um að gera að taka daginn frá.

ÆFINGAÁÆTLUN
Æfingaáætlun vikunnar birtist hér.  Það er útlit fyrir gormahlaup í vikunni.

SMÁ ÚTLITSBREYTINGAR Á SÍÐUNNI
Eins og lesendur hafa tekið eftir þá er búið að uppfæra “haus” myndirnar á heimasíðunni.  Guðni Gíslason, félagi okkar á heiðurinn af myndunum og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. 

Á Facebook síðu hópsins er að finna fullt af myndum úr starfi hópsins. 

KOMASO …

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 2 – Atlantsolíuhlaup FH og þorrablót Frjálsíþróttadeildar

Ullarpils á hlaupum


Hér er uppskrift að ullarpilsi  frá Önnu Eðvalds – en hún og Elsa hafa einmitt skartað ullarpilsum á hlaupaæfingum upp á síðkastið og eru án efa öfundaðar af mörgum.  Að sögn Önnu er Léttlopi flottur til að hlaupa í 🙂  og til þess að “stelpur séu brosandi á hlaupum í mega frosti” þá er bara að prjóna sér pils 🙂

Efni:
Léttlopi – 50 gr dokkur
Hringprjónn nr 4 ½, 60 eða 80 cm

PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 18 L og 24 umf slétt prjón á prjóna nr 4 ½.  Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf.

AÐFERÐ
Pilsið er prjónað neðan frá og upp.  Í mitti er stroffið þrengt og síðan víkkað aftur.  Hægt er að hafa stroffið í mittið stutt eða langt og þá er annað hvort brett niður eða látið liggja upp bolinn.  Hægt er að leika sér með lengdina á því og láta það jafnvel ná upp undir handarkrika.  Mikilvægt er að nota Silfurfit eða aðra sterka uppfit svo uppfitin slitni ekki við notkun á pilsinu.  Pilsið er frekar þröngt og stutt og nær rétt niður yfir rasskinnar en auðvelt er að hafa það síðara.

PILS
Fitjið upp 144 (162, 180, 198, 216) L á prj nr 4 ½.  Tengið í hring og prj stroff *3 L sl, 3 L br* , alls 3 (4, 4, 4, 5) cm (sjá fyrstu þrjár umf í munstri).  Prj fyrri hluta munsturs skv teikn. Prj slétt, alls 13 (14, 14, 15, 15) cm eða lengra ef pilsið að að vera síðara.  Prj seinni hluta munstursins.  Prj stroff *3 L br, 3 L sl*, alls 3 (4, 4, 4, 5) cm (sjá síðustu 3 umf í munstri).  Næsta umf (úrtaka): *Prj 1 L br og 2 L br saman, 3 L sl*. Ent frá * til * út umf => 120 (135, 150, 165, 180) L. Prj áfram stroffmunstur, 2 L br, 3 L sl, alls 5 umf.  Næsta umf (gataumf):  Bakkið um eina L *Prj 2 L sl saman til vinstri, sláið tvisvar upp á prjóninn, prj 2 L sl saman til hægri, 1 L sl* (br L eru prj saman með sl L).  Ent frá * til * út umf.  Næsta umf:  Prj slétt í sléttar L og prj 1 sl og 1 L pr í uppsláttarbandið frá fyrri umf.  Prj áfram stroffmunstur, *2 L br, 3 L sl* alls 5 umf.  Næsta umf (útaukning:  * Prj 1 L br, aukið út um 1 L, prj 1 L br, prj 3 L sl, *.  Ent frá * til * út umf => 144 (162, 180, 198, 216) L.  Prj áfram stroffmunstur, *3 L br, 3 L sl*, alls 5 cm frá gataumferð fyrir stutt stroff eða 12 (12, 14, 14, 16) cm fyrir langt stroff eða lengra ef vill.

STÆRÐIR
Yfirvídd mjaðmir /
sídd frá mitti      XS/80/30  (S/90/33 – M/100/33 – L/110/34 – XL/120/36) cm

FRÁGANGUR  Gangið frá endum.  Skolið úr pilsinu og leggið til þerris.  Þræðið teygju eða band í mittið.

