Um næstu helgi fer fram Íslandsmeistaramót öldunga innanhúss í Laugardalshöll. Mótið er haldið á vegum FRÍ og Ármanns. Hlaupahópsfélagar og aðrir FH-ingar hafa verið duglegir við að taka þátt í þessu stórskemmtilega móti. Ef þið hafið áhuga þá endilega mætið á staðinn, skráning fer fram á staðnum. Hér er tímaseðillinn.
Í kvöld var hörku æfing að vanda og var hún að venju tvískipt. Hópur 1 fór á brautina í sprett og styrktaræfingar á meðan hópur 2 tók fimm kílómetra hring. Það voru þó nokkrir að mæta aftur eftr smá pásu og er það vel. Eins færðu nokkrir sig upp, úr hópi 2 í hóp 1 🙂
Sem fyrr segir fór hópur 1 á brautina. Eftir upphitunarhring voru sprettir með styrktaræfingum á milli (í hvíldinni!).
Ósk Gunnarsdóttir var spurð að því hvernig henni hafi þótt æfingin:
Mér fannst hún bara krefjandi en góð!
Það má svo minna á hlaupadagbókina á Hlaup.is Það er um að gera að halda utan um æfingar sínar og ekki er síðra að geta skráð skónotkunina.
Það er ljómandi veður í kortunum fyrir helgarhlaupin.
KOMASO!