Jakkarnir verði afhentir fyrir æfingu á morgun, laugardag, frá 8:30.
Þau sem komast ekki á æfinguna þurfa ekki að örvænta því í næstu viku verður Jakkanefndin með þá til afhendingar fyrir æfingu.
Sjáumst á morgun …
KOMASO
Jakkarnir verði afhentir fyrir æfingu á morgun, laugardag, frá 8:30.
Þau sem komast ekki á æfinguna þurfa ekki að örvænta því í næstu viku verður Jakkanefndin með þá til afhendingar fyrir æfingu.
Sjáumst á morgun …
KOMASO
Báðir helmingarnir eru í hópnum. Við erum búin að kynnast Margréti, nú er komið að Þorsteini.

Nafn: Þorsteinn Sigurmundason
Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Hafnarfirði
Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Febrúar 2010
Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Golf, hjóla stundum og líkamsrækt í Hress
Á hvernig skóm hleypur þú: Under Armour
Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Nei ekki mikið, fæ stundum lánaðan ipod dóttur minnar og hlusta þá á lög sem ég kannast ekkert við.
Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Nei, þarf að bæta úr því.
Hver eru hlaupamarkmið þín: 40 mín 10km. 1:50:00 21km. Og stunda
utanvegahlaup meira.Hvers vegna HHFH:ótrulega skemmtilegir og jákvæðir
hlaupafélagar, snilldarþjálfarar sem halda utan um allt saman.
Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Eitthvað létt t.d ristað brauð og kaffi, próteinstöng, banana.
Og svo að lokum. Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Golf, knattspyrnudómgæsla, ferðalög, garðurinn, skíði og fylgja börnunum í þeirra íþróttaiðkun.
Það var flott æfing hjá okkur í dag. Nýliðarnir skelltu sér á efra grasið og skokkuðu þar sitt prógram undir stjórn þeirra Steins og Finns.
Hinir hóparnir tættu í brekku fram og til baka. Stefnan var sett á Mosahlíð þar sem var vel tekið á því. Hlaupnir voru ýmist 6-10 sprettir frá 45 sek og upp í 1. mínútu. Það var mikið kapp í fólki, en þetta var fyrst og síðast bara skemmtilegt.
Eins og fram hefur komið þá er fræðslufundur á dagskrá á morgun í Kaplakrika klukkan átta. Allir hvattir til að mæta.
Jakkarnir verða afhentir á fimmtudaginn. Hægt er að leggja inn á reikning Hlaupahópsins 0327-26-9036 og kennitala 681189-1229, prenta út kvittun og sýna þegar jakkinn er sóttur. Eins er hægt að greiða á staðnum. Hann kostar 10.500.-
Þeir nýliðar sem ekki hafa skráð sig í hópinn er bent að senda tölvupóst á þálfara hópsins;
Pétur petur(a)myllan.is
Stein steinn.johannsson(a)gmail.com
Hrönn hronn(a)lsr.is
Sjáumst á morgun!
Nýliðin helgi var viðburðarík eins og fyrr hefur komið fram, það er greinilegt að æfingar vetrarins eru að skila sér.
Miðvikudaginn 25. apríl klukkan 20:00 verður fræðslukvöld hjá Hlaupahópnum haldið í Sjónarhól, Kaplakrika. Þar mun stjórnin fara yfir hlaupasumarið og haustið. Við fáum fyrirlestur frá Lýð B. Skarphéðinssyni, skódoktor. Eins verða vörukynningar og fleira. Nánar um þetta á þriðjudagsæfingunni. Allir eru hvattir til að mæta, bæði nýir og gamlir félagar.
Búið er að setja inn æfingaáætlunina. Það eru brekkursprettir á þriðjudaginn, fimmtudagurinn er hefðbundinn. Aukaæfing er á miðvikudag klukkan sex, þar sem áhersla er lögð á utanvegahlaup. Sá hópur hittist í Heiðmörk. Svo er náttúrulega langur laugardagur 🙂
KOMASO
Vormaraþon Félags maraþonhlaupara fór fram nú í morgun. Aðstæður voru alveg meiriháttar og frábært hlaupafæri. Fyrstur af okkar fólk var Friðleifur Friðleifsson, allir tímar verða aðgengilegir á hlaup.com.
