VIKA 9

Atlantsolíuhlaupið, sem fram fór sl. fimmtudag, tókst með miklum ágætum.  Rétt tæplega 170 manns tók þátt og af þeim voru margir félagar hlaupahópsins.  Aðstæður voru alveg ágætar og margir að bæta sig.  Næsta hlaup, og það síðasta í seríunni að þessu sinni, fer fram 22. mars nk.

Æfingar verða með hefðbundnu sniði þessa vikuna, veðurguðirnir ætla eitthvað að stríða okkur, en við látum það ekkert á okkur fá.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 9

Hlaupasería Atlantsolíu og FH

Aðstæður voru alveg ágætar þegar annað hlaupið í Hlaupaseríu Atlantsolíu og FH fór fram nú í kvöld.  Þátttaka var mjög góð en um 170 manns tóku þátt.

Kári Steinn Karlsson – Breiðablik, sigraði með nokkrum yfirburðum á tímanum 15:03, og setti jafnframt brautarmet.  Eldra metið átti Stefán Guðmundsson, 15:24.  Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni á 18,30 sem er aðeins 3 sekúndum frá brautarmeti hennar síðan í fyrra.

Úrslitin eru hér.

Ljósmynd: Fjarðarpósturinn/Guðni Gíslason

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería Atlantsolíu og FH

Félagakynning

Hér er Finnur, hann er alltaf hress og jákvæður.

Nafn: Finnur Sveinsson

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Vorið 2010

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Hjóla stundum í vinnu, syndi, fer á skíði, spila golf og geng á fjöll

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Kayano 17 og Adidas offroad skóm þegar færið er slæmt

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Hef aldrei getað hlustað á tónlist á hlaupum.  Ég reyni stundum að hlusta á tónlist þegar ég hleyp á bretti en er yfirleitt fljótur að skipta yfir á sky news, BBC eða sambærilegt.  Yfirleitt er bara best að hlusta á félagana eða þögnina þegar ég hleyp einn.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Samviskusamlega

Hver eru hlaupamarkmið þín:
Undir 1 tíma og 50 mínútum í hálfmaraþoni og 4 tímum í maraþoni

Hvers vegna HHFH: Ég er orðin algerlega háður því að hlaupa með félögunum

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Á virkum dögum næ ég að henda í mig banana fyrir hlaup en um helgar er það yfirleitt brauðsneið, hrökkbrauð og te.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Hef mikin áhuga á umhverfismálum og svo reyni ég að halda mig úti við eins mikið og ég get.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

VIKA 8

Næstkomandi fimmtudag,  23. febrúar, verður hlaup númer 2 í hlaupaseríu Atlantsolíu og FH.  Eins og í hinum keppnunum er ræsing klukkan 19:00 fyrir framan höfðustöðvar Atlantsolíu við Lónsbraut í Hafnarfirði.  Hægt er að kaupa skráningarmiða í forsölu í Tri að Suðurlandsbraut 32 og eru keppendur hvattir til að kaupa miða þar til að forðast bið eftir miðum á keppnisdag.  En á keppnisdag er hægt að kaupa miða frá kl. 18:00.  Það er útlit fyrir gott verður og eru sem flestir hvattir til að mæta og taka þátt í skemmtilegu hlaupi.

Á þriðjudag er hefðbundin æfing hjá okkur, æfingaplanið er komið inn og hægt er að nálgast það hér.

Sem fyrr segir þá er Atlantsolíuhlaupið á fimmtudaginn, og eru þeir félagar, sem ekki ætla að keppa, hvattir til að hjálpa til við framkvæmd hlaupsins.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 8

Félagakynning

Hinn eini sanni ritstjóri er á ferðinni í dag…

Nafn: Guðni Gíslason

Í hvaða bæjarfélagi býrðu:
Hafnarfirði, hvar annars staðar?

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Fyrsta skráða æfingin mín var 23. janúar 2010, 5 km í brjáluðu roki. Sennilega erfiðasta æfingin.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já, ég er aldrei kyrr, stigar eru í uppáhaldi og svo hraunin í kringum Hafnarfjörð. Hef aldrei stundað líkamsræktarstöðvar.

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Kayano 17 sem voru að skríða yfir 1000 km og eldri Asics Nimbus 11. Þarf að fara að fá mér nýja. Svo prófaði ég takkaskóna hans Steins í 200 m hlaupi – stórbætti tímann minn 🙂

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist:
Aðeins tónlist umhverfisins. Aldrei með neitt í eyrunum.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com:
Já, alltaf.

Hver eru hlaupamarkmið þín:
Þau eru alltaf að breytast. Ég ætlaði aldrei að hlaupa 10 km og hvað þá maraþon, en er búinn að skrá mig í Berlínarmaraþonið í haust sem ég stefni á að hlaupa undir 3,30 klst. Það væri ljúft ef það tækist. Svo vill maður alltaf bæta sig í öðrum vegalengdum og næst er að bæta tímann í 5 km hlaupinu næsta fimmtudag, fara undir 22 mín. Fyrsta árið hljóp ég 465 km, annað árið hljóp ég 1242 km og nú er stefnt á enn öflugri æfingum en mér á að takast að ná markmiðum í maraþoninu. Annars er helsta markmiðið hjá mér að hafa bara gaman af þessu.

Hvers vegna HHFH: Hópurinn var eins og útrétt hönd fyrir mig eftir að hafa árangurslaust reynt að fara einn út að hlaupa. Þetta er bara svo bráðskemmtilegur hópur og ef það væri ekki fyrir skemmtilega hlaupafélaga, þá væri ég ekki að hlaupa. Ekki saka góðir og skemmtilegir þjálfarar.

