MÍ öldunga og hvernig var æfingin

Um næstu helgi fer fram Íslandsmeistaramót öldunga innanhúss í Laugardalshöll.  Mótið er haldið á vegum FRÍ og Ármanns.  Hlaupahópsfélagar og aðrir FH-ingar hafa verið duglegir við að taka þátt í þessu stórskemmtilega móti.  Ef þið hafið áhuga þá endilega mætið á staðinn, skráning fer fram á staðnum.  Hér er tímaseðillinn.

Í kvöld var hörku æfing að vanda og var hún að venju tvískipt. Hópur 1 fór á brautina í sprett og styrktaræfingar á meðan hópur 2 tók fimm kílómetra hring.  Það voru þó nokkrir að mæta aftur eftr smá pásu og er það vel.  Eins færðu nokkrir sig upp, úr hópi 2 í hóp 1 🙂

Sem fyrr segir fór hópur 1 á brautina.  Eftir upphitunarhring voru sprettir með styrktaræfingum á milli (í hvíldinni!).

Ósk Gunnarsdóttir var spurð að því hvernig henni hafi þótt æfingin:

Mér fannst hún bara krefjandi en góð!

Það má svo minna á hlaupadagbókina á Hlaup.is  Það er um að gera að halda utan um æfingar sínar og ekki er síðra að geta skráð skónotkunina.

Það er ljómandi veður í kortunum fyrir helgarhlaupin.
KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við MÍ öldunga og hvernig var æfingin

Flott æfing í frábæru veðri

Það var rúmlega 60 manna hópur sem geystist frá Kaplakrika nú undir kvöld, hörku mæting á æfingu hjá okkur enda veðrið með eindæmum flott og gott.  Það er eiginlega með ólíkindum að hlaupa á marauðum stígum í 3-4 stiga hita í jánúar.

Hrönn fór með hóp 2 í brekkuspretti og styrktaræfingar á eftir.  Pétur og Ingólfur fóru með hóp 1 í tempóhlaup.  Á eftir sá svo Þórunn um að fólkið teygði vel á, það sáust flott tilþrif þar 🙂

Hér eru útskýringar á mismun nokkurra æfinga; fartlek (hraðleik), tempó og interval.
Fartlek
Þessar æfingar koma upphaflega frá Svíþjóð. Í stuttu máli er þetta hraðleikur þar sem skiptst er á að hlaupa frekar stutta spretti. Skemmtilegast er að gera þetta í hópi og þá skiptist þátttakendur á að leiða.

Eftir upphitun eru hlaupnir sprettir, til dæmis að næsta tré, skilti, ljósastaur eða einhverju öðru.  Á milli spretta er skokkað rólega. Sprettirnir eru á mismunandi hraða og mis langir.

Æfingin á ekki að vera mjög skipulögð hvað varðar lengd spretta og hraða, einna helst að ákveða í hvaða röð fólk á að leiða.

Tempó hlaup
Á milli upphitunar og niðurskokks er hlaupið á góðum hraða, helst hraðar en keppnishraða. Í tempókafla á reyna vel á sig og maður á að heyra andardráttinn en um leið og maður stendur á öndinni er áreynslan of mikil. Ef þú getur auðveldlega spjallað þegar þú ert að hlaupa tempókaflann – ertu ekki að leggja þig nógu vel fram.

Interval
Eru stuttir og ákafir sprettir með jafn löngum, eða jafnvel ögn lengra rólegu skokki en það tók að hlaupa sprettinn. Dæmi:  eftir upphitun sprettir þú rækilega úr spori í tvær mínutur.  Eftir það skokkar eða gengur þú í tvær til þrjár mínútur og þannig koll af kolli. Munurinn á interval og tempó æfingum er að þú leggur harðar að þér, gengur lengra og stendur á öndinni.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Flott æfing í frábæru veðri

VIKA 2

2013 er gengið í garð með öllum sínum fyrirheitum og væntingum.  Þá er gott að setja sér hlaupamarkmið sem geta verið á marga vegu.

