Áheitahlaup næstkomandi laugardag og árangur í keppnum

æstkomandi laugardag, 20. nóvember, stefna félagar í hlaupahópnum að hlaupa áheitahlaup þar sem hver félagi safnar áheitum fyrir hvern kílómeter sem hann/hún hleypur á æfingu. Ágóði hlaupsins mun renna til Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar. 
Vona þjálfarar að félagar taki þessu vel og safni áheitum fyrir góðu málefni. 
Smelltu hér til að ná í eyðublað sem nota má til að safna áheitum.

Sextán manns úr hlaupahópnum tóku þátt í Poweradehlaupinu síðastliðinn fimmtudag og stóðu þeir sig með ágætum. Hæst ber árangur Maríu Kristínar sem náði 3ja sæti í kvennaflokki  Haraldar Tómasar sem varð nr. 4 í karlaflokki. Margir voru að hlaupa á persónulegu meti á hlaupaleiðinni þrátt fyrri kulda og rok.
Annars var árangurinn eftirfarandi:

Röð     Tími     Nafn                          Félag/klúbbur 
4.      37:30    Haraldur Tómas Hallgrímsson   Hlaupahópur FH
13.     38:48    Friðleifur Friðleifsson       Hlaupahópur FH
28.     40:46    María Kristín Gröndal         Hlaupahópur FH
34.     41:26    Björn Traustason              Hlaupahópur FH
73.     44:20    Gunnar Stefánsson             Hlaupahópur FH
77.     44:42    Bóas Jónsson                  Hlaupahópur FH
82.     45:04    Hjördís Ýr Ólafsdóttir        Hlaupahópur FH
153.    49:01    Valgeir P                     Þrí SH/Hlaupahópur FH
159.    49:20    Jón Sigþór Jónsson            Þrí SH/Hlaupahópur FH
166.    49:32    Helga Halldórsdóttir          Hlaupahópur FH
179.    50:16    Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir   Hlaupahópur FH
192.    50:59    Kristín Högnadóttir           Hlaupahópur FH
204.    51:37    Karl Garðarsson               Hlaupahópur FH
241.    53:56    Corinna-Hoffmann              Hlaupahópur FH
273.    56:04    Linda Björk Loftsdóttir       Hlaupahópur FH
302.    58:59    Ingibjörg Sigþórsdóttir       Hlaupahópur FH

Nýliðahópurinn mun hlaupa 5km næstkomandi fimmtudag þar sem við ákváðum að fresta því síðasta laugardag. Stefnum við á að hlaupa vegalengdina á brautinni.

sjáumst á æfingu á þriðjudag,
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Áheitahlaup næstkomandi laugardag og árangur í keppnum

Ýmsar hagnýtar upplýsingar

Æfingar hafa gengið vel undanfarið og hefur mætingin farið fram úr björtustu vonum. Síðastliðinn þriðjudag mættu 80 manns á æfingu og greinilegt að orðspor hópsins hefur farið víða og er það ánægjulegt fyrir þjálfara og félaga í hópnum. Fjölmargir sýna ótrúlegar framfarir og er virkilega gaman að sjá hversu vel fólk er að mæta á æfingar og taka á því. 
Þjálfarar vilja minna alla á að teygja vel á eftir æfingar og vera vel búnir. Góðar teygjur eru nauðsynlegar eftir æfingar. Eru félagar hvattir til að vera vel sýnilegir í skammdeginu sem er framundan – verið í endurskinsvestum eða með endurskinsborða á göllum. Hægt er að kaupa endurskinsvesti hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur, félaga okkar í hópnum, og kosta þau kr. 1850- en hún er einnig með endurskinsbelti sem kosta kr. 712. Guðrún er alltaf með vesti og belti á æfingum og geta félagar mátað hjá henni.