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Ég er oftast illa étinn fyrir seinnipartsæfingarnar, haf aldrei náð góðum takti fyrir þær en borða bara mitt Weetabix 1,5 tímum fyrir laugardagsæfingarnar. Annars reyndist kaffið, hvíta brauðið og bananinn ágætlega fyrir hálfa maraþonið í Köln.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já, allt of mörg. Skátastarf, útivist, Rótarý, kórsöng, sjóstangaveiði, Ratleik Hafnarfjarðar, smíði, ljósmyndun og ég gæti reyndir haldið lengi áfram. Þetta kemur ofan á aðaláhugamálið, fjölskylduna, Kristjönu, sem aftur er komin á fullt í hlaupið líka, og strákana 6 og barnabörnin 2.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

VIKA 7

Það er búið að vera ljómandi gott veður um helgina og viðrað vel til hlaupa.  Enda má sjá á hlaup.com að félagar hlaupahópsins hafa verið duglegir við æfingar um helgina.

Samkvæmt veðurspám verður veðrið þokkalegt fyrripart vikunnar en svo fer að kólna.  Við látum það ekkert á okkur fá enda ýmsu vön.  Munum þó að klæða okkur eftir veðri.

Hvað viljið þið sjá hér á síðunni, í hvaða átt viljið þið sjá síðuna þróast?  Endilega komið með hugmyndir og sendið þær á; hbirnir(hjá)gmail.com

Æfingaáætlun vikunnar er hér – brekkusprettir og annað skemmtilegt.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 7

Félagakynning

Það telst til tíðinda ef Tobbu vantar á æfingu.  Hér fáum við að kynnast henni aðeins.

Nafn: Þorbjörg Ósk Pétursdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirðinum

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Á laugardeginum 23. janúar 2010

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Já, er með kort í Hress, fer í tabata-tíma, stöðvaþjálfun og hot yoga.

Á hvernig skóm hleypur þú: Ascis Nimbus 13 en langar næst að prófa Brooks

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Tek Ipodinn með á æfingar og hlusta á meðan ég skokka upp í Kapla eða út í sundlaug en slekk þegar ég hleyp með félögunum. Nota hann hins vegar alltaf þegar ég er að keppa. Um jólin setti ég inn á Ipodinn slatta af íslenskum lögum t.d. Jónasi Sig og Mugison og einn hlaupatakt á milli laga.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já, alla hreyfingu.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Að klára Laugaveginn með sóma og án sársauka. Annars stefni ég núna á að ná bætingu í 5 km hlaupunum hjá FH og einnig að ná undir 48 mín í 10 km í sumar.

Hvers vegna HHFH: Í mínu hverfi og gott félag.

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Á laugardögum er það hafragrautur.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já, t.d. ljósmyndun og fjallgöngur sem reyndar hefur þurft að víkja fyrir hlaupunum. Er einnig komin með örlitla veiðidellu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Fréttir

BÍLASTÆÐAMÁL
Gestir Suðurbæjarlaugar hafa kvartað dálítið undan bílastæðaleysi á laugardagsmorgnum.  Nú er það þannig að hlaupahópurinn ber bara hluta af ábyrgðinni því það er einnig ungbarnasund á laugardagsmorgnum.  Það má hins vegar minna hlaupafólk, sérstaklega þá sem ekki nýta sér sundlaugina eftir hlaup, að það er nóg af bílastæðum við leikskólann í Smárabarðinu.  Það tekur ekki nema eina mínútu að labba þaðan og í laugina.  Það er óþarfi að valda pirringi út í hlaupahópinn út af svona smáræði.

NÝIR HLAUPAJAKKAR
Verið er að fá tilboð í hlaupajakka og/eða vesti fyrir sumarið fyrir hlaupahópinn.  Það er búið að skipa “búninganefnd” og eigum við vona á að hún vinni hratt og örugglega.  Viljum vekja athygli fólks á þessu áður en það fer að hlaupa til að kaupa jakka/vesti fyrir sumarið.

STJÓRNIN
Á síðunni um HHFH, er að finna nöfn og netföng stjórnarmanna hópsins.  Félagsmenn eru hvattir til að setja sig í samband við þau með ábendingar, hugmyndir eða athugasemdir.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fréttir

VIKA 6

Veðrið er búið að leika við okkur um helgina og hlauparar hafa svo sannarlega nýtt tímann vel.  Það mátti sjá félaga á þönum bæði á hefðbundnum æfingatíma og einnig voru þeir sýnilegir í dag, skokkandi og hjólandi um bæinn.  Samkvæmt veðurspá vikunnar verður ennþá autt og vorverður í lofti.  Það er munur að hlaupa loksins á auðum götum í vorveðri.

Framfarir, hollvinasamtök millivega- og langhlaupara útnefndu Skokkhóp Hamars í Hveragerði sem hlaupahóp ársins 2011.  Við óskum þeim til hamingju.

Vikuáætlunin er hér.  Á fimmtudag er Powerade hlaup.

Komasooo

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 6

Hreyfing félaga – tengingin við hlaup.com

Því miður varð að aftengja RSS tenginguna við hlaup.com, sem gerði okkur kleift að sýna  hreyfingu félaga okkar hér á síðunni okkar.  Svona tengingar valda, því miður, miklum hægagangi hjá hlaup.com, sérstaklega á álagstímum á kvöldin og um helgar.

En við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að halda áfram að nota hlaup.com og skrá hreyfingu ykkar þar, og fylgjast þannig með framförum ykkar.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hreyfing félaga – tengingin við hlaup.com