Þriðjudagsæfing með meiru

Það voru rúmlega fimmtíu manns mættir á æfingu nú undir kvöld.  Á dagskránni var vaxandi hlaup, frá 6 og upp í 12 km.  og átti að hlaupa ca. 1. km vaxandi í miðri leið.

Það var frekar leiðinlegt rok, en hópurinn er ýmsu vanur eftir veturinn.  Gangstéttarnar eru snjólausar svo það er ekki hægt að kvarta.

Við minnum á Atlantsolíuhlaupið á fimmtudaginn.  Þann dag verður ekki skipulögð æfing en félagar eru kvattir til að mæta og taka þátt í hlaupinu.

Keppendur eru minntir á að mæta tímanlega til að kaupa skráningarmiða. Einnig er hægt að kaupa skráningarmiða í TRI að Suðurlandsbraut 32.

Lokahóf seríunnar fer svo fram föstudagskvöldið 30. mars nk.  Nánar um það síðar.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Þriðjudagsæfing með meiru

VIKA 12

Á fimmtudag fer fram lokahlaupið í 5km hlaupaseríunni okkar og væri gaman að sjá sem flesta úr hópnum mæta og taka þátt. Verðlaunaafhendingin fyrir hlaupin verður haldin viku síðar í Kaplakrika. Fjölmargir útdráttarvinningar verða í boði og því mikilvægt að mæta.

Öll aðstoð við keppnishaldið er vel þegin hjá þeim sem ekki taka þátt.

Samkvæmt óformlegu könnuninni sem við gerðum hér á vefnum þá verður fín þátttaka félag Hlaupahóps FH á Hlaupahátíðinni sem fram fer í sumar.

Stjórn hlaupahópsins vinnur nú með þetta.

Minnum á að búið er að opna fyrir skráningu í Reykjavíkurmaraþonið, þann 1. apríl nk hækkar þátttökugjaldið, til dæmis hækkar það um 2100 fyrir þá sem ætla sér í heilt maraþon.  Hækkunin er 1050 fyrir hálft þon, o.s.frv.

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 12

Styrktaræfingar


Einfaldar og góðar styrktaræfingar sem eru sérlega góðar fyrir hlaupara.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Styrktaræfingar

Félagakynning

Þá upplýsist leyndarmálið; fyrir hvað stendur “B” í nafi Margrétar.

Nafn: Margrét Björg Karlsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH:
Þann 19. janúar 2010

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup:
Já, ég er líka í Hress, fer þá helst í stöðvaþjálfun og Tabata

Á hvernig skóm hleypur þú: Under Armour coldgear (vetrarskór) og Asics Kayano 17.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Nei, engin tími fyrir svoleiðis þurfum að spjalla svo mikið.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já, alla hreyfingu.

Hver eru hlaupamarkmið þín: 21 km í RM undir 2 tímum og Vesturgatan í sumar.

Hvers vegna HHFH: FH eru bestir 🙂 skemmtilegir hlaupfélagar og frábærir þjálfarar sem voru duglegir að hvetja mann áfram þegar maður komst rétt á milli staura.

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Á laugardögum er það ristað brauð og kaffibolli.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Ég er búin að vera Kvennaráði knattspyrnud. FH s.l. 2 ár sem hefur tekið smá tíma en er hætta þar núna og ætla eyða meiri tími í golf í staðinn,útilegur og garðinn. Einnig fylgjast með fótbolta og handbolta hjá börnunum.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

VIKA 11

Það er enn vetur samkvæmt dagatali, en þetta er nú allt að koma.  Á fimmtudaginn er gert ráð fyrir tröppu og brekkusprettum.  Æfingaáætlunin er hér.

Félagar okkar í Hlaupahópnum hafa gert góða hluti í Powerade mótaröðinni í vetur.  Grétar Snorrason og Þóra Gísladóttir urðu í öðru sæti stigakeppni para.  Heildarúrslitin í Powerade mótaröðinni má nálgast hér.

Könukvöld FH verður næstkomandi föstudag. Nánar um það hér.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 11

Félagakynning

Þórunn á það til að vilja fara sínar eign leiðir, líka á æfingum – og er það ekki bara besta mál 🙂

Nafn: Þórunn Njálsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Ég bý í Hafnarfirði.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég byrjaði að æfa í september 2010.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Í augnablikinu er ég eingöngu að hlaupa.

