Frábær árangur undanfarið og fundur um Kölnarferð

Undanfarið hafa félagar hópsins haft nóg fyrir stafni. Nokkrir félagar hlupu Powerade í brjáluðu veðri síðastliðinn fimmtudag og stóðu sig með eindæmum vel. Um helgina fór einnig fram Meistaramót öldunga í frjálsum íþróttum og kepptu 14 félagar úr hlaupahópnum þar. Var keppt í hinum ýmsu greinum og unnust margir Íslandsmeistaratitlar og voru allir sammála um að þetta hefði verið hin mesta skemmtun. Var það góð tilbreyting að keppa inni í frábærum aðstæðum en veðrið var svo sannarlega að stríða okkar í liðinni viku og bitnaði það á mætingu : (

Á laugardag mættu 19 manns úr hlaupahópnum á þorrablót frjálsíþróttadeildarinnar og var glatt á hjalla og allir sammála um að á næsta ári verði skyldumæting.

Næstkomandi fimmtudag ætlum við að funda í Kaplakrika kl. 18:30 um væntanlega Kölnarferð. Eru áhugasamir hvattir til að skoða heimasíðu maraþonsins sem er www.koeln-marathon.de/en
Munum við fara yfir mögulega ferðatilhögun og möguleg hótel sem eru í boði.

Sjáumst á næstu æfingu

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur undanfarið og fundur um Kölnarferð

Á döfinni

Ný æfingaáætlun er komin á vefinn og stefnum við á æfingu í Kaplakrika á þriðjudag. Ef færðin verður erfið þá munum við hlaupa um Stór-Hafnarfjarðarsvæðið og taka létt tempó þar sem aðstæður leyfa. Undanfarið hefur verið mjög góð mæting á æfingar og síðasta þriðjudag mættu 56 manns á æfingu og um 50 á fimmtudaginn. Á laugardag var fámennt en góðmennt og aðeins 19 manns á æfingu. Færðin var erfið og það hafði eflaust sín áhrif. Við hvetjum félaga til að mæta vel á æfingar því þær eru forsenda framfara.

Næstkomandi fimmtudag fer fram Poweradehlaupið og hvetja þjálfarar sem flesta til að mæta og taka þátt.  Einnig má benda á að um næstu helgi fer fram Öldungameistaramót Íslands í frjálsum íþróttum og ætla nokkir úr hlaupahópnum að keppa í greinum frá 60m upp í 3000m. Þeir sem hafa áhuga vinsamlega látið þjálfara vita en FH greiðir þátttökugjöld þeirra sem verða með. Smelltu hér til að skoða tímaseðil. Þess má geta að 3000m hlaup fer fram upp úr hádeginum á laugardeginum en margar skemmtilegar greinar eru í boði sem félagar hefðu gaman af því að prufa.

Við viljum jafnframt minna á þorrablótið laugardaginn 12. feb. sem við ætlum að skella  okkur á næstkomandi laugardag. Það er góður vettvangur fyrir félaga til að hittast á öðrum vettvangi en á æfingum. Til að skrá sig á blótið skal senda póst á siggih@hafnarfjordur.is  Skráningarfestur er til og með 7. febrúar.
Nánari upplýsingar er að finna inn á tilkynningum undir Myndefni hér á vefnum.

Sjáumst á næstu æfingu
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Á döfinni

Hvað er á döfinni?

Öll úrslit í 5km hlaupinu okkar eru komin inn á www.hlaup.is
Voru félagar að standa sig frábærlega vel og margir að hlaupa á sínum besta tíma. Það er greinilegt að góð mæting á æfingar og gríðarlegur áhugi er að skila þessum árangri. Framundan er fjöldi hlaupa og eru félagar hvattir til að taka þátt til að öðlast meiri keppnisreynslu. Poweradehlaup nr. 5 fer fram í annan fimmtudag og eflaust munu margir úr hópnum taka þátt. Einnig má minnast á að 12.-13. febrúar fer fram Íslandsmót öldunga í frjálsum íþróttum og þá er m.a. keppt í 3000m hlaupi innanhúss og ætla nokkir úr hópnum að taka þátt. Þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að láta Stein eða Pétur vita sem báðir taka að sjálfsögðu þátt.