Hlaupajakkar fyrir þá sem pöntuðu verða afhentir næstkomandi fimmtudag. Verð er kr. 12.500- með merkingu. Til að fá jakka afhentan verða félagar að greiða jakkann fyrirfram og má greiða inn á reikning 0327-26-9036 kt. 681189-1229, skýring greiðslu er hlaupajakki / Hlaupahópur FH og afrit millifærslu á að senda í tölvupósti á steinn.johannsson@gmail.com 
Afreksvörur í Glæsibæ bjóða næstu vikur 20% afslátt af New Balance skóm og Craft íþróttafatnaði. Félagar þurfa að taka fram fyrir greiðslu að þeir séu í hlaupahóp FH til að fá afsláttinn en listi ætti að liggja hjá Afreksvörum.
Við vonum einnig að félagar taki greiðsluseðlunum vel vegna æfingagjalda.
Sjáumst hress á næstu æfingu – komaso
Þjálfarar

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ýmsar hagnýtar upplýsingar

Frábær árangur í haustþoninu

Í dag, laugardaginn 23 október, kepptu fjölmargir úr hlaupahópnum í haustþoni Félags maraþonshlaupara og er óhætt að segja að árangurinn hafi verið frábær. Nær allir voru að bæta tíma sína og eru þjálfarar hópsins ákaflega stoltir af öllum þeim sem tóku þátt. Laughing

Árangurinn var annars eftirfarandi:
Maraþon
Haraldur Tómas Hallgrímsson         02:56:02
Guðmundur Þorleifsson                  03:38:28
Örn Hrafnkelsson                          03:42:55

Hálft maraþon

Björn Margeirsson                          01:10:37
Friðleifur Friðleifsson                      01:23:16
Bóas Jónsson                                01:34:04
Karl Garðarsson                             01:50:44
Sveinbjörn Sigurðsson                    01:51:47
Ólafur St. Arnarsson                       01:52:12
Gísli Ágúst Guðmundsson                01:52:13
Jón Friðgeir Þórisson                       01:52:22
Þorbjörg Ósk Pétursdóttir                01:56:21
Brynja Björg Bragadóttir                  01:56:55
Kristín Högnadóttir                         01:58:58
Finnur Sveinsson                           02:01:10
Christina Finke                              02:01:15

Við óskum öllum innilega til hamingju með árangurinn.
Fræðslufundurinn heppnaðist mjög vel síðastliðinn miðvikudag og mættu rúmlega 60 manns á fundinn. Næstkomandi þriðjudag verður boðið upp á mátun á liðsjökkum og í framhaldinu verða pantaðir jakkar.

Við vonumst til að sjá sem flesta á æfingu á þriðjudag,
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur í haustþoninu

Fræðslufundur og æfingar

Við viljum minna félaga á fræðslufundinn sem verður haldinn næstkomandi miðvikudag kl. 20:00 í fyrirlestrarsalnum í íþróttahúsi Setbergsskóla. 
Efni fundarins er eftirfarandi:
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur heldur fyrirlestur
Markmið og keppnir næsta árs erlendis
Starfið sem er framundan

Mátun verður á liðsjökkum fyrir þá sem vilja panta en verðið á jakka er kr. 12.500- 

Þjálfarar vona að félagar fjölmenni á fundinn sem og æfingar í vikunni.

Um næstu helgi fer fram haustmaraþonið og verður hlaupið í Elliðaárdal og út á Ægissíðu. Tveir félagar munu hlaupa heilt maraþon og nokkur fjöldi hálft maraþon. 
Óskum við þeim góðs gengis í hlaupinu.

komaso
Þjálfarar

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fræðslufundur og æfingar

Æfingar og það sem er á döfinni

Ný æfingaáætlun er komin á vefinn. Í næstu viku hefst Powerade hlaupaserían og munu eflaust margir í hópnum taka þátt en hlaupin eru alls sex í vetur. Einnig styttist í haustþonið sem fer fram eftir tvær vikur.

Fræðslufundurinn hefur verið settur á þann 20. október en því miður urðum við að fresta honum um viku. Eins og áður hefur komið fram er umræðuefnið næring á æfingum og í hlaupum, mögulegar keppnir erlendis næsta haust fyrir hópinn og hvernig setur maður sér markmið fyrir komandi hlaupaár. 
Við þjálfarar vonum að félagar fjölmenni á fundinn. 

Einnig geta þeir sem ekki eiga FH-jakka mátað jakka eftir fundinn. Er hugmyndin að panta jakka strax í vikunni eftir fræðslufundinn.

