Hlaupasería Actavis og FH #2

Annað hlaupið í hlaupaseríu Actavis og FH fór fram nú undir kvöld.  Aðstæður voru kannski ekki eins og best verður á kosið því töluverður mótvindur var á bakaleiðinni og smá rigning.

Úrslitin í kvennaflokki:
1.  Helen Ólafsdóttir 19:09
ÍR/Laugaskokk
2.  Agnes Kristjánsdóttir   19:43
Hlaupahópur Actavis
3.  Ebba Særún Brynjarsdóttir  19:44
Hlaupahópur FH/3SH

Úrslitin í karlaflokki:
1.  Arnar Pétursson  16:17
ÍR/Asics/Compressport
2.  Ingvar Hjartarson  16:20
Fjölnir
Hákon Hrafn Sigurðsson  17:36
3SH

Þrír lukkulegir keppendur fengu svo gjafabréf á SAFFRAN þegar þau komu í mark.

Úrslitin verða birt á hlaup.is.

Næsta keppni er fimmtudaginn 21 mars kl. 19.

Takk fyrir kvöldið – sjáumst!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería Actavis og FH #2

Hlaupasería Actavis og FH

Á morgun fer fram annað hlaupið í hlaupaseríu Actavis og FH.  Ræst er klukkan 19.  Við gamla íþróttahúsið við Strandgötu

Við hvetjum sem flesta til að taka þátt, brautin er góð til bætinga og þetta er skemmtilegt hlaup.

Ef þið ætlið ekki að taka þátt væri alveg kjörið að mæta og hjálpa til.  Gott væri að mæta klukkutíma fyrir keppni.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería Actavis og FH

Áfengislaus bjór flýtir fyrir endurnæringu eftir maraþon

Þetta fundum við á heimasíðu Fitnesfrétta.

Bjór inniheldur svonefnd fjölfenól sem er flokkur andoxunarefna sem talin eru verja frumuhimnur og hafa í för með sér mikla andoxunarvirkni. Bjór inniheldur einnig steinefni, vatn og kolvetni sem flýta fyrir bata og endurnæringu eftir erfiðar æfingar. Vísbendingar eru um að áhrifin felist í forvarnargildi gagnvart niðurbroti vöðva og bólguáhrifum af völdum æfinga. Rannsókn við Tækniháskólann í Munhén í Þýskalandi sýndi fram á að áfengislaus bjór flýtti fyrir endurnæringu eftir maraþon. Karlmennirnir sem tóku þátt í rannsókninni drukku einn til einn og hálfan lítra af áfengislausum bjór og til samanburðar drakk annar hópur manna samsvarandi magn af gervibjór á hverjum degi í tvær vikur eftir hlaupið. Bjórdrykkjan reyndist draga úr tíðni öndunarfærasýkinga um rúmlega 300% og dró úr bólgum. Áfengislausi bjórinn reynist einnig efla ónæmiskerfið og draga úr bólgumyndun hjá þeim sem æfa mikið.

🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Áfengislaus bjór flýtir fyrir endurnæringu eftir maraþon

VIKA 9

Keppnisvika framundan hjá okkur.  Annað hlaupið í hlaupaseríu Actavis og FH fer fram næstkomandi fimmtudag, 28 febrúar.

Hægt verður að kaupa þátttökumiða á þriðjudagsæfingunni, þeir kosta 500 kr. stykkið.  Eins verður hægt að nálgast miða hjá Sjúkarþjáfaranum, Strandgötu 75.

Keppendur fá frítt í Suðurbæjarlaugina eftir keppni.  Endilega takið þátt.

Á þriðjudaginn verður æfing að venju.  Líklegast miðast hún við að sem flestir taki þátt í keppninni á fimmtudaginn.

Fott vika – KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 9

Konukvöld 8. mars

Hægt er að kaupa miða hjá Margréti  B. Karlsdóttur, senda póst á margretkarls@simnet.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Konukvöld 8. mars

Vika 8

Nú er fólk farið að skipuleggja sumarhlaupin.  Laugavegurinn heillar marga og nú þegar eru félagar farnir að skrá sig í þá keppni.  Það er ekki úr vegi að benda á námskeið sem haldið er á vegum Hlaup.is og Sigurðar P.   Á heimasíðu hlaups.is er hægt að fræðast um þetta námskeið og lesa ummæli nokkurra þátttakenda á fyrri námskeiða.

