Uppskeruhátíð og æfingar

óð skráning er á uppskeruhátíð hlaupahópsins og lítur út fyrir glimrandi skemmtilegt kvöld framundan. Þeir sem eiga eftir að skrá sig eru hvattir til að ráða bót á því sem fyrst og senda póst á hronnb@setbergsskoli.is 
Skráning rennur út á mánudag og fer hver að verða síðastur til að skrá sig.

Ný æfingaáætlun er komin á vefinn og tekur hún mið af þremur hópum. Fjöldi hlaupara hefur sýnt áhuga á að taka þátt í haustþoninu, bæði heilu og hálfu maraþoni. Þeir sem vilja fá æfingaáætlun í tölvupósti fyrir næstu sex vikur geta sent póst á steinn@ru.is til að fá hana senda. Það er mikill hugur í fólki og stefna margir á ársbesta í þessu síðasta langa keppnishlaupi á árinu. 
Frábær árangur hefur náðst í keppnishlaupum undanfarið og síðasta fimmtudag gerði María Kristín sér lítið fyrir og vann Saucony 5km hlaupið á persónulegu meti, 19,22 mín. 
Framundan er vetrarsería Powerade og munu eflaust margir félagar taka þátt í þeim enda fjölmenn og skemmtileg hlaup á krefjandi leið.

Sjáumst á næstu æfingu
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Uppskeruhátíð og æfingar

Glæsilegur árangur um helgina… og upplýsingar um uppskeruhátíðina…

Það gekk mjög vel hjá félögum í hlaupahópnum um helgina.
Í Brúarhlaupinu voru allir að standa sig mjög vel og sumir að hlaupa á sínum besta tíma, þrátt fyrir slæmt veður. Í Reykjanesmaraþoninu sigraði Friðleifur í 21 km og María vann kvennaflokkinn í 10 km og Eric var í 2 sæti í karlaflokki, glæsilegur árangur, Til hamingju öll.

Svo var Steinn að keppa í heilum járnkalli út í Köln, þar stóð hann sig frábærlega og bætti íslandsmetið og varð í 14 sæti og 2 í sínum aldursflokk, glæsilegur árangur hjá honum, innilega til hamingju Steinn Smile

Nú er allt að verða klárt fyrir uppskeruhátíðina, sem verður haldin í sal sundfélagsinns á Ásvöllum, föstudaginn 17.sept. kl: 19:30

Fordrykkur:  Þriðjudags sprettur.

Forréttur: Seranoskinka með cantalópumelónu og ferskum parmesan á stökku klettasalati.

Aðalréttur: Salvíukrydduð kalkúnabringa og ristað lambalæri með ferskum kryddjurtum og meðlæti.

Eftirréttur: Ístríó með ferskum ávextum.

Glens og grín fram eftir nóttu….

Verð 3.500 á mann fyrir þennan glæsilega þriggja rétta málsverð.
Makar eru að sjálfsögðu velkomnir með.

Minnum alla á að skrá sig á netfangið hronnb@setbergsskoli.is fyrir sunnudaginn 12. september.

Stuðkveðjur,
Skemmtinefndin

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Glæsilegur árangur um helgina… og upplýsingar um uppskeruhátíðina…

Að slaka á fyrir keppni og uppskeruhátíð hlaupahópsins

ramundan er Brúarhlaupið og munu margir úr hlaupahópnum skella sér austur fyrir fjall og keppa í 10km eða hálfu maraþoni. Í síðustu viku tókum við því fremur rólega og þessi vika verður ósköp svipuð. Það er mikilvægt að hlaupa ekki of hratt á brautaræfingunni á morgun og líða þannig að auðvelt sé að auka hraðann. Fimmtudagshlaupið á að vera létt og nauðsynlegt að teygja vel á eftir. 
Miða við ganginn í keppnum og æfingum undanfarið má búast við fjölmörgum bætingum og ríkir mikil spenna meðal þjálfara að sjá tímana sem félagar hlaupa á.

Þeir sem ekki eru að keppa halda sínu striki og hlaupa samkvæmt prógramminu.

