Hlaupasería Actavis og FH eru 4 hlaup sem hlaupin eru í janúar til apríl. Vegalengd í boði er 5 km.
Tímasetningar
Hlaupin eru fjögur og hefjast á göngustígunum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði kl 19:00 eftirfarandi daga:
- Hlaup 31. janúar 2013
- Hlaup 28. febrúar 2013
- Hlaup 21. mars 2013
- Hlaup 11. apríl 2013
Keppt verður í eftirfarandi flokkum karla og kvenna; 14 ára og yngri, 15-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri.
Hlaupaleið
Hlaupið er frá íþróttahúsinu á Strandgötu til norðurs í átt að Álftanesvegi. Leiðin, sem er mæld af löggildum mælingarmönnum, er tiltölulega flöt með einni brekku og ákjósanleg til bætinga.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna óháð aldursflokki, eftir hvert hlaup. Flokkaverðlaun eru einungis fyrir hlauparöðina. Verðlaunaafhending er eftir hvert hlaup.
Heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla og kvennaflokki fá vegleg verðlaun fyrir samanlagðan árangur. Árangur í þremur bestu hlaupunum telur. Séu hlauparar jafnir að stigum telur árangur í fjórða hlaupinu. Gefin eru 15 stig fyrir fyrsta sætið, 14 stig fyrir annað o.s.frv.
Verðlaunaafhending fyrir hlauparöðina fer fram um miðjan apríl í Kaplakrika þar sem einnig verður boðið uppá glæsileg útdráttarverðlaun (fjögur hlaup, fjórfaldur vinningsmöguleiki).
Skráning
Skráning í hlaupið fer fram með sölu þátttökuseðla sem skal fylltur út skilmerkilega og afhentur tímavörðum þegar komið er í mark. Sala þátttökuseðla hefst klukkutíma fyrir hlaup í íþróttahúsinu á Strandgötu og kostar seðillinn 500 krónur.
Það verður frítt í sund í Suðurbæjarlaug eftir hlaupið fyrir keppendur. Laugin verður opin til kl. 21:00.
Hægt að kaupa miða í hlaupin í Sjúkraþjálfaranum, Strandgötu 75.