Hlaupadagbókin á hlaup.is

Hlaupadagbókin hefur nú verið uppfærð í útgáfu 2 og hafa eftirfarandi liðir verið endurbættir og lagfærðir. Reynt hefur verið að taka tillit til eins margra ábendinga frá ykkur og hægt var núna, en þó nokkrar endurbætur á samt eftir að gera.  Vinna er hafin við næstu útgáfu, útgáfu 3 og þá reynum við að þétta þetta enn frekar með innlestri frá Garmin úrum, öðrum æfingategundum og mörgu öðru. Vonandi náum við að koma þeirri útgáfu út í lok janúar. Endilega haldið áfram að koma með athugasemdir og ábendingar svo hægt verði að bæta dagbókina og gera enn betri.

Í þessari útgáfu er nú hægt að opna fyrir aðgang annarra að æfingum hvers og eins, en stillingin er sjálfgefin “Lokað öllum nema mér”. Mig langar því til þess að biðja ykkur um að breyta þessari stillingu undir “Notanda upplýsingar”, ef þið viljið opna æfingar ykkar fyrir skoðun annarra, en það er auðvitað hverjum í sjálfsvald sett hvort hann gerir það.

1. Bætt æfingaskráning

  • Við innskráningu fer notandi nú beint á æfingaskráningarsíðuna þar sem búið er að búa til einn æfingahluta.
  • Tími æfingar kemur nú alltaf sjálfgefinn 00:00
  • Ekki er þörf á að fylla út í Tegund æfingar eins og áður. Eina sem þarf að fylla út er annaðhvort tími eða vegalengd, ekki bæði. Það er því hægt að skrá æfingu sem án vegalengdar eða tíma. Dæmi um það er til dæmis skráning á spinning tíma þar sem ekki er hægt að fá upplýsingar um vegalengd. Það er því algerlega undir notandanum komið hvað hann skráir.
  • Tímasvæði í æfingahluta lagað.
  • Athugasemdareitur var stækkaður fyrir hvern æfingahluta.
  • Nú eru þeir hlutar sem eru á núlli (ekki fyllt út í) merktir með rauðu til ábendingar. Ekki er þörf á að fylla út í þessa hluta, en þeir engu að síður rauðmerktir.
  • Hægt er að fara í skoðunarham á æfingum án þess að fara á sama tíma í leiðréttingarham.
  • Villa vegna fjölda æfingahluta löguð. Ekki var hægt að skrá meira en 10 æfingahluta, en það hefur verið lagað.

2. Eigin upplýsingar
Bætt hefur verið við þrem svæðum, tveim stillingasvæðum og einu upplýsingasvæði.

  • Með því setja svæðið “Sjálfgefin grein” á þá grein sem er aðalgrein viðkomandi, þá er sú grein alltaf sjálfgefin í vali og farið er yfir á viðkomandi æfingasíðu.
  • Með því að stilla svæðið “Aðgengi annarra”, þá er hægt að velja um hvort skráningin er öllum lokuð eða öllum opin eða hvort félagar í sem eru í hóp með viðkomandi geta séð skráningar. Í upphafi er skráning stillt á “Lokað öllum nema mér” og því þurfa þeir sem eru skráðir í dagbókina að breyta þessari stillingu ef þeir vilja sýna skráningar sínar annað hvort öllum eða hópmeðlimum.
  • Þriðja svæðið heitir “Núverandi markmið” og inniheldur upplýsingar sem birtast þegar dagbókarnotendur eru að skoða æfingar annarra.

3. Skoðun á æfingum annarra aðila
Nú er hægt að skoða æfingar hjá öðrum ef þeir gefa heimild til þess samanber stillingar sem lýst er í lið 2 hér fyrir ofan. Með því að smella á stækkunarglers táknmyndina fyrir aftan nafn aðila í dagbókinni þá er hægt að skoða yfirlit yfir æfingarnar hans og einstaka æfingahluta í töfluformi. Ef skoða á nánari upplýsingar um æfinguna, þá er hægt að gera það með því að smella á stækkunarglerið aftast í línunni.

Hægt er að finna lista yfir alla notendur í dagbókinni undir “Notanda upplýsingar”. Einnig er hægt að skoða viðkomandi út frá Topp listanum og Hópa listanum.

4. Bættar upplýsingar þegar hópar eru skoðaðir
Þegar hópar eru skoðaðir sést meira af upplýsingum um hópmeðlimi, vegalengd hlaupin, heildartími, tempó og meðalhraði í núverandi viku. Einnig eru samantektartöflur fyrir hópana í vikunni, mánuði, ári og frá upphafi ítarlegri.

5. Hægt er að velja stærð á töflum sem verið er að skoða
Neðst í öllum töflum er nú kominn valmöguleiki um stærð á töflum. Þetta gildir þó ekki um topplistana á yfirlitssíðunum.

6. Allar töflur hafa verið endurbættar
Búið er að fara yfir allar töflur og þær upplýsingar sem voru í þeim og þær straumlínulagaðar.