Við minnum alla á að taka frá 17. sept en þá hittumst við í sal Sundfélags Hafnarfjarðar í Ásvallalaug. Munum við gera okkur  glaðan dag og halda uppskeruhátíð hlaupahópsins. Þeir sem ætla að mæta eru beðnir um að tilkynna þátttöku til Hrannar í netfangið hronnb@setbergsskoli.is Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 14. september.
Matseðill er þrírétta og verði verður stillt í hóf Smile Nánari upplýsingar verða birtar síðar um matseðilinn.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Að slaka á fyrir keppni og uppskeruhátíð hlaupahópsins

Það sem er framundan

Vonandi eru allir búnir að jafna sig eftir RM og á morgun verður létt æfing fyrir þá sem kepptu á laugardag. Þeir sem eru tilbúnir í æfingu á brautinni geta að sjálfsögðu tekið þátt (sjá æfingaáætlanir). Þó mæla þjálfarar með því að þeir sem kepptu í hálfu maraþoni taki létta æfingu á morgun plús teygjur.

Mjög margir í hópnum hafa ákveðið að keppa í Brúarhlaupinu og svo fara fimm félagar til Þýskalands og hlaupa þar hið margrómaða Berlínarmaraþon. Árangurinn um síðustu helgi er mörgum frekari hvatning til bætinga og að prufa nýjar vegalengdir. 

Um leið og Brúarhlaupinu lýkur kemur létt tímabil og í kjölfarið byrjum við uppbyggingarfasann aftur. Við munum þá bjóða sérstakalega nýja félaga (byrjendur) velkomna sem hefðu áhuga á að ganga til liðs við hlaupahópinn. 
Við höfum fest föstudagskvöldið 17. september sem hátíðardag hlaupahópsins og mikilvægt að allir taki  það kvöld frá.

Annað sem má koma á framfræri er að 9. september fer fram Íslandsmót í 5km (konur) og 10km (karlar) á braut og hugsanlega nokkrir í hlaupahópnum sem hefðu áhuga. Keppt er í aldursflokkum og gæti verið spennandi að prufa eitt brautarhlaup til gamans.

Sjáumst annars á æfingu á þriðjudag

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Það sem er framundan

Frábær árangur í Reykjavíkurmaraþon

Félagar í Hlaupahóp FH stóðu sig frábærlega vel í Reykjavíkurmaraþon og voru nær allir í hópnum að hlaupa á persónum metum. Nokkrir náðu verðlaunasætum í flokkum og í heildina og í sveitakeppninni í hálfu maraþonu áttum við fyrstu sveit og fjórðu sveit sem sýnir styrkleika hlauparanna í hópnum. Flestir í hópnum kepptu í hálfu maraþonu, nokkrir fóru 10km og í heilu maraþoni áttum við einn keppanda. 

Eru þjálfarar hópsins ákaflega stoltir af þessum stóra og glæsilega hóp sem ekki er orðinn árs gamall og enn að slíta barnsskónum.
Hægt er að skoða nokkrar myndir sem Steinn tók af hlaupurum. Því miður var ekki hægt að ná myndum af öllum 🙁
Sjá nánar inn á http://picasaweb.google.com/steinn.johannsson/2010RM 

Þeir sem kepptu er ráðlagt að æfa létt í næstu daga. Vonandi mæta sem flestir á þriðjudag og hlaupa létta æfingu saman til að fagna árangrinum. Sett verður upp æfing fyrir þá sem ekki kepptu eða eru í maraþonundirbúningi fyrir Berlín en einir fimm félagar í hópnum keppa þar.

Sjáumst hress á þriðjudag og enn og aftur til hamingju.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur í Reykjavíkurmaraþon

Reykjavikurmaraþon

Nú styttist í stærstu keppni ársins og um næstu helgi munu margir í hlaupahópnum þreyta frumraun sína í 10km eða 21,1km. Æfingaáætlun vikunnar er í léttari kantinum og það er mikilvægt að fólk sé ekki að taka á því á morgun og næstu daga. Þeir sem keppa eiga aðeins að hlaupa stutta vegalengd á keppnishraða og líða vel. Ef félagar eru ekki vissir um hraðann er best að fara inn á McMillan reiknivélina og finna millitímana sem vélin reiknar út. Einnig er gott að nota Cool Running til að finna út millitíma, sjá inn á http://www.coolrunning.com/engine/4/4_1/97.shtml . Gott er að prenta út tímana sem stefnt er á eða setja þá inn í minnið á Garmin klukkunni, t.d. virtual partner.
Við hvetjum þá sem ekki eru að keppa að mæta og hvetja sitt fólk. Við minnum á að félagar verði sér úti um boli og verði merktir hlaupahópnum en það er skemmtilegra að vera öll eins. Þessa vikuna bjóða Afreksvörur upp á útsöluverð á vörum og má sjá upplýsingar inn á heimasíðu verslunarinnar.

