Það er nú ekki hægt að biðja um það betra! Svona er spáin fyrir alla helgina.
Góð helgi til að hlaupa – KOMASO
Það er nú ekki hægt að biðja um það betra! Svona er spáin fyrir alla helgina.
Góð helgi til að hlaupa – KOMASO
Erna hefur verið með frá því Hlaupahópurinn fór af stað. Hún hjólar, gengur á fjöll og stefnir á hálft maraþon í RM í ágúst!
Nafn: Erna Björk Hjaltadóttir.
Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Ættuð úr Hafnarfirði, alin upp í Ölfusinu en búin að búa í Hafnarfirði í 17 ár.
Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Hef verið með frá fyrsta degi 19.janúar 2010, en það var líka fyrsta hlaupaæfinginn á ævinni.
Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Hjóla í vinnuna í Reykjavík frá byrjun apríl og út september og geng á fjöll á sumrin.
Á hvernig skóm hleypur þú: New Balance og Brooks
Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Ég nota ekki tónlist á æfingum en stefni að því þegar ég er ein.
Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já hef gert það síðustu 2 ár og mæli eindregið með því.
Hver eru hlaupamarkmið þín: Að hlaupa hálft maraþon í RM í sumar, annars bara að njóta þess að hlaupa, hafa gaman af og hlaupa án meiðsla.
Hvers vegna HHFH: Valdi FH vegna þess að það er stutt að fara og ég get hlaupið á æfingar en félagsskapurinn er frábær, verður betri og betri.
Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Á morgnana er það AB mjólk, morgunkorn og kaffi, bananar sem neyðarbiti en þegar ég hreyfi mig mikið er ég sísvöng.
Og svo að lokum. Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já, ótalmörg. Fyrst og fremst að fylgja börnunum eftir í íþróttum og tónlist. Að ganga á Hornströndum á hverju sumri. Það er alltaf á stefnuskránni að hjóla aftur við Bodense helst frá Vín. Eyða tíma með fjölskyldu og vinum innan dyra sem utan.
Maraþonboðhlaup FRÍ fer fram þann 5. júní 2012 á fimm stöðum á landinu, í Reykjavík, á Akureyri, á Ísafirði og á Egilsstöðum. Hlaupið er boðhlaupskeppni þar sem allt að sjö hlauparar skipa eitt lið. Hver liðsmaður hleypur að minnsta kosti einn hring af sjö hringja hlaupaleið. Heildarvegalengdin sem er hlaupin er hálft maraþon eða 21,097 km og því hver hringur 3 km. Keppt er í samtals 8 flokkum á höfuðborgarsvæðinu og 4 flokkum á landsbyggðinni. Allir þátttakendur fá staðlað viðurkenningarskjal með myndum af Ólympíuhópi FRÍ 2012 og að loknu hlaupi fer fram happdrætti á staðnum þ.s keppnisnúmer gildir sem happdrættismiði.
Markmiðið með Maraþonboðhlaupi er fyrst og fremst að auka stuðning við íslenska frjálsíþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í London næstkomandi sumar. Einnig er markmiðið að vekja aukna athygli á íþróttinni og benda á að götuhlaupin eru hluti af frjálsum íþróttum.
Nánar um viðburðinn hér.
Það er flott hlaupaveður í kortunum og verður án efa fjölmenni á æfingum.
Félagar Hlaupahópsins eru duglegir við að taka þátt í keppnum, bæði hér heim og erlendis. Þó nokkrir tóku þátt í Valshlaupinu sem fram fór í strekkings vindi í vikunni. Úrslitin má sjá hér.
Félagar okkar Jón Ómar Erlingsson og Ásta Kristjánsdóttir tóku þátt í Edinborgarmaraþoninu nú fyrr í dag. Úrslit liggja ekki fyrir, en við vitum að Jón Ómar hljóp á flottum tíma. Til hamingju með árangurinn.
Þegar við getum ekki hlaupið á gangstéttum og göngustígum og verðum að fara út á götu þá hlaupum við á móti umferð og hlaupum vel út í kannti.
Ný æfingaáætlun hefur litið dagsins ljós. Álagið eykst á okkur enda styttist í Vesturgötuna, Laugavegshlaupið og ekki síður í Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram í ágúst.
KOMASO…
Síðasta jakkamátun fer fram fyrir æfingu á morgun fimmtudag.
Mætið tímanlega og gangið frá pöntun.
Miðvikudaginn 23. maí kl. 18.00 verður víðavangshlaupi Stjörnunnar hleypt af stokkunum. Stefnt er að því að gera þetta að árlegum viðburði þar sem Stjörnufólk og allir sem hafa gaman af hreyfingu mæti og skemmti sér saman í góðu hlaupi.
Hlaupið verður ræst og endar við Vífilstaðaspítalann. Boðið er upp á 10 km keppnishlaup og 4,5 km skemmtiskokk fyrir alla fjölskylduna. Þetta eru skemmtilegar hlaupaleiðir, annars vegar um Vífilstaðavatn (4,5 km) og hins vegar á göngustígum Heiðmerkur (10 km). Nú er um að gera að hvetja alla til að taka þátt og hafa gaman af þessu. Þátttökugjald er 1.000 kr fyrir 16 ára og eldri en 500 kr fyrir 15 ára og yngri.
Við hvetjum keppnisflokka Stjörnunnar til að mæta á svæðið og taka þátt í hlaupinu.
Skráning fer fram á www.hlaup.com eða á keppnisstað fyrir hlaup. Þáttakendum er bent á að mæta tímanlega eða í síðasta lagi 30 mínútum fyrir hlaup.
Jakkamátun fer fram fyrir æfingu á morgun þriðjudag.
Mætið tímanlega og gangið frá pöntun.
Verðið er 10.500 kr. með merkingu.
KOMASO
Öll lendum við í því að tapa gleðinni á æfingum. Hættum að hafa gaman af þessu hlaupabrölti okkar og erum jafnvel við það að hætta þessu alveg.
Okkur finnst árangurinn láta á sér standa, framfarirnar ekki miklar, okkur finnst við vera að hjakka í sama farinu endalaust.
Ég held að við verðum flest öll fyrir þessari reynslu, málið er bara hvernig við tökum á því. Gefumst við upp og hættum þessu alveg eða bítum við á jaxlinn og látum okkur hafa það. Gleðin finnur okkur á endanum og árangurinn sem okkur finnst láta á sér standa er hérna, það sjáum við svo sannarleg á Hlaup.com.
En hvað getum við gert þegar allt virðist ómögulegt og hund leiðinlegt?
Æfingaáætun vikunnar er hér. Þetta verður rosalega æðislegt.
KOMASO.
Af óviðráðanlegum orsökum er því miður er ekki hægt að máta og panta jakka á morgun, fimmtudag, eins og til stóð, þetta frestast um einhvern tíma. Nánar auglýst síðar!