Félagakynning

Félag vikunnar, og sá tólfti í röðinni er Gísli hennar Önnu Eðvalds.

Nafn: Gísli Ágúst Guðmundsson

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Þann 19. janúar 2010

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Ég hef stundað fjallgöngur og skíði nokkuð reglulega.  Og svo  TRX styrktaræfingar hjá Elínu síðustu tvo mánuði.

Á hvernig skóm hleypur þú: Núna er ég á Asics Gel Kinsei sem mér áskotnuðust og svo á ég líka Brooks Ghost 4 sem ég ætla að prófa í styttri vegalengdunum.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Ég hleyp nær eingöngu í félagsskap og þá líkar mér betur samræður.  Félagi Svenni var til að byrja með í eyrunum en hætti því alveg eftir skondna uppákomu.  Upp frá því fékk tiltekið strætóskýli uppnefnið „Gíslastaðir“.  Þar teygjum við  stundum.   Annars gaf Anna mér nýlega pínulítinn Ipod sem ég er að hlaða inn á föstudagskvöldsstuðlögum og hlaupatöktum.  Aldrei að vita nema ég fari þá að hlaupa einn.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já, já.

Hver eru hlaupamarkmið þín: 5km á 23mín, 10km á 47mín og ½ maraþon á 1:46.

Hvers vegna HHFH: Þar á ég bara svo fína hlaupafélaga og ekki skaðar að ég hef tengst FH nokkuð í gegnum tíðina.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Skíði, skíði, skíði, útivist, ferðalög, jarðfræði, föndur, smíði, garðrækt og m.fl.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

VIKA 5

Allur snjór og klaki lét undan um helgina.  Gangstéttir og göngustígar eru nú að mestu marauðir og góðir til hlaupa.

Veðurspá næstu viku er okkur hlaupurum sæmilega hagstæð, a.m.k. er er ekki mikil ofankoma í kortunum, sem er sérlega gott.

Í Hornið okkar er búið að koma fyrir pace – töflu.  Þar er hægt að sjá á hvaða pace þarf að hlaupa til að ná ákveðnum tíma.

Vikuáætlunina er hægt að nálgast hér.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 5

Fyrsta keppnishlaupið í hlaupaseríu Atlantsolíu og FH

Fimmtudaginn 26. jan fór fram fyrsta keppnishlaupið í hlaupaseríu Atlantsolíu og FH. Útlit var fyrir brjálað veður en úr rættist og var veður stillt en kalt. Hlaupaleiðin var erfið yfirferðar þrátt fyrir að búið væri að skafa leiðina en við svona hlutum er að búast þegar við búum á Íslandi. Samtals tóku þátt 95 hlauparar, þ.a. 65 karlar og 30 konur.

Í karlaflokki sigraði Hákon Hrafn Sigurðsson, 3SH á tímanum 18,48 mín. og í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, á tímanum 20,40 mín. en hún sigraði í stigakeppni seríunnar síðasta vetur og greinilegt að hún kann vel við sig að hlaupa í Hafnarfirði. Heildarúrslit má finna undir Úrslit hér á síðunni. Þess má geta að við röðun í aldursflokka ræður fæðingarár en ekki afmælisdagur á árinu.

Hlauphaldarar vilja þakka öllum fyrir sem mættu og sjáumst hress í næsta hlaupi.

Fyrstu 10 karlar voru:

Tími mín Nafn Félag/Hlaupahópur Flokkur
18,48 Hákon Hrafn Sigurðsson 3SH 30-39 ára
18,51 Friðleifur Friðleifsson HHFH 40-49 ára
19,19 Stefán Guðmundsson Team Craft / 3SH 15-29 ára
19,25 Ívar Jósafatsson Árbæjarskokk 50-59 ára
19,44 Ragnar Bjarkan Pálsson ÍR 40-49 ára
19,50 Bjartmar Birgisson ÍR 40-49 ára
19,54 Sigurþór Einar Halldórsson HHFH 30-39 ára
19,57 Rúnar Örn Ágústsson Ægir3þraut 15-29 ára
20,11 Sigurjón Ernir Sturluson Bootcamp Akranes 15-29 ára
20,20 Björn Traustason HHFH 40-49 ára