Brúarhlaupið fer fram tveimur vikum eftir RM og það ætti að henta mörgum í hópnum að taka þátt þar en brautin býður upp á mjög hraða tíma. Eftir Brúarhlaupið munum við kúpla okkur niður og taka nokkrar vikur rólega og hvíla okkur á sprettum og brekkusprettum. Þeir sem eru orðnir þreyttir eftir langt tímabil geta tekið sér frí í 2-3 vikur en svo er auðvitað hægt að mæta og hlaupa ofurlétt. Þar sem þjálfararnir eru svo æfingasjúkir þá munum við halda alltaf úti æfingum allt árið um kring Laughing.

Þjálfarar hafa ákveðið að við höldum okkar hlaupahátíð 17. sept og þegar hafa einhverjir gefið sig fram í skemmtinefnd. Við vonum að sem flestir mæti og fagni góðu hlaupaári. Nánari upplýsingar verða gefnar síðar.

sjáumst á næstu æfingu
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Keppnir | Slökkt á athugasemdum við Reykjavikurmaraþon

Hver er að gerast á næstu vikum?

ú styttist í Reykjavíkurmaraþon og æfingaáætlun þessa vikuna tekur mið af því. Á þriðjudag tökum við brautaræfingu að venju og eftir æfingu verður boðið upp á kleinur og orkudrykki í boði Myllunnar og Cult. Fyrstu helgina í september fram fram Brúarhlaupið á Selfossi og ætti það að henta byrjendum sem vönu keppnisfólki. Brautin þar er marflöt og hentar vel til bætinga. Þeir sem t.d. keppa í hálfumaraþoni í RM geta stefnt á 10km á Selfossi. 

Nokkrir félagar tóku þátt í Vatnsmýrarhlaupinu og stóðu sig með ágætum. Voru nær allir að stórbæta fyrri tíma og greinilegt að góð ástundun í sumar er að skila frábærum árangri. Síðasta þriðjudag mættu 37 á æfingu í Kaplakrika og stefnir í enn betri mætingu þegar fólk fer að týnast úr sumarfríi.

Það væri gaman ef sem flestir væru merktir hlaupahópnum í Reykjavíkurmaraþon. Í Afreksvörum í Glæsibæ er hægt að fá boli sem við höfum notað í keppnum og svo er hægt að merkja bolina í Óla Prik hér í Hafnarfirði.

Í september (10. eða 17. sept) stefnum við á sameiginlegt grill til að slútta sumrinu og um leið keppnistímabilinu. Nánari upplýsingar um það síðar. Í haust förum við svo aftur af stað með nýjan byrjendahóp þar sem mjög margir hafa haft samband og vilja byrja að hlaupa með okkur.

Sjáumst á æfingu á þriðjudag.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Hver er að gerast á næstu vikum?

Æfingar

Ný æfingaáætlun er komin á vefinn. Þessa vikuna (á þriðjudag) hlaupum við tempóæfingu á brautinni sem miðar við tempó sem er aðeins hraðar en keppnishraði í þeirra vegalengd sem keppt er í í Reykjavíkurmaraþon. Þeir sem ætla að keppa í Vatnsmýrarhlaupinu næstkomandi fimmtudag ættu að víxla dögum og hlaupa fimmtudagsæfinguna á þriðjudag.

Æfingar hafa gengið vel undanfarið og á þriðjudögum hafa verið að mæta 32-35 manns sem er frábært miða við hversu margir eru í sumarfríi. Einnig hafa nokkir nýir gengið til liðs við hlaupahópinn í júlí. >
Það er gaman fyrir þjálfara að sjá að ekkert er slakað á þó fólk sé í sumarfríi og margir eru greinilega að stefna á góðan árangur í Reykjavíkurmaraþon. Annað sem er ánægjulegt er að margir í hópnum eru að hlaupa aukalega þá daga sem hópurinn kemur ekki saman og fjölmargir stunda þar að auki aðra hreyfingu sem gefur ekkert nema aukinn styrk.

Við viljum inna félaga á að vera duglegir að skrá niður æfingar inn á hlaup.com og nýjir félagar eru hvattir til að skrá sig þar.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Æfingar