Framundan er Þorrablót frjálsíþróttadeildar FH og hvetjum við félaga til að mæta og eiga góða kvöldstund saman. Þorrablótið fer fram í Kaplakrika þann 12. febrúar og smelltu hér til að fá nánari upplýsingar. Skráningu lýkur þann 7. febrúar og því ekki seinna vænna að skrá sig.

Myndir frá 1. árs afmælinu eru komnar á vefinn undir myndefni.

Sjáumst svo hress á næstu æfingu.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hvað er á döfinni?

Atlantsolíuhlaupið heppnaðist vonum framar

Það er óhætt að segja að fyrsta Atlantsolíuhlaupið hafi heppnast vonum framar en 245 keppendur tóku þátt (134 karlar og 111 konur). Hátt í 50 félagar úr HHFH tóku þátt og fjölmargir sem hjálpuðu til við framkvæmd hlaupsins. Almennt var mikil ánægja með framkvæmdina þó auðvitað megi bæta nokkur atriði fyrir næsta hlaup.
Verið er að vinna úr úrslitum aldursflokka en efstu 10 karlar og 10 konur voru eftirfarandi:

Karlar      
Sæti Tími Nafn Félag/Skokkhópur
1 16,51 Jósep Magnússon Fjölnir
2 16,56 Hákon Hrafn Sigurðsson 3SH
3 17,20 Örvar Steingrímsson ÍR
4 17,29 Friðleifur Friðleifsson Hlaupahópur FH
5 18,06 Óskar Jakobsson Árbæjarskokk
6 18,43 Jóhann Ingibergsson Hlaupahópur FH
7 18,48 Stefán Friðleifsson ÍR
8 18,54 Frosti Jónsson ÍR Skokk
9 19,06 Vignir Már Lýðsson Hlaupaskór.is
10 19,08 Bjarnsteinn Þórsson Skokkklúbbur Garðabæjar
       
Konur      
SÆTI TÍMI NAFN FÉLAG/HLAUPAHÓPUR
1 18,27 Arndis Ýr Hafþórsdóttir Fjölnir
2 19,11 María Kristín Gröndal Hlaupahópur FH
3 19,31 Jóhanna Skúladóttir Ólafs
4 21,07 Þórdís Eva Steinsdóttir Hlaupahópur FH
5 21,08 Helga Guðmundsdóttir Skokkhópur Hauka
6 21,12 Jenný Harðardóttir FH
7 21,40 Sif Jónsdóttir ÍR Skokk
8 21,49 Guðbjörg H. Björnsdóttir Laugaskokk/Team Under Armour
9 22,15 Brynhildur Ýr Ottósdóttir ÍR  
10 23,00 Sigrún Erlendsdóttir Laugaskokk/Team Under Armour

Heildarúrslit eru komin inn á www.hlaup.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Atlantsolíuhlaupið heppnaðist vonum framar

Umfjöllun um hhfh á mbl.is

Smelltu á myndina til að sjá umfjöllun.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Ein athugasemd

Minnum á hlaupaseríu FH og Atlantsolíu sem hefst 27. jan

Næstkomandi fimmtudag kl. 19:00 fer fram fyrsta Atlantsolíuhlaupið sem er hluti af hlaupaseríu FH og Atlantsolíu og haldið er af hlaupahópi FH og frjálsíþróttdeild félagsins. Þjálfarar vilja hvetja sem flesta til að taka þátt í hlaupinu (sjá nánari upplýsingar í auglýsingu inn á www.hhfh.is og www.hlaup.is) Þriðjudaginn 25. janúar verðum við með skráningarmiða á æfingu og eru félagar hvattir til að kaupa skráningarmiða og losna við raðir á fimmtudag. Skráningarfyrirkomulagið er það sama og í Powerade-hlaupaseríunni.

Ef einhverjir geta ekki hlaupið þá myndum við þiggja aðstoð frá ykkur við framkvæmd hlaupsins. Mæting fyrir starfsmenn er kl. 18:15.

Laugardaginn 12. febrúar stendur okkur til boða að mæta á þorrablót frjálsíþróttadeildar FH og væri gaman ef félagar myndu fjölmenna og eiga notalega kvöldstund saman. Allar nánari upplýsingar er að finna undir Myndefni hér á síðunni (Tilkynningar).