Fyrstu 10 konur voru:

Tími mín Nafn Félag/Hlaupahópur Flokkur
20,40 Arndís Ýr Hafþórsdóttir Fjölnir 15-29 ára
22,16 Ebba Særún Brynjarsdóttir HHFH 30-39 ára
23,30 Helga Guðný Elíasdóttir Fjölnir 15-29 ára
24,36 Þórdís Jóna Hrafnkellsdóttir HHFH 40-49 ára
25,13 Halla Björg Þorhallsdóttir Laugaskokk 30-39 ára
25,34 Þorbjörg Ósk Pétursdóttir HHFH 40-49 ára
27,48 Þórhildur Höskuldsdóttir HHFH 30-39 ára
28,09 Rúna Hauksdóttir Hvannberg TKS 50-59 ára
29,09 Irma Gná Jóngeirsdóttir 15-29 ára
29,14 Kristrún Joyce Fawcett 15-29 ára
Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fyrsta keppnishlaupið í hlaupaseríu Atlantsolíu og FH

Félagakynning

Nú kynnumst við Þórdísi.

Nafn: Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: 19. janúar 2010 – hvenær annars!

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Fjallgöngur og golf.

Á hverngi skóm hleypur þú: Eins og er hleyp ég á Brooks Glycerin 9 (með nánast áföstum gormum), Saucony fastwitch sem keppnis og innanhússkó, að ógleymdum Nike gaddaskóm árgerð 1986 sem ég dreg fram á örlagastundum eins og innanhúss öldungamótum.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Sjaldan núorðið. Ef ég er ein hleyp ég stundum með útvarpið á.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Að sjálfsögðu.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Komast undir 45 mín í 10 km og 3.30 klst í maraþoni.

Hvers vegna HHFH: Frábær félagsskapur sem er mjög hvetjandi ásamt skipulögðum æfingum.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Vinnan og golfið.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Ein athugasemd

Þorrablótið fellur niður

Vegna dræmrar þátttöku fellur þorrablótið, sem átti að vera um næstu helgi, niður.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Þorrablótið fellur niður

VIKA 4

HLAUPASERÍA ATLANTSOLÍU OG FH
Fyrsta keppnin fer fram næstkomandi fimmtudag, 26 janúar. Hlaupin eru þrjú talsins, 5. km., og eins og í fyrra er hlaupið meðfram strandlengjunni í Hafnarfirði. Ræst er fyrir utan höfuðstöðvar Atlantsolíu að Lónsbraut í Hafnarfirði.

Skráningarfyrirkomulag er það sama og í fyrra og í Powerade-hlaupunum. Hægt er að kaupa skráningarmiða frá kl. 18:00 á keppnisstað eða í forsölu í verslun TRI.is að Suðurlandsbraut 32.  Verð kr. 500. fyrir hvert hlaup.

Glæsileg verðlaun í boði fyrir sigurvegara seríunnar og þá sem sigra í aldursflokkum sem og fjöldi útdráttarverðlauna í boði á lokahófi seríunnar.

Á þriðjudagsæfingunni getum við félagar keypt okkur skráningarmiða.

Ef einhver ætlar ekki að taka þátt, en hefur tök á, er um að gera að hjálpa til við framkvæmd hlaupsins.  Öll aðstoð er vel þegin þegar hlaupið fer fram.