Á hvernig skóm hleypur þú: Hef verið í Asics, en var að fá mér Brooks.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Nei aldrei.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Byrjaði að skrá núna í janúar.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Að mæta og hafa gaman af, fá flottan rass svo ég geti haldið sumum fyrir aftan mig.

Hvers vegna HHFH: Flottasti hópurinn og skemmtilegasta fólkið.

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Fyrir seinniparts æfingar læt ég duga það sem ég hef borðað yfir daginn, fyrir morgunhlaup fæ ég mér einn skyrdrykk eða einn banana.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Fylgja börnunum eftir í þeirra sporti sem er sund og handbolti og að lesa góðar bækur.

🙂 🙂 🙂 🙂 🙂 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Konukvöld FH

Hlaupakonur FH ætla að fjölmenna á Konukvöld FH
16. mars næstkomandi klukkan 19:00

Við ætlum að hittuast aðeins á undan
(kl. 18) að Reynihvammi 3b, Hafnarfirði

Ef þið eruð ekki nú þegar búnar að tryggja ykkur miða, hægt er panta miða
hjá Margréti – margretkarls(a)simnet.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Konukvöld FH

VIKA 10

Það viðraði ekki vel fyrir brekku og tröppuhlaup í síðustu viku, nú er bara að sjá hvernig vikan verður og hvað þjálfararnir bjóða okkur uppá.

Félagar eru hvattir til að taka þátt í könnuninni hér á síðunni.  Þar er verið að kanna hug félagsmanna til að fjölmenna á Hlaupahátíðina á Vestfjörðum í sumar. Þar verður boðið upp á nokkrar vegalendir og ættum við öll að geta fundið eitthavað skemmtilegt við okkar hæfi.

Og svo í lokin er gaman að geta þess að Kári Steinn Karlsson varð í þriðja sæti í Treviso maraþoninu á Ítalíu á 2:18:52.  Frábær árangur hjá honum.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 10

Félagakynning

Þórunn setur sér flott markmið fyrir sumarið.

Nafn: Þórunn Unnarsdóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Fædd á Sólvangi Hafnarfirði og bý í Hafnarfirði sannur Gaflari

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég mætti fyrst í Janúar 2011 en mætti nokkuð stopult en byrjaði svo að mæta samviskusamlega í júní 2011 og hleyp að meðaltali 2 í viku er alltaf á leiðinni að mæta á laugardögum.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Nei ekki lengur en ég kenndi hot yoga í 2 ár eða þangað til í nóvember 2011

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Nimbus 13

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Nei ekki á æfingum en ég nota tónlist þegar ég keppi og hún er nokkuð taktföst.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já alltaf.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Mig langar að hlaupa 5km undir 22 mínútur í sumar og 10km á 45 mín.

Hvers vegna HHFH: Besti hlaupahópurinn

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Ég reyni að borða vel í hádeginu helst heitan mat, pasta með kjöti og svo um 3 leytið fæ ég mér banana og hámark eða bý mér til smoothie.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já litla drenginn minn algjörlega heltekin af honum.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Flott þriðjudagsæfing

Það voru um 65 manns sem mættu á æfingu nú undir kvöld.  Á dagskránni voru 6-8 km. rólegir, fyrir hóp 1 og 9-12 km. rólegir, fyrir hóp 2.  Í upphafi kom smá haglél, en það varð ekkert úr því og veðrið var alveg skaplegt.

Að þessu sinni hvíldum við okkur á Garðabæjarhring en þess í stað var hlaupið um Setbergið, niður með læknum og eftir strandlengjunni.  Þau sem hlupu lengra fóru að Hrafnistu og þaðan heim í kapla en styttri hópurinn fór upp Hraunbrúnina, og í Kapla.

Í lokin var spjallað yfir góðum teygjum.

Stjórn HHFH er að velta fyrir sér hvort meðlimir Hlaupahópsins hafi áhuga á að fjölmenna vestur á firði í sumar og taka þátt í Hlaupahátíðinni.  Hlaupahátíðin á Vestfjörðum verður haldin helgina 13. – 15. júlí nk og er það í fjórða sinn sem hún er haldin.

Hér til hliðar er könnun varðandi ferðina, endilega takið þátt.  Stjórnin mun í kjölfarið kanna með húsnæði og aðstöðu fyrir hópinn.

Sjáumst hress á fimmtudagsæfingunni.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Flott þriðjudagsæfing