Sjáumst annars á næstu æfingu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Hlaupahópur FH 1. árs gamall

Fimmtudaginn 20. janúar fagnar Hlaupahópur FH 1. árs afmæli. Viðtökurnar hafa verið ótrúlegar á þessu fyrsta starfsári hópsins og er óhætt að fullyrða að hópurinn er svo sannarlega kominn til að vera. Eftir hlaup á fimmtudag ætlum við að fá okkur afmælisköku og fagna. Einnig ætlum við að ræða ferð hópsins til Kölnar næsta haust en nokkuð margir félagar hafa þegar sýnt áhuga á að keppa í 1/2 eða heilu maraþoni sem er þar í boði. Er það von þjálfara að nokkuð stór hópur stefni á ferðina og úr verði hið skemmtilegasta ævintýri.

Hvetjum við félaga til að mæta á fimmtudag og fagna með okkur.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | 24.347 athugasemdir

Hlaupahópur ársins 2011

Hlaupahópur ársins 2011

Í dag fékk Hlaupahópur FH viðurkenningu frá Framförum, hollvinafélagi millivegalengda- og langhlaupara sem hlaupahópur ársins árið 2011. Þetta er frábær viðurkenning fyrir hópinn sem fagnar eins árs afmæli í næstu viku. Sjá nánar í frétt inn á mbl.is

Eftir æfingu næstkomandi fimmtudag stefnum við á að fá okkur afmælisköku og ræða tilvonandi utanferð hópsins næsta haust. Er stefnt á að keppa í Köln 2. október. Í boði eru þrjár keppnisvegalengdir, þ.e. 10km, hálft og heilt maraþon. Eru nokkuð margir félagar í hópnum sem hafa tekið stefnuna á heilt maraþon. Allar nánari upplýsingar um keppnina í Köln má finna inn á http://www.koeln-marathon.de/en
Við munum ræða áhuga félaga á ferðinn og mögulega ferðatilhögun til Kölnar.
Sjáumst á næstu æfingu á þriðjudag.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | 3 athugasemdir

Keppnir sem eru framundan

Næstkomandi fimmtudag fer fram fyrsta Poweradehlaup ársins og hvetja þjálfarar sem flesta úr hlaupahópnum að mæta og taka þátt.

Þann 27. janúar hefst Hlaupasería Atlantsolíu og FH og verða haldin þrjú 5km hlaup. Vonast þjálfarar að sem flestir úr hópnum taki þátt. Ef einhverjir verða ekki með þá væri aðstoð vel þegin við framkvæmd hlaupsins og vinsamlega látið þá þjálfara vita hafið þig tíma og áhuga.
Allar upplýsingar um hlaupið er að finna inn á www.hlaup.is en sama fyrirkomulag verður notað og í Poweradehlaupunum sem flestir hafa tekið þátt í.

Mætingin hefur verið góð undanfarið þrátt fyrir kulda og rok. Á morgun þriðjudaginn 11. janúar fara allir hóparnir á brautina og vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollir.

komaso
Auglýsing á pdf formi

5km Atlantsolíu FH Keppnishlaup

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Góður árangur á Gamlársdag

Þjálfarar óska öllum farsældar á nýju ári og megi 2011 verða enn betra en 2010.

Fjöldi félaga í hlaupahópnum keppti á síðasta degi ársins í Gamlárshlaupum sem voru bæði í boði í Hafnarfirði og í Reykjavík. Rúmlega 20 kepptu í Gamlárshlaupi ÍR og voru margir að enda árið á persónulegu meti í 10km. Fyrstur af körlum var Friðleifur sem hljóp á 36,08 mín sem er persónulegt met. Í kvennaflokki hljóp María Kristín á 40,55 mín og varð hún í fjórða sæti. Annars voru allir að standa sig frábærlega vel. Öll úrslit er hægt að nálgast inn á www.hlaup.is

Í lok janúar hefst hlaupasería Atlantsolíu og FH og hvetjum við sem flesta í hópnum til að mæta og taka þátt. Vegalengdin er 5km og ætti að henta sem flestum.

Sjáumst hress á æfingu á þriðjudag.
komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Góður árangur á Gamlársdag