Hlaupavika í Intersport

Hlaupafélagar ath.
Nú stendur yfir hlaupavika í Intersport fyrir „hlaupavini“ í tilefni af Reykjarvíkurmaraþoni Íslandsbanka. Hlaupaviku lýkur á föstudag kl. 18.00
Þar er boðið upp á 20% afslátt af hágæða hlaupafatnaði frá Newline og 20% afslátt af öllum gerðum af hlaupaskóm.
Fullt af nýjum vörum og öll helstu merkin. Úrval af hlaupahlutum eins og beltum, sokkum, hlaupageli og fleiru og fleiru.

Nú er um að gera að kíkja í Intersport og gera góð kaup fyrir hlaupið.
Nóg er að sýna afsláttarkortið eða vísa í þjálfara og/eða hlaupahóp til að fá afslátt.

Bestu kveðjur Starfsfólk Intersport- Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllin).

Opið til 10.00-18.00 alla daga
Nánari uppl. veitir Laufey: laufey@intersport.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupavika í Intersport

Æfingaáætlun vikunnar

Nú styttist í Reykjarvíkurmaraþonið og því létt æfingavika framundan. Á morgun tökum við nokkra létta spretti. Ef þið eruð ekki búin að svara könnuninni hvort þið ætlið að mæta upp í Sundhöll eftir RM á laugardaginn þá endilega gerið það strax í dag, einungis 37 búnir að svara.
Komaso
P.s. smellið á myndina til að stækka
18-24 agust

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingaáætlun vikunnar

PARTÝ PARTÝ PARTÝ þann 23. ágúst.

Búið er að bóka Sundhöll Hafnarfjarðar fyrir sundlaugarpartý eftir Reykjarvíkurmaraþonið 23. ágúst og stendur gleðin milli 12-16. Grillað verður á staðnum en félagar koma með sína eigin drykki. Til að hægt sé að áætla magn af mat biðjum við ykkur að svara spurningakönnuninni hér að neðan.
Frekari upplýsingar koma þegar nær dregur.
Hvað er er betra en að fagna með félögunum eftir eitt af skemmtilegri stemmingshlaupum ársíns?

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við PARTÝ PARTÝ PARTÝ þann 23. ágúst.

Æfingaáætlun vikuna 11-17.ágúst

Seint er betra en aldrei eins og maðurinn sagði 🙂
11-17 agust

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingaáætlun vikuna 11-17.ágúst

Tindahlaup

Download (PDF, 1.86MB)

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Tindahlaup

Landvættir

Þau Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, Finnur Sveinsson og Sveinbjörn Sigurðsson luku stórum áfanga í gær þegar þau hlutu titilinn Landvættur eða öllu heldur Landvættir þegar þau luku 4 af 4 þrautum með því að hlaupa 32,7 km í Jökulsárhlaupinu.
Þar á undan voru þau búin með 50 km skíðagöngu, Fossavatnsgönguna, Urriðasundið 2,5 km og 60 km Blálónsþrautina (hjólreiðar). Rúmlega 145 km ef fréttaritara reiknast rétt.
Við í hlaupahópnum óskum þeim innilega til hamingju með þetta afrek og hlökkum til að fara að sjá meira af þeim á ný á hlaupaæfingum ;o)

Landvaettir

Nánar um Landvættina: http://www.landvaettur.is/

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Landvættir

Laugardagsæfingin

Þjálfaralaust verður á laugardaginn þar sem Ingólfur verður með stórum hluta hlaupahópsins í Jökulsárhlaupinu og Pétur upptekinn. Lítill fugl laumaði því að vefstjórum á síðustu æfingu að Pétur ætti einmitt brúðkaupsafmæli þennan dag, til hamingju með það Pétur. Gerðu nú eitthvað annað en að hlaupa!
Við hvetjum þó alla sem eru á svæðinu til að mæta á æfingu kl. 9 og hlaupa saman (því það er svo gaman) en munið að kíkja á hlaupaplanið áður en lagt er af stað að heiman.
Sjáumst svo öll á æfingu á þriðjudaginn.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Laugardagsæfingin

Æfingarvikan fyrir Jökulsárhlaup

Jæja nú er einungis 3 dagar, 22 klst. og 15 mín. í brottför og ekki laust við að komin sé spenna í hópinn. Æfingar vikunnar verða því í léttari kantinum:
4-10 agust

Nú eru skráðir 335 manns í Jökulsárhlaupið og stefnir i met, þar af eru um 60 FH ingar. Stefnt er að fara af stað á föstudeginum 8. ág kl. 13.00 frá Kaplakrika. Mætið tímanlega. Búið er að panta súpu og salat á leiðinni. Nánari tímasetningar og plan kemur í vikunni ef þið hafið eh spurningar þá hafið þá endilega samband við Svenna.

