Frábær árangur í Berlínarmaraþoninu

Um liðna helgi tóku þátt 5 félagar úr hlaupahóp FH og auðvitað stóðu þeir sig með eindæmum vel. Þetta var merkilegt hlaup þar sem bæði heimsmet karla sem og Íslandsmet karla var bætt og hefur það haft sitt að segja að HHFH var mætt.
Tímarnir voru annars eftirfarandi:

Friðleifur Friðleifsson; 2:46,28 klst.
Ólafía Kvaran: 3:35,06 klst.
Jóhanna Soffía Birgisdóttir, 5:23,07 klst.
Pétur Smári Sigurgeirsson: 3:08,23 klst.
Arnar Sigurðsson: 2:58,40 klst.

Sannarlega frábær árangur hjá öllum og greinilegt að góð ástundun í sumar borgaði sig.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Um næstu helgi fer svo annar hópur í víking og mun gera víðreist um Köln og næsta nágrenni og verður það eflaust eftirminnileg ferð.

Enn vantar sjálfboðaliða til að starfa í Flensborgarhlaupinu og eru þeir beðnir um að gefa sig fram sem fyrst við þjálfara.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur í Berlínarmaraþoninu

Flensborgarhlaupið verður haldið 1. október – félagar hvattir til að fjölmenna

Þjálfarar vilja minna á Flensborgarhlaupið sem verður haldið þann 1. október næstkomandi. Eru félagar hvattir til að fjölmenna í hlaupið og halda merki hlaupahópsins á lofti. Ef einhverjir eru tilbúnir að veita aðstoð í hlaupinu þá vinsamlega látið þjálfara vita.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar. Skráning fer fram á www.hlaup.com

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Flensborgarhlaupið verður haldið 1. október – félagar hvattir til að fjölmenna

Áhugaverður fyrirlestur – áheitasöfnun fyrir Kára Stein Karlsson

Áheitasöfnun  – slær Kári Steinn 2:19:46?

Hlaup.is mun standa fyrir áheitasöfnun fyrir Kára Stein Karlsson til að fjármagna undirbúning hans fyrir maraþonhlaupið á Ólympíuleikunum í London 2012. Söfnun áheita fer fram á tímabilinu 20. ágúst til 25. september.

Fólk getur heitið á hann tiltekinni upphæð ef hann slær Íslandsmetið í maraþonhlaupi 2:19:46 klst. í Berlínar maraþoni er fram fer 25. september næstkomandi. Metið setti Sigurður P. Sigmundsson í Berlín árið 1985 og því löngu tímabært að slá það.

Fólk heitir á Kára Stein með því að skrá áheit sitt á Hlaup.is. Áheitin verða innheimt eftir 25. september ef Kári Steinn nær metinu.

Forsvarsmenn og ábyrgðaraðilar áheitasöfnunarinnar eru Gunnar Páll Jóakimsson, Sigurður Pétur Sigmundsson og Torfi H. Leifsson. Þeir munu jafnframt halda utan um greiðslur til Kára Steins, ef dæmið gengur upp, í samræmi við útlagðan kostnað. Á heimasíðu Hlaup.is verður gerð grein fyrir heildarupphæð áheita og fjölda þeirra sem þátt tóku í lok söfnunarinnar. Endurskoðendafyrirtækið Ernst og Young mun sjá um að yfirfara reikningsskil verkefnisins og Borgun mun sjá um að innheimta kortafærslur vegna áheitanna. 

Kári Steinn Karlsson er 25 ára gamall og á Íslandsmetin í  5.000 m (14:01,99) og 10.000 m (29:28,05) brautarhlaupum auk meta innanhúss og fjölda Íslandsmeta í yngri aldursflokkum. Hann hefur verið fremsti langhlaupari Íslendinga um langt árabil og staðið sig vel í landskeppnum og stærri mótum erlendis m.a. sigrað á Smáþjóðaleikunum.