Mjög góð mæting hefur verið á æfingar undanfarið og eru núna rúmlega 100 manns skráðir í hlaupahópinn. Greiðsluseðlar ættu að berast til félaga eftir helgi og eru þeir sem ekki fá seðil vinsamlega beðnir um að láta þjálfara vita. Gjaldið er kr. 12.000- á ári og er tvískipt til sex mánaða. 
Vonum við þjálfarar að félagar taki greiðsluseðlunum vel SmileEf einhverjir eiga eftir að skrá sig í hópinn eru þeir beðnir um að senda kennitölu, nafn og netfang ásteinn.johannsson@gmail.com

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingar og það sem er á döfinni

Margmenni á æfingum og mikill áhugi

Undanfarið hefur mætingin í hlaupahópinn verið mjög góð og á þriðjðudag og fimmtudag mættu hátt í 70 manns á æfingu. Er virkilega gaman að sjá áhugann hjá nýliðunum í hópnum og fara þeir vel af stað. Framundan er fræðslufundur fyrir félaga í hópnum og hefur hann verið settur á 14. október í fyrirlestrarsalnum í íþróttahúsi Setbergsskóla.  Er áætlað að fundurinn hefjist kl. 20:00 og verður umræðuefnið næring á æfingum og í hlaupum, mögulegar keppnir erlendis næsta haust fyrir hópinn og markmiðssetning fyrir komandi hlaupaár. Vonum við að félagar fjölmenni á fundinn. 
Einnig geta þeir sem ekki eiga FH-jakka mátað jakka eftir fundinn. Er hugmyndin að panta jakka strax í vikunni eftir fræðslufundinn.

Sjáumst á æfingu á þriðjudag
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Margmenni á æfingum og mikill áhugi

Fjölmenni á æfingum

Mikill fjöldi nýliða hefur mætt á æfingar í vikunni og var fjöldinn 65 manns á æfingu á þriðjudaginn sem sýnir áhugann á að vera með í hlaupahópnum. Er þetta mikið ánægjuefni fyrir þjálfara og aðra sem koma að hópnum.

Í vikunni fór fram Meistaramót Íslands í 5km kvenna og 10km hlaupi karla. María Kristín Gröndal gerði sér lítið fyrir og sigraði í 5km á persónulegu meti, 19,03 mín. Er það frábær árangur hjá henni. Þess má geta að dóttir Steins þjálfara hljóp á rúmlega 21 mín og Silja dóttir Péturs hljóp á rúmum 23 mín. Er þetta glæsilegur árangur hjá þeim miðað við ungan aldur.

Í karlaflokki voru FH-ingar nær einráðir. Björn Margeirsson sigraði og vann þar með sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í lengri hlaupum í sumar. Haraldur Tómas varð annar og Friðleifur varð þriðji á rétt rúmum 37 mín sem er skammt frá persónulegu  meti. 
Eric setti persónulegt met með því að hlaupa á 38,25 mín, Jakob fór á 41,39 mín og Guðni Gísla fór á rúmlega 51 mín. Allt eru þetta persónuleg met og óskum við þeim innilega til hamingju.
Sjá má frétt um keppnina með því að smella hér

Sunnudaginn 26. september keppa 5 félagar okkar í hlaupahópnum í Berlínarmaraþoninu. Hægt er að fylgjast með hlaupinu inn á http://www.scc-events.com/events/berlin_marathon/2010/ 
Óskum við þeim góðs gengis í maraþoninu.
Sjáumst á æfingu á þriðjudag.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fjölmenni á æfingum

Frábær árangur í Berlín

Í dag kepptu fjórir félagar okkar í hlaupahópnum í Berlínarmaraþoninu.
Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Tímarnir voru eftirfarandi:
Freyr Hákonarson 3:21,01 klst
Pétur Smári Sigurgeirsson 3:14,56 klst
Ásgeir Örvar Jóhannsson 4:31,35 klst
Þórður Þorvarðarson 3:27,31 klst
Mætingin hefur verið frábær undanfarið þrátt fyrir að nokkur hópur hefur tekið því rólega í september. Hvetja þjálfara sem flesta til að taka þráðinn upp á ný, hefja æfingar og setja sér markmið fyrir komandi ár.