Hægt er að skoða myndir af hlaupafélögum, sem teknar voru að hlaupi loknu, á Facebook síðu Hlaupahópsins.
Við óskum félögum okkar til hamingju með hlaupið.
Félagar Hlaupahóps FH voru á þönum víða í dag. Þó það hafi ekki verið eiginleg æfing á dagskránni mættu hátt í 40 nýliðar upp í Kaplakrika og hlupu undir stjórn Hrannar.
97. Víðavangshlaup ÍR fór fram að vanda, og luku 446 hlaupara keppni í blíðskaparveðri. Í fyrsta sinn fór fram Íslandsmeistrarmót í 5 km hlaupi og 5 manna sveitakeppni og var að skemmtileg viðbót við annars flott hlaup, sem einnig var hluti af Powerade hlauparöðinni.
Þó nokkrir félagar Hlaupahóps FH tóku þátt og gerðu góða hluti. Nokkur PB sjást á hlaupadagbókinni 🙂 Til hamingju.
Haraldur Tómas Hallgrímsson kom fyrstur okkar fólks í mark á tímanum 16:49.
Annar af okkar fólki varð Friðleifur Friðleifsson á tímanum 17:13.
Og þriðji var Finnbogi Gylfason en hann hljóp á tímanum 18:17.
Úrslit hlaupsins eru hér.
Hittumst á æfingu á laugardaginn.
KOMASO
Það var margmenni á æfingu í dag í frábæru veðri. Uppi á efra grasi hlupu nýliðarnir undir stjórn Hrannar á meðan hinir hóparnir tóku hressilega á því á brautinni. Í boði voru langir sprettir, annars vegar 6-10x 400 m. og hins vegar 4-6 x 1000 m. Tartanið fékk aldeilis að finna fyrir röskum fótum. Á undan var hlaupin hefðbundinn upphitunarhringur og eftirá skokkaði fólk ýmist Fjarðarkaupshring, rólega á grasinu og sumir notuðu niðurskokkið til að koma sér heim.
Rétt er að vekja athygli á því að mæting á þriðjudags og fimmtudagsæfingar er í Kapla en við Suðurbæjarlaug á laugardögum.
Það hefur orðið breyting hvað varðar fimmtudaginn en þá átti ekki að vera eiginleg æfing heldur átti hver og einn að hlaupa eftir sínu höfði. En Hrönn ætlar að mæta upp í Kapla og hlaupa með nýliðunum, því er upplagt fyrir fleiri að hittast þar og hlaupa sínar vegalengdir. Stefnan er að hittastk klukkan 9:30.
Munum eftir hlaup.com
KOMASO
VIKAN
Á fimmtudag, Sumardaginn fyrsta, er ekki eiginleg æfing á dagskránni en félagar eru hvattir til að æfa sjálfir samkvæmt æfingaáætlun eða taka þátt í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar sem fram fer á Víðistaðatúni og hefst klukkan 11:00, eða Víðavangshlaupi ÍR.
VESTURGATAN
Búið er að festa gistingu í gömlum sveitabæ í Önundarfirði sem heitir Hvilft. Hvilft er 40 km frá Þingeyri og 20 km frá Ísafirði. Það er verið að gera upp innanstokksmuni og húsið er með ágætu eldhúsi, 8 herbergjum og 2 baðherbergjum. Það verður þó að gera ráð fyrir að fólk noti sundlaugarnar í stað sturtu í húsinu. Við höfum afnot af húsinu frá fimmtudegi til mánudags eða fjórar nætur.
Herbergin eru með rúmum, en fólk þarf að koma með eigin sængur eða svefnpoka.
Kostnaðurinn fer eftir því hve margir nýta sér þetta og því er nauðsynlegt þeir sem hafa áhuga á að nýta sér aðstöðuna, annað hvort herbergi eða vera með tjald/tjaldvagn senda tölvupóst á Finn, fisv(a)simnet.is sem fyrst.