Kári Steinn útskrifaðist sem rekstrarverkfræðingur frá háskólanum í Berkeley, USA, síðastliðið vor og er fluttur heim til Íslands. Hann hefur ákveðið að snúa sér í auknum mæli að keppni í götuhlaupum með maraþonhlaup sem aðalgrein. Ljóst er að það mun verða dýrt að gera út frá Íslandi. Þegar liggur fyrir að Kári Steinn mun fara í þrjár æfingabúðir, 2-3 vikur í senn, næsta vetur og 4-5 keppnisferðir. Kostnaður við þessar ferðir er áætlaður 2 m.kr. Þá er ótalinn ýmis annar kostnaður sem fylgir því að vera afreksmaður í fremstu röð í langhlaupum.

Það er von Hlaup.is að áhugafólk um langhlaup og íþróttir almennt sé tilbúið að heita á þennan unga og efnilega afreksmann. Hann er góð fyrirmynd og getur náð mjög langt fái hann tækifæri til að stunda sína íþróttagrein af fullum krafti.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Áhugaverður fyrirlestur – áheitasöfnun fyrir Kára Stein Karlsson

Reykjavíkurmaraþon 2011







Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Hlaup, Keppnir | Slökkt á athugasemdum við Reykjavíkurmaraþon 2011

Maraþonhelgin 19.-20. ágúst

Framundan er stærsta hlaupahelgi ársins þegar Reykjavíkurmaraþon fer fram. Vonast þjálfarar eftir að sem flestir taki þátt og þeir sem ekki eru skráðir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Þann 19. ágúst eiga keppendur að ná í númerin sín og ætla félagar í hlaupahópnum að fara á fyrirlestur Steins þjálfara. kl. 16:30 á  föstudeginum 19. ágúst og ná í númerin í kjölfarið. Þess má geta að Steinn og Pétur verða með kynningarbás á maraþonhátíðinni þar sem þeir munu kynna fyrir áhugasömum vörur sem þeir flyta inn fyrir íþróttasamfélagið (Spibelt og Compressport, o.fl).

Á laugardeginum ætlar hópurinn að koma saman eftir maraþonið og er stefnt á að hittast heima hjá Sveinbirni og Elsu (Norðurbraut 37) kl. 17:00 og grilla saman. Áætlað er að matur verði u.þ.b. 18:15-18:30. Í boði verður gómsætt grillkjöt og meðlæti félögum að kostnaðarlausu, þ.e. þeim sem greiða æfingagjöld. Kjósi félagar að drekka eitthvað annað en gos þarf að koma með slíkt á staðinn.
Eru félagar beðnir um að tilkynna þátttöku fyrir 12:00 næstkomandi miðvikudag (17. ágúst)
til Önnu Eðvalds, netfang: annaljosa@gmail.com Makar eru velkomnir og þurfa félagar að tiltaka í pósti fjölda. Athugið að makar greiða kr. 2000 fyrir matinn og þarf að gera það upp á staðnum.

Er það von þjálfara að sem flestir sem eru að keppa mæti og eigi saman góða kvöldstund.
Sjáumst hress á næstu æfingu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Maraþonhelgin 19.-20. ágúst

Ótrúlegur árangur undanfarið og góður gangur í æfingum

Undanfarið hafa félagar í HHFH gert víðreist í keppnum í nánast öllum landshlutum. Of langt mál væri að telja upp hér alla þá sem hafa keppt en bæði hafa félagar keppt í götuhlaupum og utanvegahlaupum með góðum árangri og margar stórar bætingar litið dagsins ljós. Öll úrslit er hægt að skoða inn á hlaup.is og er mikilvægt að félagar skrái sig í hlaup undir merkjum hlaupahóps FH. Nú styttist í Reykjavíkurmaraþon og eru félagar hvattir til að skrá sig tímanlega þar sem þetta er góður undirbúningur fyrir Köln en þangað stefna rúmlega 20 félagar. Einnig eru nokkrir í hópnum að keppa í Berlín og má geta þess að Pétur þjálfari ætlar að hlaupa maraþon bæði í Berlín og Köln. Æfingar eru núna teknar að lengjast og mikilvægt að þeir sem stefna á lengri vegalengdirnar hlaupi fleiri æfingar en eru á æfingaáætlun, t.d. á mánudögum og miðvikudögum. Er gaman að fylgjast með því í hlaupadagbókinni hvað félagar eru duglegir að æfa þrátt fyrir að vera í sumarfríi úti á landi eða erlendis : )

