Þetta fundum við á heimasíðu Fitnesfrétta.
Bjór inniheldur svonefnd fjölfenól sem er flokkur andoxunarefna sem talin eru verja frumuhimnur og hafa í för með sér mikla andoxunarvirkni. Bjór inniheldur einnig steinefni, vatn og kolvetni sem flýta fyrir bata og endurnæringu eftir erfiðar æfingar. Vísbendingar eru um að áhrifin felist í forvarnargildi gagnvart niðurbroti vöðva og bólguáhrifum af völdum æfinga. Rannsókn við Tækniháskólann í Munhén í Þýskalandi sýndi fram á að áfengislaus bjór flýtti fyrir endurnæringu eftir maraþon. Karlmennirnir sem tóku þátt í rannsókninni drukku einn til einn og hálfan lítra af áfengislausum bjór og til samanburðar drakk annar hópur manna samsvarandi magn af gervibjór á hverjum degi í tvær vikur eftir hlaupið. Bjórdrykkjan reyndist draga úr tíðni öndunarfærasýkinga um rúmlega 300% og dró úr bólgum. Áfengislausi bjórinn reynist einnig efla ónæmiskerfið og draga úr bólgumyndun hjá þeim sem æfa mikið.
🙂