Á næstunni hefst Powerade-hlaupaserían og munu eflaust margir í hópnum taka þátt. Hlaupin henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Þann 24. október fer fram haustmaraþon Félags maraþonhlaupara og er nokkur hópur að taka þátt í því.
Eru félagar minntir á að teygja vel á eftir æfingar og taka hraðaaukningar þegar færi gefst en hraðaaukningar eru góðar til að auka hraða og bæta hlaupastílinn.
Sjáumst hress á æfingu á þriðjudag.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur í Berlín

Áherslur næstu vikur

Á morgun tökum við á móti nýliðum og höfum sett upp 8 vikna æfingaáætlun sem miðar að því að þeir sem ljúki áætluninni geti hlaupið létt 5km í lok tímabilsins. Munu þjálfarar hópsins ásamt sjálfboðaliðum fara fyrir hópnum næstu vikurnar og getum við lofað því að æfingarnar ættu að henta öllum.

Að lokinni uppskeruhátíð er gott að setja sér markmið fyrir nýtt hlaupaár sem hefst að hausti. Nokkuð stór hópur stefnir á haustþonið í lok október og mun sá hópur halda sínu striki og taka brautaræfingur einu sinni í viku og tempó á fimmtudögum. Þess má geta að þeir sem stefna á hálft og heilt maraþon eru að jafnaði að hlaupa 5x í viku.

Aðrir í hópnum halda sínu striki og byggja upp góðan grunn áður en við byrjum á fjölbreyttum æfingum eins og intervali (lotusprettum), fartleggi og brekkusprettum. Pétur og Freyr munu áfram bjóða upp á sínar margfrægu fimmtudagsæfingar og svo hefur komið upp sú hugmynd að bjóða félögum 1x í viku í lyftingaklefann í Kaplakrika og gera styrkjandi æfingar.

Í október (sennilega þann 13.) verður haldin fræðslufundur og er stefnt að umræðuefnin verði eftirfarandi: Markmiðssetning fyrir hlaup, næring fyrir hlaupara og hlaup erlendis á næsta ári. Er mikill hugur í félögum að stefna á hlaup erlendis á næsta ári og myndum við stefna á hlaup sem myndi bjóða upp á nokkrar vegalengdir, frá 10km upp í maraþon. Verður þetta rætt á fundinum og möguleg hlaup kynnt.

Á fimmtudag fer fram Meistarmót Íslands í 5km kvenna og 10km karla í Kaplakrika og ætla nokkir í hópnum að taka þátt. Eru félagar hvattir til að horfa á og styðja við sitt fólk. Þeir sem vilja vera með er bent á að senda beiðni um skráningu ásiggih@hafnarfjordur.is og tilgreina nafn og kennitölu. Félagar í hópnum þurfa ekki að greiða þátttökugjald í hlaupinu.

Frá og með þriðjudeginum 21. september hittumst við á þriðjudögum og fimmtudögum inn í anddyrinu í Kaplakrika.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Áherslur næstu vikur

Uppskeruhátíðin

Uppskeruhátíð Hlaupahópsins var haldin í sal SH í Ásvallalaug 17. sept. og var salurinn vel setinn (yfirfullur og komust færri að en vildu) af skemmtilegu og hressu fólki eins og von og vísa er þegar félagar í hópnum koma saman. Veislustjóri var Örn elding Hrafnkelsson sem er einna frægastur fyrir glennuskap á æfingum. Skemmtinefndin (Brynja, Kristín, Jón og Örn) á mikið hrós skilið fyrir frábæra skemmtun og gott skipulag og fór annar hver félagi heim með útdráttarverðlaun. Það sem vakti einna mesta athygli var að Steinn vann gjafabréf í HRESS og eru það greinilega skilaboð um að hann verði að æfa meira. Hægt er að skoða myndir inn áhttp://picasaweb.google.com/steinn.johannsson/UppskeruhatiHlaupahopsFH 

Í morgun mætti nokkur fjöldi á æfingu þrátt fyrir að skemmta sér fram á nótt og sýnir það áhugann hjá félögum hópsins. Eru þjálfarar afar stoltir yfir æfingasókninni og árangrinum á árinu og í raun ótrúlegt að hópurinn sé ekki orðin eins árs gamall.

Næstkomandi þriðjudag fer af stað nýliðahópur og eru áhugasamir hvattir til að mæta. Við lofum spennandi og skemmtilegum vetri.

komaso
Þjálfarar

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Uppskeruhátíðin