Hönnun:  Hulda Hákonardóttir

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

VIKA 1

Árið 2012 heilsar með frosti og fallegu veðri.  Þjálfararnir hafa sett inn æfingaáætlun vikunnar.  Miðað við verðurspána þá verður frost þessa vikuna og því um að gera að búa sig vel og gormarnir geta svo sannarlega komið að góðum notum.

Þó nokkrir félagar okkar tóku þátt í Gamárshlaupi ÍR, úrslitin má nálgast hér.

Félagi okkar, Elín Sigurðardóttir, sem á og rekur fyritækið elin.is býður okkur félögum HHFH í prufutíma í TRX / Rope Yoga næstkomandi miðvikudag, 4. janúar klukkan 17:00, að Bæjarhrauni 2. önnur hæð.  Hafa með sér hreina sko, handklæði og vatnsbrúsa.

Þar sem einungis 17 manns komast að verður fólk að skrá sig, annað hvort með því að senda sms 696-4419, tölvupósti á elin(a)elin.is – nú eða á facebook síðu Elínar.

Nokkrir félagar í hlaupahópnum hafa nú þegar sótt slík námskeið og láta vel af.

Örlítið um TRX:
Þar sem TRX æfingakerfið er notað í stað lóða eða tækja og unnið með þína líkamsþyngd til að hámarka árangur og virkja og styrkja vöðva.

Við notum nálgun sem kallar á jafnvægi og vitund. Við notum þá mótstöðu sem henntar til að styrkja vöðva , auka snerpu, brennslu, sveijanleika og úthald.

Hvort sem þú ert byrjandi eða íþróttamaður í toppformi þá eru Rope Yoga – TRX fyrir þig. Allir ráða við sömu æfingar þar sem hæglega má stjórna álagi æfinga eftir hverjum og einum.

KOMASO …

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 1

Vika 52

Nú er síðasta vika ársins runnin upp og síðasta æfingaáætlun ársins litið dagsins ljós

Á Gamlársdag er hið árlega Gamlárshlaup ÍR, væntanlega ætla einhverjir félagar okkar að taka þátt í því.  Í ár verður hlaupin ný leið.

Eins verður Skokkhópur Hauka með sitt Áramótahlaup,  Ræst verður frá Ásvöllum klukkan 10:30 á Gamlársdag og hlaupnir eru 10 klílómetrar.  Hægt er að skrá sig hér.

Um áramót er ekki úr vegi að setja sér markmið fyrir komandi ár.  Markmiðin geta verið af ýmsum toga,  taka þátt í keppnishlaupi, bæta tíma sinn í ákveðnum vegalendgum, hlaupa í fyrsta skipti hálft eða heilt maraþon, nú eða hlaupa fleiri kílómetra á árinu 2012 en 2011. 

Fyrir marga félaga hlaupahópsins stendur ferðin til Kölnar uppúr sem hátindur hlaupaársins og ef satt skal segja þá höfðum við sem heima sátu einnig mikið gaman af og fylgdust spennt með árangri félaga okkar á götum Þýsku borgarinnar.

Árið 2011 var gott ár – árið 2012 verður án efa frábært.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Félagakynning

Hún er ein af þjálfurum og stofnendum Hlaupahóps FH.  Bauð okkur í heitt súkkulaði og smákökur eftir jólaljósahlaupið og er prímusmótor par exelans.

Nafn: Hrönn BergþórsdóttirHrönn Bergþórsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Ég er algjör Hafnfirðingur í húð og hár og allt mitt fólk og hef alltaf búið þar utan nokkur menntaskólaár er ég bjó á Laugarvatni.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: 19. janúar 2010 – því ég er einn af stofnendum hlaupahópsins með þeim Pétri, Frey Silju og Steini.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já fyrir utan að hlaupa hef ég mjög gaman að göngum og  hef aldeilis skottast um hérlendis sem erlendis svo stunda ég líka styrktaræfingar innanhúss yfir vetrartímann.

