Afsláttarkvöld 8.nóvember

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Afsláttarkvöld 8.nóvember

Útsölumarkaður

Útsölumarkaður North Rock, verður í Kauptúni 3 – beint á móti Íkea (hjá Tekk company). Hefst á laugardag.  Opið alla daga frá kl. 12-18.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Útsölumarkaður

Gulu jakkarnir

Óður til hlaupahóps FH
(smellið á myndina til að stækka)

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Gulu jakkarnir

Hressleikarnir 2012

Komin er hefð fyrir Hressleikana sem haldnir verða n.k. laugardag. Þar munu margir af reyndustu þjálfurum Hress stjórna leikum. Á Hressleikunum er æft í 15 mínútna lotum í 8 liðum og 26 manna hópum í hverju liði.

Einnig er hægt að taka þátt í Hressleika hlaupinu 5 km. eða 10. km., Hressleika hjóreiðum 30. km. eða Hressleikagöngunni 7 km. Allt áhugafólk um hreyfingu, heilsu og líffæragjafir geta tekið þátt. Eins og áður ætla aðstandendur Hress, eigendur og starfsfólk að gefa andvirði vinnu sinnar þennann dag í þágu góðs málefnis. Við viljum með því sýna fram á að jákvætt framtak margra getur gefið af sér gleði, von og kraft.

Dagskrá Hressleikanna Dalshrauni 11 kl. 9.15.-11.30.
Kl. 9.15 Hressleikarnir 2012 settir innanhúss. Sigríður Einarsdóttir sér um skipulag.
Kl. 9.15 Hjólreiðar hefjast 30 km. Helgi Berg Friðjófsson stjórnar ferðinni
Kl. 9.30 Hlaup hefjast 5 km. og 10. km. Hálfdán Örnólfsson stjórnar hlaupinu
Kl. 10.00 Ganga hefst 7. km. Aðalheiður Alfreðsdóttir stjórnar göngunni
Kl. 11.30 Tekið á móti Katrínu Lilju.
Kl. 11.40 Myndataka af öllum hópum
Kl. 12.00 Móttaka og léttar veitingar í móttöku Hress

Opið á Ásvöllum en opnir tímar falla niður á meðan á Hressleikunum stendur.

Aðgangseyrir er kr. 2.000.- skráning er í móttöku Hress.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hressleikarnir 2012

Hlaupahópur FH þakkar stuðninginn!

Árshátíðarnefnd Hlaupahóps FH vill þakka eftirtöldum aðilum fyrir að hafa lagt hönd á plóg við undirbúning árshátíðarinnar þann 26. október sl.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupahópur FH þakkar stuðninginn!

VIKA 44

Á uppskeru/árshátíð hlaupahópsins voru veitt framfaraverðlaun í hópi kvenna og karla og einnig voru útnefnd hlaupari ársins í karla og kvennaflokki.

Framfaraverðlaunin hlutu þau Herdís Rúnarsdóttir og Magnús Waage.  Þau eru svo sannarlega vel það þessu komin.  Því miður var Magnús ekki með okkur á föstudagskvöldinu, en hann fær verðlaunin afhent á næstu æfingu.  Á myndinn er Herdís ásamt þeim Hrönn og Pétri þjálfurum hópsins.

Hlaupari ársins í kvennaflokki var Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir og í karlaflokki  Frileifur Friðleifsson.

Þau voru óþrjótandi að taka þátt í keppnum á árinu og eru svo sannarlega flottir fulltrúar og fyrirmyndir.  Við óskum þeim til hamingju.

Svona árshátið er ekki hrist fram úr erminnin á einum degi.  Það voru framúrskarandi félagar sem tóku að sér að koma þessu öllu saman og verður þeim seint þakkað nægilega fyrir.

Myndirnar tók félagi Guðni Gíslason.

Eins og tilkynnt var í síðustu viku þá er búið að ráða Ingólf Arnarson í þjálfarateimið. Jafnframt mun Þórunn Unnarsdóttir taka að sér að sjá um teygjur á þriðjudögum.  Það er um að gera að nýta sér þessa leiðsögn.

Æfingaáætlunin er komin á sinn stað.

Það er ekki úr vegi að benda á “HORNIД hér fyrir ofan.  Þar er búið að setja inn ýmislegt þarflegt fyrir okkur hlaupara.  Eins eru allar ábendingar vel þegnar.

Þetta verður frábær vika.  KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 44

Árshátíðin í kvöld

Kæru hlaupafélagar.

Þá er komið að þessum degi sem allir hafa beðið eftir.

Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk í kvöld. Þeir sem hafa ekki fengið miðann sinn, fá hann afhendan í afgreiðslu.

Endilega munið eftir miðanum því hann er einnig happadrættismiði og  það eru mjög flottir útdráttarvinningar.

Drykkir verða seldir á staðnum, hægt er að greiða með peningum og líka með kortum.

Vinningslíkur eru 30% og ótrúlega flottir vinningar í boði.

Sjáumst hress,
Árshátíðarnefnd Hlaupahóps FH

—–

Af óviðráðanlegum orsökum þá lumar félagi vor Sigurður Ísólfsson á einum miða á herlegheitin í kvöld þar sem frúin hans kemst ekki með.  Sigurður er í síma 664-6503.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Árshátíðin í kvöld

AMSTERDAM 2013 – nýr þjálfari og teygjur

AMSTERDAM  20 október 2013
Það varð úr eftir mikla yfirlegu ferðanefndar að þetta væri hlaupið sem sem ætti að fá að njóta þess að við í Hlaupahóp FH mættum á staðinn.
Þarna er boðið uppá að hlaupa 8 km, 1/2 maraþon og maraþon.

Ferðanefndin vildi koma þessu sem fyrst á kortið þó enn sé verið að vinna í því að fá tilboð í flug og gistingu, þar sem nokkuð margir eru farnir að huga að Maraþoni á næsta ári.

NÝR ÞJÁLFARI
Það er búið að ganga frá ráðningu Ingólfs Arnarssonar sem nýs þjálfara við hlið Péturs og Hrannar. Ingólfur er hokinn af hlaupareynslu og ánægjuefni að fá hann í þjálfarateymið.

Teygjur
Þórunn Unnarsdóttir ætlar að vera með teygjur eftir æfingar á þriðjudögum í vetur.  Það er verið að skoða hvort við getum fengið aðstöðu annarsstaðar en i anddyrinu í kaplakrika.  Nánari upplýsingar síðar.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við AMSTERDAM 2013 – nýr þjálfari og teygjur

Sunnudagsæfing

Samkvæmt plani er æfing á laugardagsmorgun klukkan 9:00, en líklega verður frekar fámennt þá, eftir árshátíðina 🙂

Hópur félaga hefur ákveðið að hittast klukkan 10 á sunnudagsmorgun við Suðurbæjarlaug og hlaupa eitthvað saman í stað laugardagsæfingarinnar.  Það er tilvalið að hittast þá og hlaupa saman eða í minni hópum, í góð veðrinu sem er spáð.

Hvað segið þið um að fjölmenna.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Sunnudagsæfing

Sagan af skónum dýru

Síðunni barst bréf …

Í gær keypti ég dekk undir bílinn minn sem er jeppi með einkanúmerið ÆR&KÝR.  Þau gömlu eru ekin 80þús km og enn eru eftir 5-8mm af mynstri svo að ég get örugglega ekið um 20þús km til viðbótar.  En það er öruggara að vera á betra munstri í vetur og því voru ný dekk keypt, sömu gerðar og þau gömlu.   Nýju dekkin kostuðu 260þús kr með afslætti, undirkomin, jafnvægisstillt og með nýjum ventlum.   M.v. aksturinn sem kominn er á gömlu dekkin þá  kostar hver ekinn km 3,25kr  og ef ég klára dekkin upp í 100þús km þá leggst hver km á 2,6kr.

Ég keypti mér líka nýja hlaupaskó í gær.  Það tók mun lengri tíma að velja skó heldur en dekkin undir bílinn, enda úrvalið mikið.  Nema hvað skórnir kostuðu með afslætti kr 26þús, reimaðir og tilbúnir á stígana.  Ég get vænst þess að skórnir endist ca 800km fyrir hlaupin og síðan kannski 200km í eitthvað annað eins og t.d. málningarvinnu.   Þá kostar hver hlaupinn km í skóm 32,5kr. og miðað við heildarnotkun  er hver kílómetri kominn niður í 26kr.  Í báðum tilvikum þá eru skórnir 10x dýrari en dekkin finu!!   Ef ég svo tek mið af því að dekkin eru fjögur en skórnir einungis tveir þá er samanburðurinn enn óhagstæðari.

Er þetta ekki eitthvað fyrir HHHF (Hagsmunafélag Hlaupara í HafnarFirði) að henda sér í og berjast fyrir ??.   Ekki endilega að skórnir séu of dýrir heldur því að skórnir skuli framleiddir og gæðavottaðir fyrir 10 sinnum meiri endingu.(á sama verði).

—————-

Æfing í kvöld – KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Sagan af skónum dýru