Posts by thordis:

    Hlaupasería FH-BOSE, hlaup 2 af 3

    febrúar 20th, 2018

    Annað hlaupið í hlaupaseríu FH og BOSE verður haldið fimmtudaginn 22. febrúar kl. 19. Vegalengd er 5 km með tímatöku (löglega mæld braut og flögutími). Skráningargjaldið er 1.000 kr.

    https://www.facebook.com/events/464038880677542/

    Við minnum á að fyrstu 150 sem skrá sig eiga möguleika á veglegum útdráttaverðlaunum!

    Keppendur fá einnig svalandi Powerade-drykk eftir hlaup og allir sem skrá sig fá 15% afslátt í netverslun Origo!

    Hlökkum til að sjá ykkur!

              

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería FH-BOSE, hlaup 2 af 3

    Frábærar aðstæður í FH-Bose hlaupinu

    janúar 31st, 2018

    Tekið af facebook síðu hlaupaseríunnar:

    Gríðarleg stemmning og gleði var í Bose hlaupi Hlaupahóps FH sem fór fram í janúar. Arnar Pétursson sigurvegari í karlaflokki var hæstánægður með brautina enda búið að salta vel í hálkunni. Hann sagði aðstæður frábærar þrátt fyrir að hlaupið væri janúar.

    https://www.youtube.com/watch?v=kJQgpqFK1Ik

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Frábærar aðstæður í FH-Bose hlaupinu

    Hlaupasería FH og BOSE hefst fimmtudaginn 25.janúar

    janúar 22nd, 2018

    FH-BOSE

    Hlaupasería FH og BOSE hefst fimmtudaginn 25.janúar en þá hefst serían á fyrsta hlaupi af þremur.

    Næstu tvö hlaup verða 22.feb og svo 22.mars.

    Allir sem skrá sig fá 15% afslátt í netverslun BOSE.

    https://www.facebook.com/fhkeppni/

    Skráning: https://www.hlaup.is/default.asp?cat_id=1233

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería FH og BOSE hefst fimmtudaginn 25.janúar

    Fræðslufundur fyrir félaga í Hlaupahópi FH

    janúar 31st, 2016

    Fræðslufundur fyrir meðlimi Hlaupahóps FH verður haldinn í Sjónarhól Kaplakrika þriðjudaginn 16. febrúar kl. 20:00.

    Fyrirlesarar:
    Geir Gunnar Magnússon, næringarfræðingur
    Ívar Trausti Jósafatsson, hlaupari

    1779096_10153214701286836_276044393739327425_n
    Boðið verður upp á léttar veitingar. Vonumst til að sjá sem flesta.

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Fræðslufundur fyrir félaga í Hlaupahópi FH

    HLAUPARÖÐ FH OG ATLANTSOLÍU 2016

    janúar 24th, 2016

    FH Atlantsolía 2016

    Þá er komið að hlaupaseríu FH og Atlantsolíu 2016.

    Fyrsta hlaup af þremur verður næstkomandi fimmtudag 28.janúar kl.19:00.

    Hlaupið er frá Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði meðfram strandlengjunni, upp og fram hjá Hrafnistu í átt að Álftanesveginum og snúið þar við og hlaupið sömu leið til baka.

    Hlaupin verða fimmtudagana 28. janúar, 25. febrúar og 31. mars kl.19:00

    Miðinn mun kosta kr. 1.000 og öll umgjörð verður mun flottari en áður. Boðið verður sú nýbreytni að hafa flögur í hlaupinu sem gerir hlaupin mun nákvæmari og úrslitin koma þá strax inn.
    Brautin er löglega mæld.

    Uppskeruhátíðin verður í apríl, verðlaun og fullt af útdráttarverðlaunum.

    Það er búið að opna fyrir forskráningu í hlauparöðina á hlaup.is
    Skráningu á hlaup.is lýkur fimmtudaginn 28. jan kl. 13:00.
    http://hlaup.is/default.asp?cat_id=1233

    Sjá einnig um hlauparöðina á facebook:

    https://www.facebook.com/events/1668589196757334/

     

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við HLAUPARÖÐ FH OG ATLANTSOLÍU 2016

    Árshátíð og uppskeruhátíð HHFH 2015

    nóvember 23rd, 2015

    Uppskeruhátíð Hlaupahóps FH var haldin laugardaginn 21.nóvember síðastliðinn og var dagurinn tekinn snemma með búningahlaupi þar sem alls konar fígúrur og fyrirbæri hlupu í ratleik á svellilögðum götum bæjarins. En aðal fjörið var að sjálfsögðu um kvöldið þar sem félagarnir og makar þeirra mættu í sínu fínasta og skemmtu sér fram eftir kvöldi.

    Af þessu tilefni veita þjálfararnir okkar þrír þau Hrönn Árnadóttir, Ingólfur Arnarson og Pétur Smári Sigurgeirsson ávallt verðlaun fyrir besta árangur í karla og kvennaflokki, framfaraverðlaun í karla og kvennaflokki og að ógleymdum föngulegasta félaganum sem fær sérstök verðlaun ættuð frá félögum okkar í Skokkhópi Hauka.

    Að þessu sinni hlutu eftirfarandi verðlaun:

    Hlaupari ársins í kvennaflokki, Erla Eyjólfsdóttir

    Hlaupari ársins í karlaflokki, Friðleifur Friðleifsson

    Dugnaður og framfarir kvenna, Hrund Eðvarsdóttir

    Dugnaður og framfarir karla, Sigurður Arnar Sigurðsson

    Föngulegasti félaginn, Jón Ómar Erlingsson

    12291200_10207856074617466_6796595320921496792_oFrá vinstri: Hrönn, Jón Ómar (með föngulega félagann), Erla, Hrund, Sigurður Arnar (Addi), Ingólfur og Pétur
    12240293_10207856074497463_4795184815610323728_oFrá vinstri: Jón Ómar, Erla, Hrund, Addi. Á myndina vantar Friðleif.

     

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Árshátíð og uppskeruhátíð HHFH 2015

    HHFH þakkar fyrir stuðninginn og frábæran félagsskap í Bleika hlaupinu 2015 !

    nóvember 1st, 2015

    Samvinna og góður andi einkenndu þennan fagra bleika hóp á laugardaginn. Þökkum fyrir samveruna og stuðninginn við þetta þarfa og góða málefni og hana Eddu okkar.

    Svo ég vitni í hennar eigin orð af síðu Bleika hlaupsins: “Þið brædduð mitt hjarta í dag. Ég er heppin að eiga svona frábæra og hjartahlýja félaga að. Dagurinn var í alla staði æðislegur og eftirminnilegur. Takk fyrir mig”12192986_10207730699003154_1289869614_o

     

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við HHFH þakkar fyrir stuðninginn og frábæran félagsskap í Bleika hlaupinu 2015 !

    október 22nd, 2015

    Auglýsing

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við

    Æfingaáætlun vikunnar 13-19.júlí

    júlí 15th, 2015

    Biðst forláts án afláts … seint er betra en aldrei13-19juliÆfingar-mynd

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Æfingaáætlun vikunnar 13-19.júlí

    Æfingar vikunnar

    júlí 5th, 2015

    6-12juli

    Munið líka Ármannshlaupið sem verður á miðvikudagskvöldið, sjá nánar á hlaup.is

    Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:

    Slökkt á athugasemdum við Æfingar vikunnar