Undanfarið hefur verið heitt í veðri og eru félagar hvattir til að taka vökva með sér á lengri æfingar og þegar við tökum spretti á brautinni er gott að vera með brúsa með vatni í til að fá sér sopa á milli spretta. Þeir sem eru að fara að keppa í hálfu og heilu maraþoni þurfa að æfa næringarinntöku og finna út hvað hentar hverjum og einum best.

Sjáumst hress á næstu æfingu.
Þjálfarar

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ótrúlegur árangur undanfarið og góður gangur í æfingum

Vekjum athygli á meistaramóti öldunga helgina 6.-7. ágúst á Kópavogsvelli

Þjálfarar vilja vekja athygli á meistaramóti öldunga sem fer fram á Kópavogsvelli dagana 6.-7. ágúst. Síðastliðinn vetur kepptu fjölmargir úr hlaupahóp FH í hinum ýmsu greinum og unnu til fjölmargra Íslandsmeistaratitla.
Aldursflokkarnir eru: 
Konur: 30-34, 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri.
Karlar: 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Fyrri dagur: 100 m , 400 m, 300 m grind, 400 m grind, 1500 m, 5000 m, 4×100 m, sleggukast, kúluvarp, kringlukast, langstökk, hástökk.
Seinni dagur: 100 m grind, 110 m grind, 200 m, 800 m, 3000 m, þrístökk, stangarstökk, lóðkast, spjótkast.

Allar nánari upplýsingar má finna inn á http://fri.is/atburdur/atburd/id/354

 

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vekjum athygli á meistaramóti öldunga helgina 6.-7. ágúst á Kópavogsvelli

Flottar bætingar í Ármannshlaupinu

Í gær fór fram Ármannshlaupið þar sem hlaupnir voru 10km í nágrenni Laugardalsins. Fjölmargir félagar í hlaupahópnum tóku þátt og voru að standa sig mjög vel og bæta sína bestu tíma þrátt fyrir óhagstæðan vind sem hægði mikið á hlaupurunum á bakaleiðinni.

María Kristín náði 2. sæti í kvennaflokki og í karlaflokki varð Haraldur Tómas í 4. sæti. Í flokki 40+ í karlaflokki sigraði undirritaður eftir mikla baráttu og Ingólfur varð nr. 6, Ebba Særún varð nr. 4 í sínum flokk á persónulegu meti, Þorbjörg Ósk (Tobba) varð nr. 6 í 40+ flokknum á persónulegu meti, o.s.frv.
Það var gaman að sjá hversu einbeittir allir voru og margir tóku þvílíkan endasprett líkt og þeir ættu nóg eftir. Spurning að þjálfarar fara að staðsetja sig lengra frá markinu til að hvetja þannig að allir auki hraðann fyrr : ) Ef einhverja vantar á listann þá endilega látið þjálfara vita. það er mikilvægt að þegar tekið er þátt í keppnihlaupum að skrá sig undir merkjum hlaupahópsins þannig að auðvelt sé að finna tíma þeirra sem tilheyra hlaupahópnum.