Tekið af vef Jökulsárhlaupsins:
Á hlaupadaginn þurfa þátttakendur að mæta í Gljúfrastofu, gestastofu þjóðgarðsins í mynni Ásbyrgis, til að fá hlaupanúmer. Tímasetning mætingar er mismunandi eftir hlaupavegalengd

Hlauparar eru vinsamlegast beðnir að virða tímamörkin og vera mættir tímanlega. Hægt er að skipta um föt á salernum í kjallara Gljúfrastofu.

Hér er tímaáætlun fyrir mætingu, brottför og upphaf hlaupa:

Hlaupaleið Mæting í Gljúfrastofu Brottför rútu Hlaupið byrjar kl.

Dettifoss – Ásbyrgi 08:30 09.30 11.00
Hólmatungur – Ásbyrgi 09.30 10.30 12.30
Hljóðaklettar – Ásbyrgi 11.00 12.30 13.30

Farið er á rútum að rásmarki á stöðunum þremur (Dettifoss, Hólmatungur, Hljóðaklettar). Aðstæður við rásmark eru mismunandi en gert er ráð fyrir að eftir rútuferðina hafi hlauparar einhverja stund (10-20 mín.) til að liðka sig fyrir hlaupið. Engin búningsaðstaða er við rásmörk og þar eru ekki vatnssalerni, aðeins þurrsalerni.

Þátttakendur geta skilið eftir merkta poka með hlífðarfötum oþh. í rútunni og nálgast þá við markið í Ásbyrgi að hlaupi loknu. Ekki er tekin ábyrgð á verðmætum í þessum pokum.

Hlauparar eru vinsamlegast beðnir um að fara ekki á einkabílum að rásmarki. Bílastæðin á hverjum stað eru ekki stór og nauðsynlegt er að rúturnar sem flytja hlaupara geti komist greiðlega til og frá rásmarki.

Hérna er síðan kort af hlaupaleiðinni: kortafleidinnimehargrafi

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hlaupsins: http://www.jokulsarhlaup.is/

Þetta verður eitthvað!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingarvikan fyrir Jökulsárhlaup

Það styttist í Jökulsárhlaupið – Allt á fullu

Það styttist í Jökulsárhlaupið sem verður 9.ágúst nk. og ekki seinna vænna en að reima á sig skóna og ná púlsinum upp fyrir þann sprettinn.
Svenni okkar, Sveinbjörn Sigurðsson, heldur utan um rútuferðir og gistinguna en þau ykkar sem komið með og sérstaklega þau ykkar sem ætla að hlaupa sjá um rest sjálf…að sjálfsögðu 😉
Þetta verður bara snilld !
Læt fylgja æfingaáætlun fyrir dagana 28.júlí – 3.ágúst fyrir ALLA konur og kalla.
28 juli-3 agust

Við óskum einnig verðandi Landvættum til hamingju með afrekið en þau þreyttu Urriðavatnssundið 26.júlí sl. og stóðu sig frábærlega að sjálfsögðu !
Nú svo hafa félagar verið iðnir við hlaup, göngur og hjólreiðar svo eitthvað sé nefnt og mannskapurinn því greinilega í hörku formi 🙂
Hlakka til að hitta ykkur öll aftur á æfingu eftir langt og frískandi sumarfrí.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Það styttist í Jökulsárhlaupið – Allt á fullu

Æfingaáætlun 21-27.júlí

Jæja, við erum ekkert hætt að æfa þótt við séum í sumarfríi eða á skátamóti fyrir norðan EF einvher var á þeim skónum sko ! 😛
21-27 juli

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingaáætlun 21-27.júlí