  • Hlaupa lengra en í fyrra
  • Taka þatt í fleiri keppnum
  • Hlaupa fyrsta 10 km. keppnishlaupið
  • Taka þátt í hálfu þoni í fyrsta sinn
  • Hlaupa Laugaveginn
  • Hlaupa heilt maraþon
  • Bæta tíma sína ákveðnum vegalengdum
  • Vera duglegri að mæta á æfingar
  • Létta sig – þá ganga hlaupin betur

Þannig er hægt að halda nánast endalaust áfram en málið er að setja sér raunhæf markmið sem þó eru krefjandi og standa við þau 🙂

Þetta ár verður viðburðaríkt hjá okkur í hlaupahópi FH.  Stefnan er sett á frábæra hlaupahelgi í Amsterdam í október.  Töluverður fjöldi hefur skráð sig og fleiri koma væntanlega til með að bætast við á næstunni.  Minni á Fésbókasíðu Amsterdamfara og upplýsingasíðuna hér á heimasíðunni okkar.  Eins verða fullt af hlaupum í boði sem gaman verður að taka þátt í.

Í fjórða skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins.  Við eigum okkar fulltrúa í þessum glæsta hópi því Friðleifur Friðleifsson er tilnefndur.  Hægt er að sjá meira um þetta hér og um að gera að taka þátt í kosningunni.

Það þurfti að loka fyrir kommentakerfið hér á síðunni vegna mikils ágangs af fjölpóstum og öðurm óáran.  Við notum bara fésbókina til samskipta.

Æfingaplanið er komið í fastar skorður og veðurspá næstu viku er ljómandi fyrir okkur hlaupara, það er að minnsta kosti ekki snjókoma í kortunum þessa viku.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 2

Takk fyrir 2012

Takk fyrir 2012.
2013 verður spennandi og
skemmtilegt hlaupaár.

KOMASO 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Takk fyrir 2012

Æfingar og gamlárshlaup

Það stefnir í dálítið hryssingsveður næstu dag.  Þá klæðum við okkur bara betur.

Í dag er hefðbundin æfing, hlaupið frá Kapla klukkan 17:30.

Svo er fleira skemmtilegt framundan.

Á gamlársdag fer fram Gamlárshlaup ÍR.  Þetta er mikið gleðihlaup og ómissandi hjá mörgum. Þetta er 37. sinn sem hlaupið er þreytt.  Ræst er á slaginu 12:00 frá Hörpunni.  Nánar um hlaupið á hlaup.is.

Hið árlega skemmti og búningahlaup rauðklæddu félaga okkar í Haukum  verður haldið á gamlársdag.  Hér er gleðin í fyrirrúmi og búningar afar mikilvægir.

Ræst frá Ásvöllum kl. 10:30 og er ekki tímataka.

Veitt verða verðlaun fyrir besta búninginn og svo verða úrdráttarverðlaun.
Hlaupaleiðin er frá Ásvöllum og að Garðaholtsbrekkunni og til baka.

Miðvikudaginn 2. janúar verður fræðslufundur á vegum Laugaskokks um langhlaup á Íslandi 1973-2012.  Fyrirlesarar eru þeir Gunnar Páll Jóakimsson, íþróttafræðingur og Sigfús Jónsson, landfræðingur og langhlaupari.  Áhugavert efni.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingar og gamlárshlaup

Jólakveðja

Gleðilega jól hlaupafélagar
-hafið það gott um hátíðina

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Jólakveðja

VIKA 52

Jæja, þá er jólavikan runnin upp.  Í gær, laugardag, var að venju æfing og hlaupið frá Suðurbæjralaug.  Það var fínasta mæting, um 25. manns.

Jóladag ber upp á þriðjudag, æfingadag.  Það verður ekki skipulögð æfing þann dag en þess í stað er tilvalið að hittast uppí í Kapla klukkan 10 og taka léttan hring.  Þau mæta sem áhuga hafa.

Annan í jólum mun Trimmklúbbur Seltjarnarness halda kirkjuhlaup líkt og undanfarin ár.  Um er að ræða 14. km hring sem hægt er að stytta, hvernig sem er.  Ef áhugi er fyrir að fjölmenna í þetta hlaup er ekki úr vegi að ræða það á fésbókarsíðu okkar.

