Því miður varð að aftengja RSS tenginguna við hlaup.com, sem gerði okkur kleift að sýna hreyfingu félaga okkar hér á síðunni okkar. Svona tengingar valda, því miður, miklum hægagangi hjá hlaup.com, sérstaklega á álagstímum á kvöldin og um helgar.
En við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að halda áfram að nota hlaup.com og skrá hreyfingu ykkar þar, og fylgjast þannig með framförum ykkar.