Næstkomandi fimmtudag fer fram þriðja Poweradehlaup vetrarins. Í síðasta hlaupi kepptu 16 manns úr hlaupahópnum og vonandi verða þeir fleiri í þetta skiptið.
Þann 12. des. stendur Hafnarfjarðarbær fyrir Kaldárhlaupinu – Víðavangshlaup 10km. Hlaupaleiðin er farvegur Hamarskotslækjar. Hlaupið hefst kl. 13:00 og ætti að vera góð æfing fyrir alla í hópnum. Allar upplýsingar um hlaupið má nálgast inn á www.hlaup.is en þar fer jafnframt fram skráning.
Góð mæting hefur verið undanfarið og hátt í 80 manns eru að mæta á þriðjudögum, rúmlega 50 á fimmtudögum og svo rúmlega 30 á laugardögum. Það sem er ánægjulegt er að flestir sem missa af æfingum á laugardögum hreyfa sig í staðinn á sunnudögum og það er greinilegt að áhuginn og metnaðurinn er mikill hjá félagsmönnum. Eru félagar hvattir til að skrá sig inn á hlaupadagbókina (www.hlaup.com) en í dag eru rúmlega 80 manns skráðir, sumir þó misvirkir. Að halda æfingadagbók veitir gott aðhald og það er alltaf gaman að geta skoðað aftur í tímann hvernig maður hefur æft.
Í lokin vilja þjálfarar hvetja alla félagsmenn til að vera vel merktir endurskini á æfingum.
Sjáumst á æfingu á þriðjudag,
komaso