31.01.2013 – Hlauparöð Actavis og FH – Jan

Hlaupasería Actavis og FH eru 4 hlaup sem hlaupin eru í janúar til apríl. Vegalengd í boði er 5 km.

Tímasetningar
Hlaupin eru fjögur og hefjast á göngustígunum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði kl 19:00 eftirfarandi daga:

  • Hlaup 31. janúar 2013
  • Hlaup 28. febrúar 2013
  • Hlaup 21. mars 2013
  • Hlaup 11. apríl 2013

Keppt verður í eftirfarandi flokkum karla og kvenna; 14 ára og yngri, 15-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri.

Hlaupaleið
Hlaupið er frá íþróttahúsinu á Strandgötu til norðurs í átt að Álftanesvegi. Leiðin, sem er mæld af löggildum mælingarmönnum, er tiltölulega flöt með einni brekku og ákjósanleg til bætinga.

Sjá einnig á stærra korti

Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna óháð aldursflokki, eftir hvert hlaup.  Flokkaverðlaun eru einungis fyrir hlauparöðina. Verðlaunaafhending er eftir hvert hlaup.

Heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla og kvennaflokki fá vegleg verðlaun fyrir samanlagðan árangur.  Árangur í þremur bestu hlaupunum telur.  Séu hlauparar jafnir að stigum telur árangur í fjórða hlaupinu.  Gefin eru 15 stig fyrir fyrsta sætið, 14 stig fyrir annað o.s.frv.

Verðlaunaafhending fyrir hlauparöðina fer fram um miðjan apríl í Kaplakrika þar sem einnig verður boðið uppá glæsileg útdráttarverðlaun (fjögur hlaup, fjórfaldur vinningsmöguleiki).

Skráning
Skráning í hlaupið fer fram með sölu þátttökuseðla sem skal fylltur út skilmerkilega og afhentur tímavörðum þegar komið er í mark.  Sala þátttökuseðla hefst klukkutíma fyrir hlaup í íþróttahúsinu á Strandgötu og kostar seðillinn 500 krónur.

Það verður frítt í sund í Suðurbæjarlaug eftir hlaupið fyrir keppendur. Laugin verður opin til kl. 21:00.

Hægt að kaupa miða í hlaupin í Sjúkraþjálfaranum, Strandgötu 75.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við 31.01.2013 – Hlauparöð Actavis og FH – Jan

Miðar fyrir Actavis hlaupið

Hægt verður að þátttökumiða fyrir Actavishlaupið á æfingunni í kvöld.  Hver miði kostar 500 kr.

Það er um að gera að hafa með sér pening og ganga frá þessu á æfingunni í dag og losna þannig við biðröð og stapp á fimmtudaginn.

Sjáumst á æfingu í kvöld.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Miðar fyrir Actavis hlaupið

VIKA 5

Á fimmtudaginn næsta, 31. janúar, fer fram fyrsta hlaup í hlaupaseríu Actavis og FH.  Hlaupið er frá íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst hlaupið klukkan 19.  Þátttakendur eru hvattir til að mæta timanlega.

Þau sem ekki ætla sér að keppa eru hvött til að veita aðstoð við sölu miða, brautarvörslu og annað tilfallandi.

Það verður ekki æfing þennan dag.

Æfing á þriðjdag og náttúrlega langt hlaup á laugardag.  Allt eftir bókinni.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 5

Mér finnst rigningin góð

Þrátt fyrir rigningahraglanda var ágætis mæting á æfingu.  Hópur eitt fór í langa spretti á brautinni og svo styrktaræfingar og teygjur á eftir á meðan hópur tvö fór Setbergshring og tók tvo tempókafla.

Næstkomandi fimmtudag er Actavishlaupið. Þau ykkar sem ekki ætla sér að hlaupa eru hvött til hjálpa til og aðstoða við framkvæmdina.  Það hefur myndast skemmtileg stemning í þessum hlaupum.  Látið þjálfara vita á næstu æfingum.

Jóhanna BerentsdóttirJóhanna Berentsdóttir var spurð að því hvernig henni hafi þótt æfingin og þjálfararnir:
Æfingin var skemmtileg eins og alltaf og fjölbreitt. Þjálfararnir eru skemmtilegir.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Mér finnst rigningin góð

Kveðja frá Flensborg

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Kveðja frá Flensborg

VIKA 4

Tíminn líður svo sannarlega hratt, vika fjögur gengin í garð.  Við höldum okkar striki og sækjum æfingar eins og enginn sé morgundagurinn. Veðurguðirnir hafa verið okkur sérlega hliðhollir í vetur og það er allt útlit fyrir að þeir haldi því áfram.

