Það viðraði ekki vel fyrir brekku og tröppuhlaup í síðustu viku, nú er bara að sjá hvernig vikan verður og hvað þjálfararnir bjóða okkur uppá.
Félagar eru hvattir til að taka þátt í könnuninni hér á síðunni. Þar er verið að kanna hug félagsmanna til að fjölmenna á Hlaupahátíðina á Vestfjörðum í sumar. Þar verður boðið upp á nokkrar vegalendir og ættum við öll að geta fundið eitthavað skemmtilegt við okkar hæfi.
Og svo í lokin er gaman að geta þess að Kári Steinn Karlsson varð í þriðja sæti í Treviso maraþoninu á Ítalíu á 2:18:52. Frábær árangur hjá honum.
KOMASO