Félagakynning

Nú kynnumst við Kristínu Högna.  Hún hefur verið með hópnum frá upphafi, hefur hlaupið maraþon og Laugaveginn.

Nafn: Kristín Högnadóttir

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Ég bý í Hafnarfirði, hef búið hér síðustu 16-18 árin. Annars er ég utan að landi
– frá Fáskrúðsfirði.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Ég byrjaði með HHFH um leið og hópurinn var stofnaður í janúar 2010.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: ég get nú varla sagt það.. á kort í ræktinni en það telst nú varla með! Keypti mér reyndar hjól fyrir ári og nú þarf ég endilega að fara að vera dugleg að rúnta um á fína hjólinu.

Á hvernig skóm hleypur þú: Brooks Glycerin 9, mjög góðir skór.

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: ég hlusta oft á tónlist ef ég fer ein og hlusta þá helst á Coldplay, Of Monsters and Men, Ultravox og fleira gamalt og gott! En ég þarf ekki ipod þegar ég hleyp með HHFH 🙂

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: já ég geri það og finnst það mjög gott. Mér finnst gaman að skoða hversu dugleg ég hef verið í gegnum tíðina 😉

Hver eru hlaupamarkmið þín: mig langar að hlaupa maraþon undir 4 klst. – en nr. 1, 2 og 3 er að njóta þess að geta hlaupið, hafa heilsu til þess.

Hvers vegna HHFH: hentar mjög vel, stutt að fara og afar hresst fólk sem sækir þennan klúbb!

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: fyrir löngu hlaupin fæ ég mér hafragraut eða ristað brauð. Annars fæ ég mér banana, hrökkbrauð eða eitthvað gott.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: ég er svo lánsöm að eiga tvo flotta krakka sem eru í íþróttum og fylgist ég auðvitað stolt með þeim – en annað er leyndarmál!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

VIKA 20

Í næstu viku verður gerð önnur pöntun á jökkum, hægt verður að gera pöntun fyrir æfingu á þriðjudag og fimmtudag.  Fólk er hvatt til að mæta tímanlega og ganga frá sinni pöntun.  Engöngu er í boði að máta og panta þessa tvo daga!

Æfingaáætlun vikunnar er kominn á sinn stað (smellið á töfluna til að stækka hana).  Næstkomandi fimmtudag, uppstigningardag, ætlum við að taka daginn frekar snemma og æfa klukkan 09:30. Á miðvikudag ætlar utanvegahópurinn að hittast við bílastæðið í Kaldárseli klukkan 18:00.

Hér til hliðar, í tenglasafninu, er hlekkur í McMillan hlaupareiknivélina.  Þar er hægt að slá inn sínar forsendur og fá útreiknað á hvaða tíma á að hlaupa hverja æfingu.  Sama hvort um er að ræða spretti eða langa hlaupið á laugardögum.

Þetta verður súperflott hlaupavika.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 20

Silja Úlfars með námskeið og önnur pöntun á jökkum

Aukaæfingar eru er ekki aðeins fyrir afreksíþróttafólk – heldur fyrir alla sem vilja bæta sig.  Silja Úlfars ætlar að bjóða upp á slíkar æfingar – þar sem áherslan verður lögð á  hraðaþjálfun, hlaupatækni og styrktarþjálfun.

Í  boði er 6 vikna námskeið á 9.900 kr. sem hefst 14 maí og er æft 1x í viku og fara æfingarnar fram á hlaupabrautinni í Kaplakrika.

Tímar sem eru í boði eru:
06:15 á föstudögum
12:
00 á föstudögum
18:15 á miðvikudögum

Nánari upplýsingar er að finna hér.

Jakkamál
Í næstu viku verður gerð önnur pöntun á jökkum.  Þau sem áhuga hafa á að fá sér þessa jakka er bent á að mátun fer fram fyrir æfingu á þriðjudag (17:30) og fimmtudag (09:30 við æfum snemma á Uppstigningardag).

Fólk er beðið um að mæta tímanlega fyrir æfingu til að máta og ganga frá pöntuninni.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Áhugavert efni | Slökkt á athugasemdum við Silja Úlfars með námskeið og önnur pöntun á jökkum

Félagakynning

Hún hefur verið með frá fyrsta degi – er hvetjandi og góður félagi.

Nafn: Brynja Björg Bragadóttir.

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Fædd og uppalin í Hafnarfirði, Gaflari í húð og hár.

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Hef verið með frá fyrsta degi 19.janúar 2010.

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Hjóla, syndi, geng á fjöll og geri styrkjandi æfingar í Hress.

Á hvernig skóm hleypur þú: Asics Kayano

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist:
Þarf enga tónlist þegar ég er með skemmtilegum félögum. Svo þarf ég að tala svo mikið á hlaupunum að ég má ekkert vera að því að hlusta á tónlist. Skilst reyndar að þeir sem tala mest séu í besta forminu 🙂

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já hef gert það síðustu 2 ár og mæli eindregið með því.

Hver eru hlaupamarkmið þín: Gæli við að komast hálfa Vesturgötu í sumar en annars bara að njóta þess að hlaupa á meðan maður getur og hafa gaman af.