Á Hlaup.is er hægt að nálgast á þægilegan hátt hlaupadagskrá fyrir árið 2013.  Dagskráin var uppfærð fyrir skemmstu og eru löglega mæld hlaup merkt sérstaklega.

Búið er að opna fyrir skráningar í Laugavegshlaupið, Reykjavíkurmaraþonið og Miðnæturhlaup Suzuki.  Því fyrr sem gengið er frá skráningu því hagkvæmara er það, hægt er að spara sér þó nokkra þúsundkalla með því einu að vera tímanlega.  Skráning í þessi hlaup fer fram á marathon.is.

Sjáumst hress á æfingum – KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 4

Æfingin í dag

ÆFINGIN Í DAG
Það voru um 40 manns á æfingu í dag.  Veðrið var ljómandi 7° hiti, smá rigning og vindur, súperflott janúarveður.

Hrönn fór með hóp 2 í tempóhlaup yfir í Garðabæ. Pétur og Ingólfur fóru með hóp 1 í brekkuspretti og styrktaræfingar.

Félagi okkar, Sigurður Ísólfsson á afmæli í dag og sagði hann að það væri toppurinn á tilverunni að fá létta æfingu einu sinni.  Þetta sagði hann áður en styrktaræfingarnar byrjuðu 🙂  Við óskum honum innilega til hamingju með daginn.  Við klikkuðum alveg á afmælissöngnum, kannski sem betur fer?

Á myndinni er hann með Finni Sveinssyni, sem er að koma sterkur inn eftir hlaupa-fjarveru.

Svo var hún Ragnhildur Aðalsteinsdóttir spurð hvernig henni hafi þótt æfingin:
Frábær æfing, ógeðslega hressandi að hlaupa í rigningunni.  Í síðasta spretti urðu fæturnir eins og brauð – en ég hafði það!  Svo er frábært að fá styrktaræfingarnar á fimmtudögum 🙂

Í ÓSKILUM
Húfa og vettlingapar urðu viðskila við eiganda sinn eftir æfingu.  Sá sem saknar Craft húfu og vettlingapars, hvoru tveggja er dökkt að lit,  þarf ekki að örvænta því hún Tobba Pé tók hvoru tveggja til varðveislu.  Eigandi getur vitjað þessa hjá henni á næstu æfingu.

MEISTARMÓT ÍSLANDS Í FRJÁLSUM 15-22 ára
Eins og talað var um fyrir æfingu þá er óskað eftir áhugasömum sjálfboðaliðum til að vinna við MÍ í frjálsum 15-22 ára sem fer fram helgina 2 til 3 febrúar.

Þið sem sjáið ykkur fært að vera með, þó ekki væri nema hluta úr degi væri það frábært. Vinsamlegast hafið samband við Eggert Bogason, eggert(hjá)vinbudin.is.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingin í dag

Hlauparöð Actavis og FH

Hlauparöðin okkar byrjar nú í lok janúar og er hún í samstarfi við Actavis.

Vegalengd í boði er 5. km og er hlaupið frá íþróttahúsinu við Strandgötu.  Hlaupið er til norðurs í átt að Garðaholti, leiðin er mæld af löggildum mælingarmönnum, er tiltölulega flöt með einni brekku en ákjósanleg til bætingar.

Hlaupin eru fjögur og hefjast á göngustígnum gengt íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði kl. 19:00 eftirfarandi daga

  • Hlaup 31. janúar 2013
  • Hlaup 28. febrúar 2013
  • Hlaup 21. mars 2013
  • Hlaup 11. apríl 2013

Keppt verður í eftirfarandi flokkum karla og kvenna;
14 ára og yngri, 15-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna óháð aldursflokki, eftir hvert hlaup.  Flokkaverðlaun eru einungis fyrir hlauparöðina. Verðlaunaafhending er eftir hvert hlaup.

Heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla og kvennaflokki fá vegleg verðlaun fyrir samanlagðan árangur.  Árangur í þremur bestu hlaupunum telur.  Séu hlauparar jafnir að stigum ræður árangur í fjórða hlaupinu.  Gefin eru 15 stig fyrir fyrsta sætið, 14 stig fyrir annað o.s.frv.

Verðlaunaafhending fyrir hlauparöðina fer fram um miðjan apríl í Kaplakrika þar sem einnig verður boðið uppá glæsileg útdráttarverðlaun (fjögur hlaup, fjórfaldur vinningsmöguleiki)

Skráning í hlaupið fer fram með sölu þátttökuseðla sem skal fyllta út skilmerkilega og afhenda tímavörðum þegar komið er í mark.  Sala þátttökuseðla hefst klukkutíma fyrir hlaup í íþróttahúsinu við Strandgötu og kostar 500 krónur.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlauparöð Actavis og FH

Yasso sprettir

MEIRA UM ÆFINGAR
Yasso 800 er vinsæl meðal hlaupara sem stefna á ákveðinn tíma í maraþoni. Athugið að Yasso 800 er í raun æfingaferli sem stendur yfir í nokkrar vikur fram að keppni.

  • Hvað tíma ætlar þú að keppast við. Gefum okkur að það sé 3 klst og 30 mín.  Við breytum því í 3 mínútur og 30 sekúndur
  • Hlauptu 800 metra á 3:30 (mín/sek) og vertu sem næst þessum tíma
  • Jafnaðu þig með því að skokka rólega eða ganga jafn langan tíma (3:30mín)
  • Fyrstu vikuna gerir þú þrjú – fjögur svona sett
  • Þú heldur áfram þessum æfingum vikulega og bætir við endurtekningum í hvet sinn þar til 10 settum er náð. Fyrstu æfingarnar eru auðveldar en þetta þyngist.

Undirbúningur fyrir heilt maraþon er töluverður og þessar æfingar verða hluti af undirbúningnum ásamt öllum hinum æfingunum eins og löngu hlaupunum um helgar og sprettæfingunum.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Yasso sprettir

VIKA 3

MÍ ÖLDUNGA
FH sigraði í þriðja sinn í röð í stigkeppni Meistaramóts Íslands innanhúss í frjálsum íþróttum öldunga og fékk 210 stig. Fjölnir varð í 2. sæti með 110 stig og ÍR í þriðja sæti með 105 stig.

Flestir keppenda FH komu úr Hlaupahópi FH eða átta af ellefu. Fengu FH-ingar 21 gull, 12 silfur og 6 brons.

Árangur FH-inganna var eftirfarandi:
Guðni Gíslason 1957: 6 gull
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, 1965: 4 gull
Ebba Særún Brynjarsdóttir, 1982: 3 gull 1 silfur
Trausti Sveinbjörnsson, 1946: 3 gull 1 silfur
Sigurður Pétur Sigmundsson, 1957: 2 gull
Friðleifur Friðleifsson, 1970: 1 gull
Hrönn Árnadóttir , 1979 1 gull 2 silfur
Pétur Smári Sigurgeirsson, 1970 1 gull 2 silfur 2 brons
Helgi Harðarson, 1961 3 silfur 2 brons
Sigurður Haraldsson , 1960: 1 silfur
Steinn Jóhannson, 1968: 3 silfur 1 brons
FH samtals: 21 gull, 12 silfur, 6 brons.

Einstök úrslit má sjá hér: http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib2014D1.htm

LANGHLAUPARI ÁRSINS
Ákveðið hefur verið að framlengja kosningu um langhlaupara ársins framt til föstudagsins 18. janúar kl. 18:00.  Endilega takið þátt í kosningunni á Hlaup.is.  Við minnum á að okkar maður Friðleifur Friðleifsson er meðal þeirra sem tilnefndir eru.

HLAUPASERÍA FH
Eins og síðastliðna vetur fara fram 5km. keppnishlaup síðasta fimmtudag í mánuðunum, janúar, febrúar og mars. Nánar þegar nær dregur.

VIKAN
Þetta verður hefðbundin æfingavika hjá okkur.  Það lítur út fyrir að þessi litli snjór sem lét sjá sig um helgin hverfi strax á morgun, mánudag.  Við munum því hlaupa á marauðum stígum í vikunni.  Munum eftir endurskinsmerkjunum.

Þetta verður frábær hlaupavika!
KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 3