SAMSKOKK ÍR

SAMSKOKK

ÍR efnir til samskokks næstkomandi laugardag 1.desember.  Lagt verður af stað frá versluninni TRI Suðurlandsbraut 32; klukkan 09:00. Í boði verða vegalengdir við allra hæfi.

Eftir hlaup verða veittar veitingar.

Heyrst hefur að TRI verði með aðventutilboð á hlaupavörum.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við SAMSKOKK ÍR

15th ANNUAL BOSTON VOLVO 5K

Hróður hlaupahóps FH berst víða.  Félagar  skreppa ekki í stutt frí út fyrir landsteinana án þess að skella sér í keppni – og er það vel, eiginlega bara frábært!

Eyvindur, Vilhelmína, Fanney og Bjarni tóku sér frí frá menningu Bostonborgar og tóku þátt í 15. Boston – Volvo 5 km. hlaupinu sem haldið var 22. nóvember sl.

Fréttaritari hafði upp á þeim og fekk staðfest að þeim gekk ljómandi vel og PB lágu í valnum hjá þremur af fjórum, þrátt fyrir krefjandi braut með töluvert af brekkum.

Þátttakendur fengu forláta hlaupahanska með skáningagögnum og var haft orð á því að tískustuðull Hafnfirðinga væri töluvert hærri en Bostonbúa.

Látum tímana fylgja með:
Eyvindur 18:26
Bjarni  23:41
Vilhelmina  27:01
Fanney  27:26

Við óskum þeim til hamingju með flott hlaup.

Úrslit hlaupsins má sjá hér.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við 15th ANNUAL BOSTON VOLVO 5K

VIKA 48

Aðventan á næsta leiti og styttist í jólin.  Við höldum okkar striki og mætum á okkar frábæru æfingar.

Næstkomandi miðvikudagskvöld, milli klukkan 18-20 er kynningarkvöld fyrir hlaupahópinn hjá versluninni TRI – Suðurlandsbraut.  Kynntar verða vörur frá Brooks og 2XU.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 48

Ofþjálfun – fræðslufundur á vegum Framfara

Fræðslufundur á vegum Framfara verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal við Engjaveg 3. hæð fimmtudaginn 22. nóv. kl. 19:30. Aðgangseyrir 1000 kr.

Ofþjálfun; einkenni, meðferð, forvarnir

Kl. 19:30 – 21:00 Salur D

  • Þórarinn Sveinsson, dósent við sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands
  • Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur, næringarráðgjafi, íþrótta næringarfræðingur
  • Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur Landspítala, dósent við Háskólann í Reykjavík

Farið verður yfir lífeðlisfræðilega kenningar og skýringar á ofþjálfun og hugmyndir um forvarnir, greiningar og meðferðir ræddar út frá því. Er hægt að greina ofþjálfun út frá andlegum einkennum? Hvernig má hindra ofþjálfun út frá sálfræðilegum og hugarfarslegum þáttum og hvernig skal meðhöndla ofþjálfun. Kemur svefn og hvíld við sögu. Hvernig tengist næring ofþjálfun og eða ofþjálfunareinkennum og má draga úr líkum á ofþjálfun með réttri næringu.

Um Framfarir
Framfarir eru hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara sem hefur það markmið að styðja við bakið á langhlaupurum á Íslandi með fræðslu og viðburðum. Leggja þannig grunninn að frábærum árangri íslenskra hlaupara í lengri vegalengdum í framtíðinni samhliða því að auka meðvitund um það hversu góð heilsurækt felst í hlaupaþjálfun og útiveru.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ofþjálfun – fræðslufundur á vegum Framfara

Vika 47

Nú er vika síðan opnað var fyrir skráningu í Amsterdammaraþonið.  Fjölmargir félagar hafa nú þegar skráð sig og það stefnir í að félagar hlaupahóps FH fjölmenni á götur Amsterdam næsta haust.

Félagar eru duglegir við að pósta á fésbókarsíður sínar staðfestingu skráningar.

Í dagatalinu er að finna æfingáætlun vikunnar og næstu vikna.  En æfingarnar verða útlistaðar á hverri æfingu.