Smávægileg mistök urðu vinnslu eftir Actavishlaupið okkar sem fram fór í byrjun febrúar en nú á að vera búið að leiðretta þau.

Hittumst á æfingum.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 8

VIKA 7

Það er mikill munur hvað æfingaranar verða ólíkt skemmtilegri þegar það er farið að birta svona mikið seinnipartinn. Eins fjölgar í hópnum, félaga sem hafa tekið sér smá pásu láta sjá sig aftur.

Næsta fimmtudag er Powerade hlaupaserían, einhverjir félagar okkar taka þátt.  Það var flott umfjöllun um þessi hlaup í þættinum 360° sem sýndur er á RÚV.

Annars eru hefðbundnar æfingar þessa vikuna hjá okkur og veðurspáin er bara fín.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 7

Fimmtudagsæfing

Við getum nú varla verið heppnari með veðrið en eins og það var í dag og á þriðjudaginn var.  Bjart, logn og virkilega gott færi.  Það hefur verið alveg príma mæting á æfingarnar og vel tekið á því.

Hópur 1. skokkaði yfir í iðnaðarhverfið í Garðabæ og aðeins um hverfið til að klára upphitunina.  Þar voru hlaupnir 3-4 Marelhringir.  Hver hringur er um 1200 metrar, 600 metra hvíldarskokk á milli. Niðurskokk og svo heim í Kapla þar sem Hrönn stjórnaði hörku styrktaræfingum.

Hópur 2. fór í tempóhlaup yfir í Garðabæ.  Það voru tvær vegalengdir í boði 5 km og 7km.  Það var tekið vel á því.

Félagi Helgi Harðarson var spurður hefðbundinnar spurningar, hvernig honum hafi þótt æfingin: Þetta var mjög skemmtileg æfing, bæði hlaupin og píningarnar hér á eftir.

En hvað finnst þér best að borða? Hafragrautur er í uppáhaldi á morgnanna. En nautalundir eru uppáhalds.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fimmtudagsæfing

VIKA 6

Það eru farnar að berast fréttir af skráningu félaga okkar í Laugavegshlaupið sem fram fer í sumar. Hver veit nema hlaupahópur FH fjölmenni 🙂

Það er smá vetur í kortunum en ekkert sem við látum á okkur fá.  Ef færðin verður þannig þá er gott að muna eftir gormunum undir skóna.

Hvetjum félaga til að ská afrek sín á hlaup.is Það er frábært að fylgjast með framförum sínum þar.

Allar ábendingar um efni fyrir síðuna eru vel þegnar.

Þetta verður góð vika.

KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 6

Hlaupasería Actavis og FH #1

Fyrsta hlaupið í hlaupaseríu Actavis og FH var haldið nú í kvöld.  Um 180 manns tóku þátt og voru aðstæður eins og best verður á kosið.

Í kvennaflokki sigraði Helen Ólafsdóttir – ÍR/Laugaskokki á tímanum 18:51.

Í öður sæti Ebba Særún Brynjarsdóttir – Hlaupahópi FH/3SH á tímanum 19:35.

Í þriðja sæti var svo Agnes Kristjánsdóttir – Hlaupahópi Actavis á tímanum 20:04.

Í karlaflokki sigraði Arnar Pétursson – ÍR/Asics/Team Compressport á tímanum 16:22.

Annar var Friðleifur Friðleifsson – Hlaupahópi FH á tímanum 17:24.

Í þriðja sæti Ívar Jósafatsson – Bíddu aðeins á tímanum 18:02.

Úrslit verða birt á Hlaup.is.

Fimm keppendur fengu svo verðlaun þegar þau komu í mark; út að borða fyrir tvo á SAFFRAN.

Á fésbókarsíðunni okkar má sjá nokkrar myndir frá hlaupinu.

Sjáumst hress 28. febrúar í næsta hlaupi – KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería Actavis og FH #1