Góð mæting á æfingu

Góð mæting var á æfingu í dag en 60 félagar voru mættir til að taka á því. Fjölmargir stefna á keppni á Gamlársdag en þá eru tvö 10km  hlaup í boði: Gamlárshlaup ÍR og svo Áramótahlaup Hauka (sjá nánar inn á http://haukarhlaupa.blogspot.com/).
Hvetja þjálfarar sem flesta til að taka þátt og enda æfingaárið með glans. Aðalatriðið er að taka þátt sér til skemmtunar. Á fimmtudag verður létt æfing fyrir þá sem keppa á föstudag en aðrir halda sínu striki og fylgja æfingaáætluninni.
Sjáumst hress á næstu æfingu,
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Góð mæting á æfingu

Æfingar í síðustu viku ársins

Síðasta vika ársins verður fremur óhefðbundin æfingalega þar sem frídagar spila stóra rullu sem og keppnir fyrir þá sem stefna á slíkt. Æfingin á þriðjudag verður með hefðbundnu sniði á brautinni en miðar við tempóhlaup á 10km keppnishraða (H2-H3). Þeir sem keppa ekki á Gamlársdag taka lengra tempóhlaup á brautinni.
Á fimmtudag eiga allir sem keppa á Gamlársdag að hlaupa mjög létt. Laugardagsæfinguna ber upp á Nýársdag og því verður ekki skipulögð æfing líkt og venjulega.
Vona þjálfarar að sem flestir færi æfinguna yfir á sunnudag og hlaupi langt þá.

Langhlaupari ársins
Hlaup.is stendur þessa dagana fyrir kjöri á langhlaupara ársins. María Kristín Gröndal er ein af þeim sem er tilnefnd í kvennaflokki (sjá nánar inn á www.hlaup.is) og hvetjum við sem flesta til að taka þátt og kjósa. Er þetta mikil viðurkenning fyrir Maríu sem hefur staðið sig frábærlega í keppnum á árinu.

Ekki má gleyma að minna félaga sem skrá æfingar inn á www.hlaup.com að haka við undir Profile, Leyfi RSS, til að virkni komi fram undir Hreyfing á heimasíðunni okkar.

sjáumst hress á æfingu á þriðjudag
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingar í síðustu viku ársins

Gleðilega hátíð

Þjálfarar óska félögum í HHFH og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Næsta æfing er þriðjudaginn 28. des. og hvetjum við sem flesta til að mæta. Ekki má gleyma því að minnast á Gamlárshlaupið sem er góður endapunktur á hlaupaárinu. Vonandi mæta sem flestir í hópnum og taka á því á síðasta degi ársins.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Gleðilega hátíð

Jólaæfing þriðjudaginn 21. desember

Þriðjudaginn 21. desember ætlum við að halda jólaæfingu. Við hittumst að venju klukkan 17:30 og hlaupum létt saman í 3o mín að heimili Hrannar (Suðurgata 92) sem ætlar að bjóða upp á heitt súkkulaði og smákökur. Hvetjum við félaga til að klæðast jólasveinahúfum í tilefni dagsins. Eftir æfingu er svo tilvalið að bregða sér í Suðurbæjarlaug og slaka á í pottunum.

Vonast þjálfarar til að sjá sem flesta mæta og eiga góða stund saman. Á Þorláksmessu verður ekki æfing en þess í stað hvetjum við félaga til að mæta á miðvikudeginum í Kaplakrika kl. 17:30 og taka æfingu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Jólaæfing þriðjudaginn 21. desember

Frábær árangur undanfarið og nýrri heimasíðu fagnað

Félagar í Hlaupahóp FH hafa undanfarið tekið þátt í tveimur keppnishlaupum, Poweradehlaupinu síðastliðinn fimmtudag en þar kepptu rúmlega 20 manns og svo mættu 17 manns í Kaldársselshlaupið sem fór fram sunnudaginn 12. des. Úrslit er hægt að skoða inn á www.hlaup.is

Nýrri heimasíðu hlaupahópsins hefur verið tekið vel og hvetjum við sem flesta til að skrá sig inn á www.hlaup.com og haka við Leyfi RSS undir Prófíll. Nánari leiðbeiningar er hægt að fá með því að smella á Hreyfing hér efst á síðunni.

