AMSTERDAM 2013 – Upplýsingar um flug og gistingu

Jæja, nú er að komast mynd á Amsterdamferðina okkar á  næsta ári.  Ferðanefndin hefur unnið frábært starf og nú eru hlaupaskórnir hjá okkur.

Pakki 1
FI502     18OCT   KEF/AMS              0740      1240
FI503     22OCT   AMS/KEF              1400      1510

Hótel:  Ramada Apollo Amsterdam

Verð á mann í tvíbýli: 97.500

Innifalið: flug , skattar og gisting í 4 nætur með morgunverði.
Aukagjald fyrir einbýli er 30.000

Hótelið er á ágætisstað en ekki alveg í miðbænum, en það er sporvagnastöð fyrir aftan hótelið og tekur það um 20 mín niður á Dam torg  .

Pakki 2
FI502     18OCT   KEFAMS              0740      1240
FI503     22OCT   AMSKEF              1400      1510

Hótel : Novotel  Amsterdam City Hotel

Verð á mann í tvíbýli: 108.500
Innifalið: flug , skattar og gisting í 4 nætur með morgunverði .

Aukagjald fyrir einbýli er 30.000
Hótelið er staðsett í viðskiptahverfinum í Amsterdam og stutt í lestarstöðina .

Flugsætin eru á 59.000 með sköttum

FI502   18OCT            KEF/AMS         0740    1240
FI503   21OCT            AMS/KEF         1400    1510
FI 503 22OCT             AMS/KEF         1400    1510

Það þarf að greiða 25.000 kr í staðfestingargjald við bókun og lokagreiðsla þarf að berast 6 vikum fyrir brottför .   Ef það eru einhverjar spurningar eða breytingar varðandi flug þá endilega senda tölvupóst á siljarun(a)vita.is eða í síma 5704472

Það er líka í boði að kaupa bara flug ef fólk vill sjá um gistinguna  sjálft.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.