Þriðjudagsæfing

Hlaupaskórnir fengu aldeilis að kenna á því í dag þegar rúmlega 130 manns mættu á æfingu.  Við erum frábær.

Hrönn Árna og Svenni fylgdu nýliðum eftir.  Á dagskrá var að hlaupa í þrjár mínútur, ganga í eina og hálfa, þetta var endurtekið sex sinnum.  Fyrst fóru þau Fjarðarkaupshringinn og svo aðeins inn í Setbergið.  Á göngunni þétti hópurinn sig.

Á brautinni fóru hinir hóparnir spretti.  6-7 x 600-800 metra.

Á hlaup.is og hlaup.com er að finna upplýsingar um keppnishlaup. Endilega kynnið ykkur málið.

Eins og kynnt var á æfingu í morgun mun Silja Úlfars vera gestaþjálfari hjá okkur næstkomandi fimmtudag.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.