Ný æfingaáætlun er kominn á vefinn og næstkomandi fimmtudag ætlar Sveinbjörn sjúkraþjálfari, félagi okkar í hlaupahópnum, að taka allan hópinn í teygjuæfingar. Við stefnum að því að byrja teygjuæfingarnar kl. 18:20. Eru allir hvattir til að mæta og fá kennslu í því hvaða teygjur er nauðsynlegt að gera og hvernig á að framkvæma þær.

Sjáumst á æfingu á þriðjudag.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur undanfarið og nýrri heimasíðu fagnað

Ný heimasíða Hlaupahóps FH

Ný heimasíða Hlaupahóps FH hefur litið dagsins ljós. Heiðurinn af uppsetningu síðunnar eiga þeir Helgi Hinriksson og Steinn Jóhannsson.
Nýja síðan er töluvert frábrugðin þeirri fyrri og er vonandi að félagar taki nýju síðunni vel og skoði hana reglulega (og setji í favorites).

Félagar í hópnum eru hvattir til að skrá sig inn á www.hlaup.com og virkja RSS-fítus undir profile þannig að æfingar varpist á heimasíðuna undir Hreyfing.
Á síðunni má einnig sjá flipa sem heitir Hlaupaleiðir og heiðurinn af kortunum á Hermann Hermannsson, félagi í hlaupahópnum, en hann hefur sett upp allar helstu hlaupaleiðir og mun halda áfram að bæta við fleiri hlaupaleiðum á næstunni. Ætti þetta að nýtast öllum í hópnum sem ekki eru vissir á hlaupaleiðunum sem hópurinn fer reglulega.

Annars hvetjum við sem flesta til að mæta í Powerade næstkomandi fimmtudag og skrá sig undir merkjum Hlaupahópsins.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Ný heimasíða Hlaupahóps FH

Hlaup sem eru framundan

Næstkomandi fimmtudag fer fram þriðja Poweradehlaup vetrarins. Í síðasta hlaupi kepptu 16 manns úr hlaupahópnum og vonandi verða þeir fleiri í þetta skiptið.

Þann 12. des. stendur Hafnarfjarðarbær fyrir Kaldárhlaupinu – Víðavangshlaup 10km.   Hlaupaleiðin er farvegur Hamarskotslækjar. Hlaupið hefst kl. 13:00 og ætti að vera góð æfing fyrir alla í hópnum. Allar upplýsingar um hlaupið má nálgast inn á www.hlaup.is en þar fer jafnframt fram skráning.

Góð mæting hefur verið undanfarið og hátt í 80 manns eru að mæta á þriðjudögum, rúmlega 50 á fimmtudögum og svo rúmlega 30 á laugardögum. Það sem er ánægjulegt er að flestir sem missa af æfingum á laugardögum hreyfa sig í staðinn á sunnudögum og það er greinilegt að áhuginn og metnaðurinn er mikill hjá félagsmönnum. Eru félagar hvattir til að skrá sig inn á hlaupadagbókina (www.hlaup.com) en í dag eru rúmlega 80 manns skráðir, sumir þó misvirkir. Að halda æfingadagbók veitir gott aðhald og það er alltaf gaman að geta skoðað aftur í tímann hvernig maður hefur æft.

Í lokin vilja þjálfarar hvetja alla félagsmenn til að vera vel merktir endurskini á æfingum.