7. Sundtempó einingu bætt við
Nú er sundtempó orðið mín/100m í stað mín/km eins og í hlaupum, göngu og hjóli.

8. Tilkynningar
Skilaboðum um nýjar útgáfur á dagbókinni eru undir nýjum lið í vali, “Tilkynningar”.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupadagbókin á hlaup.is

VIKA 51

Í dag fór fram Kaldárhlaupið.  Aðstæður voru eins og best verður á kosið.  Félagar gerður góða hluti og hlupu á flottum tímum.  Úrslitin má nálgast hér.

Félagi Guðni ser búinn að setja myndir inn á fésbókarvegg okkar.

Enn er allt marautt og engin ofankoma í kortunum.

Næstkomandi þriðjudag, 18. desember,  ætlum við að breyta aðeins til og hlaupa hið árlega og margrómaða jólaljósahlaup Hlaupahóps FH.

Við ætlum að hittast að venju í Kapla  og hlaupa þaðan á hefðbundunum tíma kl. 17:30.

Þemað verður rautt, því allar líkur benda á að jólin verði rauð hjá okkur á Stór-Hanfarfjarðarsvæðinu þetta árið.  Því er um að gera að mæta í einhverju rauðu til dæmis með jólasveinahúfu, rauða vettlinga, rauð (eða marglit) blikkandi jólaljós.  Nú eða bara eitthvað allt annað, en samt jóla.

Báðir hlópar hlaupa saman – þetta verður bara æðislega gaman.

Eftir hlaupið ætlum við að gæða okkur á heitu jólasúkkulaði og jólabakkelsi.

Þetta verður jólagaman.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 51

Kaldárhlaupið

Kaldárhlaupið fer fram í þriðja sinn næstkomandi sunnudag.

Hlaupið er frá Kaldárbotnum og endað í miðbæ Hafnarfjarðar, einstaklega skemmtileg 10 km hlaupaleið. Hlaupaleiðin er hugsuð sem vatnaleið Hamarskotslækjar frá Kaldárbotnum til sjávar. Skráningargjald er 1.200 kr. Boðið er upp á fría rútuferð kl. 12.15 fyrir keppendur frá Hafnarfjarðarkirkju og í Kaldárbotna. Hér má skoða hlaupaleiðina.

Hátíðin er haldin til heiðurs brautryðjandanum Jóhannesi Reykdal sem fyrstur nýti vatnsaflið í Hamarskotslæk til atvinnusköpunar og rafmagnsframleiðslu fyrir almenning í Hafnarfirði.  Skemmtilegt er að geta þess að í þessum mánuði heldur Elísabet dóttir Jóhannesar uppá 100 ára afmæli sitt.

Hægt er að forskrá sig í hlaupið hér.

Allar nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á Hlaup.is

KOMASO

Mynd: hlaup.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Kaldárhlaupið

Hvernig var svo æfingin?

Það var frekar kalt á okkur í dag, þó frostið hafi ekki verið mjög
mikið, þá beit það dálítið.  Þrátt fyrir kulda mættu rúmlega 30. manns á æfingu, það verður að teljast bara nokkuð gott miðað við allt og allt.  Líklega munstruðu einhverjir sig í Powerade hlaupið sem fram fór nú í kvöld við flottar aðstæður.
Hjörleifur Hjörleifsson
Hvernig var svo æfingin?
Hjörleifur Hjörleifsson svar fyrir sig.
Æfingin var mjög góð, erfið.  Þjálfararnir flottir og æfingarnar markvissar.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hvernig var svo æfingin?

Svona til gamans …

Ég trúi á Pétur, Ingólf, Þórunni og Hrönn.

Ég trúi á Kaplakrika, brautina og æfingarnar sem gera manni gott þó erfiðar séu.  Sprettina, tempó og  vaxandi í miðri viku – og löngu og rólegu hlaupin á laugardögum sem gaman er af.

Ég trúi á gleðina og ekki síður þreytuna, þrjóskuna og endorfín.

Ég trúi á hlaupahóp FH, félaga mína – okkur öll; góða skapið og ánægjuna og þá dásamlegu upplifun að klára …

Að eilífu – HHFH!

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Svona til gamans …

VIKA 50

Veðrið leikur við okkur þessar vikurnar.  Þó það sé vægt frost þá erum við laus við snjó og krapa sem er lítið spennandi að hlaupa í.

Síðastliðinn fimmtudag lagði Hópur 1  undir sig Flensborgartröppurnar.  Pétur þjálfari var uppátækjasamur og lét félags sína aldeilis taka á því.  Þetta var hörku æfing og voru harðsperrur allsráðandi hjá vel flestum dagana á eftir.  Guðni skrifaði um reynslu sína á skemmtilegan hátt.  Á fésbókaveggjum sagði fólk frá ferlegum harðsperrum – en var á sama tíma ánægt með flotta æfingu.

Búið er að setja æfingaplanið í dagatalið.  Eins er búið að setja þar inn flest öll hlaup sem eru á dagatali Reykjavíkurmaraþonsins.