Hvers vegna HHFH: Félagsskapurinn frábær og hér hefur maður kynnst góðum félögum svo er ég gallharður FH-ingur.

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Virku dagana er það hrískaka með hnetusmjöri eða banani. Á laugardögum er það hafragrautur með kókosmjöli og chiafræum.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin:
Já, fullt af þeim. Börnin eru í sundi, fótbolta, handbolta, frjálsum, ballett og því nóg að gera að fylgjast með þeim. Reyni að koma nokkrum góðum fjallgöngum fyrir og svo hjólum við mikið á sumrin.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

VIKA 19

Ný hlaupavika framundan og er æfingáætlun bæði krefjandi og skemmtileg.

Það er góður gangur hjá nýliðunum og er frábært sjá flottar framfarir hjá þeim.

Hópar 1 og 2 fara á brautina á þriðjudag en nýliðarnir skella sér á hana á fimmtudaginn.

Á miðvikudag hittist utanvegahópurnn í Heiðmörk og æfir þar.

Þetta verður frábær hlaupavika … KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 19

Sólgleraugun

Það voru fínar aðstæður til hlaupa í dag, glampandi sól og stuð.  Því var vel þegið þegar Hrönn Bergþórs mætti með sólgleraugu sem hún bauð til kaups.

Þau ykkar sem fengu sólgleraugu hjá henni leggja inn á reikning hennar; 545-26-105311  kt. 060661-3839.

Gleraugun voru á dúndurverði, aðeins 2.000 kr. stykkið.

Það eru örfá sógleraugu eftir á þessu frábæra verði – hver veit nema Hrönn mæti með með þau á næstu æfingu.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Sólgleraugun

Síðustu jakkarnir

Þau ykkar sem eigið eftir að nálgast nýju jakkana eru hvött til að mæta tímanlega á æfngu á morgun, laugardag og klára málið.

Sjáumst HRESS!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Síðustu jakkarnir

Félagakynning

Hún byrjaði með hópnum sl. haust og stefnir hátt.  Hálft maraþon í sumar – Anna Sigga.

Nafn: Anna Sigríður Arnardóttir, er alltaf kölluð Anna Sigga

Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði

Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: 22. nóvember 2011

Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Hjóla til Reykjavíkur í vinnuna og til baka

Á hvernig skóm hleypur þú: Rebook

Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist:
Stundum en finnst skemmtilegra að spjalla á hlaupum. Í keppnum vil ég hafa tecno-tónlist sem kemur manni úr sporunum.

Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Alltaf

Hver eru hlaupamarkmið þín: Hlaupa hálfmaraþon í sumar

Hvers vegna HHFH: Frábær félagsskapur

Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Banana eða máltíðastöng, get alls ekki hlaupið á fastandi maga.

Og svo að lokum.  Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Fjölskyldan mín, hjól, útivera og að kljást við spennandi verkefni í tölvunni (já, ég er tölvunörd)  :o)

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Félagakynning | Slökkt á athugasemdum við Félagakynning

Þriðjudagsæfing

Hlaupaskórnir fengu aldeilis að kenna á því í dag þegar rúmlega 130 manns mættu á æfingu.  Við erum frábær.

Hrönn Árna og Svenni fylgdu nýliðum eftir.  Á dagskrá var að hlaupa í þrjár mínútur, ganga í eina og hálfa, þetta var endurtekið sex sinnum.  Fyrst fóru þau Fjarðarkaupshringinn og svo aðeins inn í Setbergið.  Á göngunni þétti hópurinn sig.

Á brautinni fóru hinir hóparnir spretti.  6-7 x 600-800 metra.

Á hlaup.is og hlaup.com er að finna upplýsingar um keppnishlaup. Endilega kynnið ykkur málið.

Eins og kynnt var á æfingu í morgun mun Silja Úlfars vera gestaþjálfari hjá okkur næstkomandi fimmtudag.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Þriðjudagsæfing

VIKA 18

Guðni mætti með myndavélina á laugardagsæfinguna til að mynda hlaupafélagana fá afhenta nýju jakkana.  Hér má sjá þau Stein, Ebbu og Maríu Kristínu, æst í að komast af stað.  Á facebook má sjá fleiri myndir.

Hlaupadagbókin, hlaup.com, er opin öllum sem vilja skrá æfingar sínar.  Þar er hægt að velja milli ýmissa íþróttagreina svo sem hlaup, sund o. fl.

Hér eru góðar leiðbeiningar um notkun Hlaupadagbókarinnar, félagar eru hvattir til að nota þetta frábæra tæki, hlaup.com .

Heyrst hefur að beinhimnubólga hafi látið á sér kræla meðal félaga. Annað eins kemur nú fyrir á bestu bæjum.  Á heimasíðu Afls – sjúkraþjálfunnar, má finna fróðleik um beinhimnubólgu.  Gott er að vita hvað veldur.

Ný æfingaáætlun er hægt að nálgast hér.  Við tökum daginn snemma 1. maí, sprettir og stuð.

Mörg keppnishlaup eru í boði næstu vikurnar og hvetja þjálfarar sem flesta til að taka þátt og fá þannig viðmiðunartíma í upphafi keppnistímabilsins.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 18