Sjáumst á æfingu á þriðjudag,
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Hlaup sem eru framundan

Æfingar og fleira

Æfingar hafa gengið vel undanfarið og er ótrúlegt að sjá framfarirnar sem hópurinn hefur sýnt í haust. Stöðugt fjölgar í hópnum og eru nýir félagar að bætast við vikulega. Í dag telur hópurinn rúmlega 110 virka félaga og er hópurinn án efa einn af þeim stærstu hér á landi. Hvetja þjálfarar sem flesta til að skrá sig inn á www.hlaup.com til að halda utan um æfingar. Annan fimmtudag fer fram Poweradehlaup nr. 3 og í síðasta hlaupi kepptu 16 félagar úr hópnum og vonandi verða þeir fleiri í næsta hlaupi.

Áheitahlaupið heppnaðist vel og er stefnt að því að afhenda afraksturinn næstkomandi fimmtudag. Munum við hlaupa saman til Mæðrastyrksnefndar í Hafnarfirði og afhenda afraksturinn. Eru félagar hvattir til að vera í FH-jökkunum. Stefnum við að því að taka mynd af okkar glæsilega hópi.  Áheit á að leggja inn á reikning 0327-26-9036, kt. 681189-1229 og senda afrit millifærslu á hronnb@setbergsskoli.is 

Í janúar mun hefjast hlaupasería FH og Atlantsolíu og verður boðið upp á 5km hlaup síðasta fimmtudag í hverjum mánuði en hlaupin verða þrjú. Hlaupin hefjast fyrir utan höfðuðstöðvar Atlantsolíu í Hafnarfirði kl. 19:00. Vona þjálfarar að félagar í  hlaupahópnum fjölmenni og taki þátt. Nánari upplýsingar um hlaupin verða komin inn á hlaup.is í desember. Þátttökugjaldi verður stillt í hóf en glæsileg verðlaun veitt fyrir samanlagðan árangur í hlaupaseríunni.

Sjáumst á þriðjudag á æfingu en þá eru m.a. brekkusprettir í Setbergi á dagskrá.
komaso
Þjálfarar

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingar og fleira

Vel heppnað áheitahlaup

Áheitahlaupið heppnaðist mjög vel síðastliðinn laugardag. Mætingin var með eindæmum góð og mikill hugur í félögum hópsins að styrkja gott málefni. Þegar félagar hafa safnað áheitum saman er hægt að leggja inn á   reikning 0327-26-9036, kt. 681189-1229 og senda afrit millifærslu á hronnb@setbergsskoli.is
Stefnt er að því að afhenda afraksturinn þriðjudaginn (30. nóv) eftir viku. Eru allir hvattir til að mæta í FH-jökkunum þá þannig að hægt sé að mynda allan hópinn saman.

Ný æfingaáætlun er kominn á vefinn og stefnum við á að fara á Víðistaðatún á morgun og hlaupa létta spretti.

sjáumst á æfingu
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vel heppnað áheitahlaup

Muna að vera vel merktur endurskini á hlaupum

Í dag var frétt í fjölmiðlum þar sem lögregla áminnir hlaupara fyrir að vera illa merktir í umferðinni. 
Sjá  nánar inn á vef www.mbl.is

Þjálfarar hvetja alla í hlaupahóp FH til að vera vel merktir endurskini á æfingum og ennfremur að virða umferðareglur.Smile

Þeir sem vilja kaupa endurskinsvesti geta keypt þau hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur, félaga okkar í hópnum, og kosta þau kr. 1850- en hún er einnig með endurskinsbelti sem kosta kr. 712. Guðrún er alltaf með vesti og belti á æfingum og geta félagar mátað hjá henni. Einnig geta félagar keypt Craft endurskinsvesti í Afreksvörum í Glæsibæ of fáum við 20% aflsátt af vestunum.

Í gær náði nýliðahópurinn þeim árangri að hlaupa 5km samfleytt og er það frábær árangur eftir 8vikna æfingar. Óska þjálfarar þeim til hamingju með að hafa náð settu markmiði og eflaust verða margir í hópnum farnir að hlaupa fljótlega 10km.

Svo má ekki gleyma áheitahlaupinu næsta laugardag – safna krónum fyrir gott málefni.

komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Muna að vera vel merktur endurskini á hlaupum