STJÓRN HLAUPAHÓPS FH SKIPUÐ
Í samráði við þjálfara hefur verið skipuð stjórn HHFH sem mun vera
þjálfurum til halds og trausts og hjálpa þeim að halda utan um starfið
sem fer sívaxandi.
Stjórnina skipa eftirfarandi:
Finnur Sveinsson
Sveinbjörn Sigurðsson
Þorbjörg Ósk Pétursdóttir
Fulltrúi frjálsíþróttadeildar FH og þjálfarar hópsins

Nánari upplýsingar koma síðar um það sem er helst á döfinni og hvað við
stefnum á að hafa sem aðalhlaupin okkar í sumar.

VIKUÁÆTLUNIN
Vikuáætlunin er komin á netið.  Munum að klæða okkur eftir veðri og vindum.  Ekki er ólíklegt að gormar komið að góðum notum.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 4

BS-rannsókn á hlaupurum

ÓSKAÐ EFTIR HLAUPURUM Í RANNSÓKN

Nemar í sjúkraþjálfun eru að gera BS-rannsókn á hlaupurum sem snýst um að mæla aftanlærisvöðvalengd hjá annarsvegar hlaupurum sem hlaupa amk. 25 km á viku, hinsvegar hlaupurum sem stunda amk. 25 km hlaup á viku ásamt því að stunda yoga 1-2x í viku.

Skilyrði fyrir þáttöku í rannsókninni er að vera kona á aldrinum 30 – 45 ára og hafa ekki lent í meiðslum aftan á læri síðustu 6 mánuði.

Þær sem hafa áhuga mega endilega senda póst á bs2012hi@gmail.com

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Félagakynning

Þá tökum við upp þráðinn aftur frá síðasta ári og höldum áfram að kynnast félögum okkar.

Nafn: María Kristín Gröndal

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði, en er og verð alltaf Seltirningur

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Held það hafi verið í apríl 2010

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Stunda núna bara almenna líkamsrækt í Hress með og hef gert það aðeins inná milli með hlaupunum.

Á hverngi skóm hleypur þú: mmm…það er misjafnt, hleyp til skiptis í Asics Nimbus og Asics Kayano. Svo eru keppnisskórnir mínir alveg uppáhalds en þeir eru Saucony Fastwitch, hleyp líka stundum í þeim á sprettæfingum.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Nei hef ekki gert það

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com:

Hver eru hlaupamarkmið þín: Eins og er eru þau bara að koma mér aftur í form svo ég geti kannski hlaupið eitthvað af viti í sumar 🙂

Hvers vegna HHFH: Góður hópur, góðir þjálfarar og frábærir félagar 🙂

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Jájá, öll hreyfing og heilsusamlegt líferni er mér mjög kært. Einnig fjölskyldan og stelpurnar mínar tvær. Mér finnst líka ofsalega gaman að hafa fínt í kringum mig og spá og spekúlera, svo ég verð eiginlega að segja að það sé áhugamál útaf fyrir sig 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Þorrablót Frjálsíþróttadeildar og Hlaupahóps FH – Reykjavíkurmaraþon 2012

ÞORRABLÓT FRJÁLSÍÞRÓTTADEILDAR OG HLAUPAHÓPS
Þorrablótið verður haldið 28. janúar næstkomandi í Sjónarhól – Kaplakrika og hefst klukkan 20:00

Skráning fer fram á netfangið siggih@hafnarfjordur.is
og lýkur skráningu mánudaginn 23. janúar.

Verð kr. 4.000.-

Miðaverð skal greitt inn á reikning 0327-26-9031 kt. 681189-1229

Áríðandi er að þeir sem skrái sig greiði og staðfesti sem fyrst, svo að hægt sé að staðfesta pöntun á mat.

Aldurstakmark 18 ár.
Á boðstólum: Þorramatur og einnig verða aðrar veitingar fyrir þá sem ekki kjósa þorramat.
Og mikið stuð … ÞORRASOOO


REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA 2012

Margir félagar í Hlaupahópi FH taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, því er ekki úr vegi að vekja athygli á því að opnað verður fyrir skráningu á morgun, 18. janúar.