Pössum okkur á bílunum – notum endurskinsmerki og vesti.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 47

Æfingin á morgun – fimmtudag 15 október

FH á leik í N1 deildinni á morgun, fimmtudag kl. 18:00 þannig að það verða væntanlega margir og mikið um að vera í Kapla.

Vinsamlegast leggið því bílum sem fjærst inngangnum.  Við hittumst líka í endanum næst Álfaskeiðinu, eins og alltaf.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingin á morgun – fimmtudag 15 október

Opið hús hjá TRI – Suðurlandsbraut, 28 nóvember

Okkur er boði í heimsókn til TRI – Suðurlandsbraut, 28 nóvember næstkokmandi milli klukkan 18-20.

Þar gefst félögum kostur á að kynnast þeim vörum sem TRI er með til sölu.

Húsið opnar klukkan 18:00

Gunnar í Scanco ætlar að kynna Brooks og 2XU.

Léttar veitingar í boði

Tilboð á kynningarkvöldi – 15% afsláttur af Brooks og 2XU vörum og aldrei að vita nema að það verði meiri afsláttur af einstaka vörum frá Brooks og öðrum vörum frá TRI.

Félagar Hlaupahóps FH verður með 10% fastan afslátt af öllum vörum hjá TRI en 15% af hjólum dýrari en 150.000

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Opið hús hjá TRI – Suðurlandsbraut, 28 nóvember

VIKA 46

Á morgun opnar fyrir skráningu i Amsterdam maraþonið.  Hver og einn skráir sig í sína vegalengd.  Ferðanefndin er enn að skoða og vinna í að fá tilboð í flug og gistingu.

Æfingplan vikunnar er í dagatalinu.

Pössum okkur á bílunum – notum endurskinsmerki…

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 46

Hlauparar noti endurskinsmerki

Víða á höfuðborgarsvæðinu eru hlaupahópar starfandi og virðist fjölga með hverju ári. Enn vantar þó upp á að meðlimir í þessum hópum noti allir endurskinsmerki þótt þeir séu á ferð í myrkri á eða við umferðargötur, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Stórhætta hefur skapast af þessum sökum. Það hefur  jafnframt vakið athygli lögreglu að eðlileg aðgæsla hlaupara og virðing fyrir umferðarlögum er á stundum ansi lítil. Þeir fara t.d. óhikað yfir umferðargötur án þess að nota gangbrautir þó þær séu nærri og fara yfir á móti rauðu gangbrautarljósi.

Lögregla beinir þeim vinsamlegu tilmælum því til hlaupara sem við þessu lýsingu kannast; foreldra, afa, ömmur, frændur og frænkur, til að sýna gott fordæmi í umferð með því að nota endurskinsmerki og virða umferðarlög og reglur. Þannig stuðla þeir að eigin umferðaröryggi og annarra. (af mbl.is)

Endurskinsmerki
Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þessa vegna er notkun endurskinmerkja nauðsynleg. Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur þeim mun meira er öryggi þeirra síðarnefndu í umferðinni.  Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerka skilið milli lífs og dauða. (af vef Umferðastofu)

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlauparar noti endurskinsmerki

Vika 45

Það hafa verið gerðar örlitlar breytingar hér á heimasíðunni, búið er að bæta við dagatali, og þar mun æfingaáætlunin birtast ásamt öðrum viðburðum og uppákomum sem verða á vegum hlaupahópsinins eða áhugavert fyrir okkur.

Ef þið, félagar góðir, eruð með hugmyndir og ábendingar, endilega sendið þær á hbirnir(a)gmail.com

Vika 45 er framundan, uppbyggingatímabilið gengur vel og vonum við að veðurguðirnir verð okkur góðir eitthvað áfram.  Það er snjólaust og ekki útlit fyrir að það snjói að neinu ráði hér á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu þessa vikuna og er það vel.  Á fimmtudagskvöld er annað Powerade hlaup vetrarins.

Félagi okkar, Guðni Gíslason, skellti annálnum sem hann flutti á árshátíðinni saman í myndband, hægt er að nálgast það hér!

Munum eftir endurskinsmerkjum og að klæða okkur eftir veðri.  Húfa og vettlingar eru staðalbúnaður 🙂

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 45