Á hverngi skóm hleypur þú: Nimbus Asics hef ég notað í mörg ár en er farin að huga að því að prófa eitthvað nýtt.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Já ef ég hleyp ein þá hlusta ég mikið á tónlist, allt mögulegt sem kemur mér í gírinn t.d. finnst mér ágætt að hlaupa með   Pink  í eyrunum og rokktónlist.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já, oftast skrái ég hreyfinguna þar inn en hef verið í smá pásu með skráningar eftir maraþonið í Köln en stefni á að byrja aftur af krafti um áramótin.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Hmm ég er enn að hugsa um hlaupamarkmiðin mín fyrir næsta ár og gef þau ekki upp fyrr en um áramótin.

Hvers vegna HHFH: Einfaldlega frábær hópur og góðir félagar sem maður hefur verið að kynnast þar.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Önnur áhugamál en hlaup..játs! ferðast um heiminn hlaupandi, gangandi eða hvað. Ég elska að eiga lausa stund til að lesa góðar bækur og hlusta á tónlist. Síðan á sístækkandi fjölskyldan mín hug minn og svo er ég alltaf komin á kaf í allskonar félagsmálastúss svo mér hlýtur að finnast það gaman. Það má segja að ég sé frekar uppátektasöm ætli ég sé ekki bara þessi dæmigerði tvíburi alltaf opin fyrir nýjum hugmyndum og til í að hafa gaman enda er mottóið mitt “ég get allt sem ég vil”..

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Ein athugasemd

Vika 51

Jæja, þá er næst síðasta vika ársins runnin upp.  Þrátt fyrir annríki eru æfingar á sínum stað og gott að mæta á þær þegar mikið er að gera, hlaupa dálítið og hreinsa þannig hugann.  Búið er að setja inn áætlun vikunnar, þar er að finna Jólaljósahlaupið okkar og … æfingu á aðfangadag.  En vikan er létt, þar sem flestir eru á fullu í jólaundirbúningi.

Félagar eru minntir á að skrá öll hlaup sín og hreyfingu á hlaup.com.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 51

Jólaljósahlaupið

Næstkomandi fimmtudag, 22. desember, á síðustu æfingu fyrir jól ætlum við að breyta aðeins til og hlaupa hið árlega Jólaljósahlaup Hlaupahóps FH.

Mæting: Suðurbæjarlaug kl. 17:30

Galli: Rautt þema og laglingur, lasveinahúfur og laskraut

Hlaupaleið: Allir hlaupa saman um bæinn og skoða falleg jólaljós

Hressing: Jóla-Hrönn Bé. býður heim í heitt súkkulaði, smákökur og eitthvað “gott í kroppinn” sem yljar innvortis

Staður: Suðurgata 92, niðri (á móti Suðurbæjarlaug)

Að lokum: farið í pottinn í lauginni á eftir… það yljar útvortis

Mottó: Þröngt mega sáttir sitja…

Jólaso …

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Jólaljósahlaupið

Kaldárhlaupið

Kaldárhlaupið fór fram í annað sinn í gær í ágætis veðri – en færið var frekar þungt.  Nokkrir félagar úr HHFH tóku þátt og stóðu sig mjög vel.  Fyrst ber að telja Þórdísi Jónu Hrafnkelsdóttur en hún sigraði í kvennaflokki á tímanum 49:43.  Óskum við henni til hamingju með sigurinn.  Tímar annarra félaga eru sem hér segir:

7     43:21    Vilhjálmur Kári Haraldsson
8     44:45    Ingólfur Örn Arnarsson
12    49:14    Sveinbjörn Sigurðsson
13    49:43    Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
16    51:21    Kristín Högnadóttir
17    51:43    Ingvar Stefánsson
19    53:36    Áki Árnason
20    53:41    Finnur Sveinsson
21    55:47    Þórhildur Höskuldsdóttir
23    58:21    Carola Mareno Frank
25    59:23    Guðrún Reynisdóttir
26    59:57    Elsa S. Þorvaldsdóttir
27    59:58    Anna J. Eðvaldsdóttir
31    62:21    Erna Björk Hjaltadóttir
33    63:34    Ragnhildur Aðalsteinsdóttir

Hér má sjá úrslitin í hlaupinu, og á Hlaup.is er hægt að skoða myndir frá því.

Æfingaáætlun fyrir viku 50 er hér.

Ljósmynd: Fjarðarpósturinn /GG

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Keppnir | Slökkt á athugasemdum við Kaldárhlaupið