Á fimmtudag er æfing á hefðbundnum tíma.  Hittumst í Kapla klukkan 17:30.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 52

Hlaupahópur FH og FC Barcelona :-)

Í haust sem leið fór hlaupafélagi okkar Eric í heimsókn til  Barcelóna,  þar sem hann ólst upp og menntaðist, þar á hann fjölskyldu og vini.    Hann fór meðal annars á fagnað með fyrrum skólafélögum  og  sat til borðs með gömlum vinum,  þ.á. m.  var Jordi nokkur Roura.   Sá var í gær ráðinn þjálfari aðalliðs FC  Barcelona, einu þekktasta knattspyrnuliði heims og þess besta  um þessar mundir.  Roura leysir af  Tito Vilanova sem dregur sig í hlé vegna baráttu við krabbamein.    Eric sendi félaga sínum hamingjuóskir og og fékk um hæl þakkarskeyti  þar sem Roura segir að hans von sé að Vilanova nái heilsu sem fyrst og geti þá aftur tekið við starfi sínu.

Eric er nú ekkert að básúna út í loftið á æfingum en á æfingu í gærvar spjallað um margt, meðal annars um skíði og fótbolta  þá rann þetta upp úr Katalónanum fótfráa .  Hann vonandi fyrirgefur okkur að bera þetta á torg.    Þetta er bara svo góð tenging tveggja stórliða þ.e.   FC Barcelona og Hlaupahóps FH – hvort á sínu sviði 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupahópur FH og FC Barcelona :-)

Hvernig var svo æfingin?

Nú, þegar rétt fjórir dagar eru til jóla og jólaundirbúningurinn er í algleymi, mættu rúmlega 30. manns á hörku æfingu.  Veðrið spillti líka ekki fyrir, hiti og flottar aðstæður til hlaupa.  Hrönn þjálfari fór með hóp 2. í Setbergshring.  Þar var hlaupinn tempókafli og tekið vel á því.  Pétur og Ingólfur fóru með hóp 1. í löngu Setbergsbrekkuna.  Þar voru hlaupninr brekkusprettir með framstigs, hnébeygju, froskahoppsæfingum á milli.  Eftir niðurskokk voru svo frekari styrktaræfingar í Kapla.

Jóladag ber upp á þriðjudag, æfingadag að þessu sinni.  Það verður ekki skipulögð æfing þann dag en þess í stað er tilvalið að hittast uppí í Kapla klukkan 10 og taka léttan hring.  Þau mæta sem áhuga hafa.

Eins og fyrr segir var hörku æfing í dag.  Jón Ómar Erlingsson, Jónsi, var spurður eftir æfinguna hvernig honum hafi þótt hún:
Hrikalega góð æfing og hrikalega erfið.  Ég hlakka til að fá aðstoð við að klæða mig í sokkana á morgun, með hjáp Péturs.  Hringi í hann til að fá hjálp.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hvernig var svo æfingin?

Æfingin í dag – 18.12.2012

Það var rúmlega 60 manna hópur sem lagði af stað frá Krikanum nú undir kvöld og hljóp um Hafnarfjörðinn og skoðai jólaljós spjallaði og átti ljómandi góða stund saman.

Þegar frostið bítur kinn er svo gott að komast inn – fá sér heitt súkkulaði með rjóma, bakkelsi og konfekt.  En slíkar kræsingar biðu okkur eftir hlaupið.  Því gafst gott tækifæri til að spjalla og eiga góða stund saman.

Síðuskrifari var tók myndavélina með og tók nokkrar myndir af félögum, eftir að hafa komið lífi í hana (greyið þoldi illa frostið)  en allt kom þó fyrir ekki því minniskortið bilað og myndirnar þar af leiðandi ónýtar.  Það er vonandi að Guðni og Þórdís, sem voru einnig með myndavélar á lofti skelli myndum inn á fésbækur sínar og deili þeim með okkur á vegg hlaupahópsins.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingin í dag – 18.12.2012