Annars var árangurinn eftirfarandi:

Nafn                                                       Tími
Haraldur Tómas Hallgrímsson        00:34:53
Steinn Jóhannsson                            00:36:56
María Kristín Gröndal                      00:38:46
Ingólfur Örn Arnarsson                    00:38:51
Sigurþór E. Halldórsson                    00:39:39
Vilhjálmur Kári Haraldsson              00:40:49
Ebba Særún Brynjarsdóttir              00:43:01
Sveinbjörn Sigurðsson                       00:45:26
Egill Ingi Jónsson                               00:47:13
Þorbjörg Ósk Pétursdóttir                00:48:36
Þórunn Unnarsdóttir                         00:49:09
Hákon Steinsson                                 00:49:28
Klara Sveinsdóttir                              00:49:53

Næstu tvær vikur verður undirritaður erlendis en Pétur mun stjórna æfingum af sinni eindæma hörku eins og honum er einum lagið.  Æfingaáætlun fyrir næstu viku er komin inn og er mikilvægt að þeir sem eru í sumarfríi reyni eftir fremsta megni að ná sem flestum æfingum. Þjálfarar vilja jafnframt minna á mánudagsæfingar fyrir þá sem vilja hlaupa í góðum félagsskap en það er lagt af stað 17:30 frá Kaplakrika.

Ef einhverjir eru ekki enn skráðir í hópinn þá geta þeir sent póst á steinn.johannsson@gmail.com
Ekki má gleyma æfingagjöldunum en núna hafa 73 greitt fyrir tímabilið fram í byrjun október og eru það frábærar heimtur.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Flottar bætingar í Ármannshlaupinu

Höldum okkar striki þrátt fyrir sumarfrí!

Mæting á æfingar hefur glæðst undanfarið og nokkrir nýliðar gengið til liðs við hópinn. Þó margir félagar séu í sumarfríi er ánægjulegt að sjá hversu duglegir allir í hópnum eru að hreyfa sig. Mjög margir eru að stunda fjölbreytta hreyfingu með hlaupaæfingum og það er nauðsynlegt til að öðlast alhliða styrk. Þjálfarar vilja minna alla á að eyða drjúgum tíma í teygjur.

Á morgun fer fram Ármannshlaupið og er hlaupið tilvalin vettvangur fyrir þá sem vilja bæta tíma sína enda býður brautin upp á hraða tíma. Mörg keppnishlaup eru framundan og eru nokkrir í hópnum að keppa á Laugaveginum um næstu helgi og óskum við þeim góðs gengis. Einnig stefna nokkrir félagar á Jökulsárhlaupið í lok mánaðarins og er greinilegt að utanvegahlaupin eru í mikilli sókn þessa dagana.

Um liðna helgi tóku nokkrir félagar þátt í hálfum járnkarli í Hafnarfirði og stóðu sig með eindæmum vel. Öll úrslit og myndir frá atburðinum er hægt að skoða inn á www.3sh.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Höldum okkar striki þrátt fyrir sumarfrí!

Félagar í víking um allt land

Félagar í Hlaupahóp FH voru að gera góða hluti í Snæfellshlaupinu og Akureyrarhlaupinu sem fóru fram um síðustu helgi.

Snæfellshlaupið er nýtt fjallahlaup sem er 22 km hlaup frá Arnarstapa til Ólafsvíkur, það voru 50 hlauparar sem tóku þátt og þar á meðal voru 4 félagar í HHFH , þeir stóðu sig allir mjög vel, og voru  þeir allir í topp 10 og Friðleifur var aðeins 1 mín á eftir fyrsta manni…

Hér má sjá tíma.
2      01:40:34     Friðleifur Friðleifsson           1970   Hlaupahópur FH
4      01:52:57     Pétur Smári Sigurgeirsson         1970   Hlaupahópur FH
7      01:56:30     Ingólfur Örn Arnarsson            1962   Hlaupahópur FH
10     02:01:24     Hinrik Jón Stefánsson             1971   Hlaupahópur FH

Á Akureyri voru nokkrir félagar á fótboltamóti og að sjáfsögðu skráðu þeir sig til þáttöku í Akureyrarhlaupinu, og stóðu þau sig öll mjög vel..
Hér eru tímarnir hjá þeim sem tóku þátt í 10 km hlaupinu.

6       41:41     Birgir Gilbertsson                        1971
7       41:45     Birna Björnsdóttir                        1973
8       42:09     Guðmundur Þorleifsson                     1969 Halda áfram að lesa 
Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Félagar í víking um allt land