Vegalengdir jan-1.apr 2.apr-1.júl 2.júl-15.ágú 17.ágúst
skrán.hátíð
         
3 km skemmtiskokk 1.500 1.500 1.700 2.000
3 km barnagjald* 1.000 1.000 1.000 1.200
10 km 3.400 4.200 5.250 6.600
21,1 km 4.200 5.250 6.300 8.300
42,2 km 5.300 7.400 9.200 11.000
Boðhlaup (2-4 saman) 13.950 17.100 22.100 26.400
         

Athugið að þátttökugjaldið fer hækkandi eftir því sem nær dregur hlaupi.
Verð miðast við einstakling nema í boðhlaupinu þar sem verð miðast við lið sem í geta verið 2-4 þátttakendur.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Þorrablót Frjálsíþróttadeildar og Hlaupahóps FH – Reykjavíkurmaraþon 2012

VIKA 3

MEISTARAMÓT ÍSLANDS
Nú um helgina fór fram Meistarmót Íslands öldunga í frjálsum íþróttum.

Þrettán félagar úr Hlaupahópi FH tóku þátt og var árangur þeirra eftirfarandi:

Pétur Smári Sigurgeirsson: gull í 60m, 200m og langstökki og brons í 400m í 40-44 ára.

Freyr Hákonarson: silfur í kúluvarpi, silfur í 200m, brons í langstökki og gull í 400m í 35-39 ára.

Jóhann Ingibersson: brons í kúluvarpi og gull í 3000m hlaupi í 50-54 ára.

Gylfi Örn Gylfason: silfur í 400m og brons í 3000m hlaupi í 35-39 ára.

Guðni Gíslason: gull í 400m, silfur í 200m, gull í langstökki í 50-54 ára.

Þórunn Unnarsdóttir: gull í 800m hlaupi í 35-39 ára.

Hrönn Árnadóttir: gull í langstökki, gull í 200m og gull í kúluvarpi í 30-34 ára.

Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir: gull í kúluvarpi, silfur í 200m, gull í 800m og gull
í 3000m hlaupi í 45-49 ára.

Björn Traustason: gull í hástökki og gull í 800m í 40-44 ára.

Helga Halldórsdóttir: gull í 200m, silfur í kúluvarpi og silfur í 800m í 45-49 ára.

Friðleifur Friðleifsson: silfur í 3000m hlaupi í 40-44 ára.

Súsanna Helgadóttir: gull í kúluvarpi og brons í langstökki í 40-44 ára.

Steinn Jóhannsson: gull í 400m, brons í kúluvarpi, brons í hástökki og
silfur í 800m í 40-44 ára.

Þess má geta að rúmlega 20 FH-ingar tóku þátt og á HHFH stóran hlut í sigrinum í stigakeppninni. Voru margir félagar að ná frábærum árangri og eru þjálfarar mjög ánægðir með árangurinn.

LAUGAVEGURINN 2012
Nokkrir félagar okkar setja stefnuna á Laugaveginn í sumar.  Það er um að gera að fara að undirbúa sig.  Laugaskokk verður með fyrirlestur um hlaupið miðvikudaginn nk. klukkan 20.00  í veitingasal Lauga.  Er fyrirlseturinn hluti af fræðslufundaröð Laugaskokks.
Skráning í hlaupið hefst 25. janúar. á netinu.

ÆFINGAÁÆTLUN VIKU 3
Æfingaáætlunin er hér.  Það er vonandi að færðin lagist í vikunni og á fimmtudag er stefnt á brekkuspretti. Þjálfarar minna jafnframt á fyrsta Atlantsolíuhlaupið sem fer fram síðasta fimmtudaginn í janúar. Eru félagar hvattir til að taka þátt

HLAUPAHÓPUR FH 2. ÁRA
Um þessar mundir á hlaupahópurinn okkar tveggja ára afmæli.  Það er ótrúega margt búið að gera á þessum stutta tíma og margir kílómetrar liggja í valnum.  Þetta er flottur hópur.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 3