Næstkomandi fimmtudagskvöld er Powerade hlaup í Árbænum.

Sunnudaginn 16. desember fer fram Kaldárhlaupið.  Búið er að opna fyrir skráningu í það á Hlaup.is. Hlaupið er frá Kaldárbotnum og endað í miðbæ Hafnarfjarðar, einstaklega skemmtileg 10 km hlaupaleið. Hlaupaleiðin er hugsuð sem vatnaleið Hamarskotslækjar frá Kaldárbotnum til sjávar. Skráningargjald er 1.200 kr. Boðið er upp á fría rútuferð kl. 12.15 fyrir keppendur frá Hafnarfjarðarkirkju og í Kaldárbotna. Hér má skoða hlaupaleiðina.

Eins er búið að opna fyrir skráningu í Gamlárshlaup ÍR á Hlaup.is

Jólaljósahlaupið okkar verður 18. desember, nánar um það þegar nær dregur.

Fín veðurspá fyrir vikuna.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 50

Nokkrar góðar miðjuæfingar


Ef þið hafið ekkert að gera … væri ekki tilvalið að bregða á leik og gera nokkrar æfingar!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Nokkrar góðar miðjuæfingar

Rýmingasala hjá Scanco

SCANCO

SÝNISHORNA-SÖLU-BOMBA!!!

Við rýmum fyrir nýrri vöru og bjóðum upp á sprengjuafslátt  á íþróttavörum hjá Scanco 07. Desember  nk. frá  12:00-18.00 og laugardaginn 8 Desember 12-15.

Hagstæð kaup í rólegu umhverfi hjá okkur í Sundaborg 5, 2 hæð.

Sértilboð á sýnishornafatnaði frá Brooks og 2XU og fleira góðgæti. Vörur eru í takmörkuðu magni svo fyrstir koma, fyrstir fá.

Hér eru nokkur verðdæmi 🙂
Sýnishorn Brooks skór dömu 39.5 9.000 kr

Sýnishorn Brooks skór herra 42.5 9.000 kr

Carbon X S/S Run bolur almennt verð 10.000 kr er á 3000 kr

Brooks hlaupajakki sýnishorn 7.000 kr

Fyrstu 10 sem versla fyrir 10.000 kr fá fría Compression sokka að andvirði 6.490 kr

Brooks sumarlínan 2012 Sýnishorn

Hlaupavörur, æfingavörur kvenna, æfingavörur karla, æfingapeysur, buxur, stuttbuxur,jakkar þríþrautafatnaður ofl.

Og margt fleira 🙂


Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Rýmingasala hjá Scanco

AMSTERDAM 2013 – Upplýsingar um flug og gistingu

Jæja, nú er að komast mynd á Amsterdamferðina okkar á  næsta ári.  Ferðanefndin hefur unnið frábært starf og nú eru hlaupaskórnir hjá okkur.

Pakki 1
FI502     18OCT   KEF/AMS              0740      1240
FI503     22OCT   AMS/KEF              1400      1510

Hótel:  Ramada Apollo Amsterdam

Verð á mann í tvíbýli: 97.500

Innifalið: flug , skattar og gisting í 4 nætur með morgunverði.
Aukagjald fyrir einbýli er 30.000

Hótelið er á ágætisstað en ekki alveg í miðbænum, en það er sporvagnastöð fyrir aftan hótelið og tekur það um 20 mín niður á Dam torg  .

Pakki 2
FI502     18OCT   KEFAMS              0740      1240
FI503     22OCT   AMSKEF              1400      1510

Hótel : Novotel  Amsterdam City Hotel

Verð á mann í tvíbýli: 108.500
Innifalið: flug , skattar og gisting í 4 nætur með morgunverði .

Aukagjald fyrir einbýli er 30.000
Hótelið er staðsett í viðskiptahverfinum í Amsterdam og stutt í lestarstöðina .

Flugsætin eru á 59.000 með sköttum

FI502   18OCT            KEF/AMS         0740    1240
FI503   21OCT            AMS/KEF         1400    1510
FI 503 22OCT             AMS/KEF         1400    1510

Það þarf að greiða 25.000 kr í staðfestingargjald við bókun og lokagreiðsla þarf að berast 6 vikum fyrir brottför .   Ef það eru einhverjar spurningar eða breytingar varðandi flug þá endilega senda tölvupóst á siljarun(a)vita.is eða í síma 5704472

Það er líka í boði að kaupa bara flug ef fólk vill sjá um gistinguna  sjálft.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við AMSTERDAM 2013 – Upplýsingar um flug og gistingu

VIKA 49

Ef veðurspáin gengur eftir verður fínasta hlaupafæri hjá okkur á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu næstu viku.  Að minnsta kosti er ekki mikið um snjókomu í kortunum.

Á þessum árstíma er ekki mikið um keppnir, en Powerade vetrarhlaupin eru í fullum gangi og næsta keppni er 13. desember nk.  Um þar næstu helgi fer fram Kaldárhlaupið, félagar hafa verið duglegir að taka þátt í því.

Þetta verður ljómandi hlaupavika.  KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 49