Nánar um Hlaupahátíðna og Vesturgötuna má sjá hér.
KOMASO.
ÆFINGIN Í GÆR
Það var súperflott mæting á æfingu í gær. Nýliðar fjölmenntu svo um munaði, þeir voru 83 talsins og kom það okkur öllum svo sannarlega á óvart. Steinn og Hrönn Árna fóru með hópinn upp á efra gras þar sem þeir hlupu sín fyrstu, en vonandi ekki síðustu, skref með okkar frábæra Hlaupahópi.
Þó nýtt nýliðanámskeið sé formlega hafið getur fólk að sjálfsögðu slegist í hópinn, og eru áhugasamir hvattir til að mæta á næstu æfingu á laugardaginn, þá hlaupum við frá Suðurbæjarlaug, nú eða mæta á þarnæstu æfingu … KOMASO.
JAKKAMÁL
Eins og fram kom á spjallinu fyrir æfingu eru jakkarnir komnir til landsins og eru farnir í merkingu. Þeir kosta 10.500 krónur og er hægt að greiða inn á reikning Hlaupahópsins 0327-26-9036 og kennitala 681189-1229, prenta út kvittun og hafa hana með sér þegar jakkarnir verða afhentir, væntanlega strax í næstu viku. Eins er hægt að koma með pening á æfingu og staðgreiða, þegar jakkarnir eru klárir.
BÍLASTÆÐIN VIÐ SUÐURBÆJARLAUG
Þau sem koma á bílum á laugardagsæfingarnar er bent á að leggja bílum sínum ekki á bílastæðinu við laugina, heldur við leikskólann við Smárabarð og rölta yfir í laug. Þetta eru ekki nema 178 metrar. Það er óþarfi fyrir okkur að teppa bílastæðin við laugina, við erum svo létt á fæti að okkur munar ekkert um að ganga þessa metra.
HAUKAR HLAUPA
Félagar okkar í Skokkhópi Hauka standa fyrir afmælishlaupi í tilefni 81 árs afmælis Hauka, laugardaginn 14 apríl nk. og hefst það klukkan 11:00. Hlaupið er frá Ásvöllum. Tvær vegalendir eru í boði 3 km og 8,1 km. Þetta er létt og skemmtilegt fjölskylduhlaup. Nánar um það hér.
Svenni hefur kennt okkur að teygja okkur og toga – og gefið okkur góð ráð ef einhverjir hlaupaverkir eru að plaga okkur. Hann ætlar að hlaupa langt í sumar.
Í hvaða bæjarfélagi býrðu: Á besta stað í Hafnarfirði.
Hvenær hófst þú æfingar með HHFH: Með frá byrjun í janúar 2010.
Stundar þú aðra hreyfingu en hlaup: Hjóla, syndi og fer á skíði þegar tækifæri gefst.
Á hvernig skóm hleypur þú: Hef hingað til eingöngu hlaupið á Asics, en er nú að breyta til og kominn á Brooks og Saucony.
Hlustar þú á tónlist þegar þú hleypur og þá hvernig tónlist: Hlustaði á tónlist fyrstu mánuðina með hlaupahópnum, alveg þangað til Gísli „ heilsaði mér ekki „ á Gíslastöðum.
Skráir þú hreyfingu þína á hlaup.com: Já, alveg bráðnauðsynlegt. Veitir mikið aðhald og gott að fylgjast með hlaupabræðrum og systrum.
Hver eru hlaupamarkmið þín: Hafa gaman að og stefna á eitt stórt hlaup á hverju ári, nú er það Laugavegurinn í sumar.
Hvers vegna HHFH: Flottur félagsskapur sem heldur mér við efnið, frábærir þjálfarar og flott aðstaða.
Hvað færð þú þér að borða fyrir æfingu: Engin sérstök regla á því.
Og svo að lokum. Áttu þér önnur áhugamál fyrir utan hlaupin: Já fullt eins og útivist, fjallganga,skíði, skotveiði og stangveiði.