Laugardagsæfingin

Þjálfaralaust verður á laugardaginn þar sem Ingólfur verður með stórum hluta hlaupahópsins í Jökulsárhlaupinu og Pétur upptekinn. Lítill fugl laumaði því að vefstjórum á síðustu æfingu að Pétur ætti einmitt brúðkaupsafmæli þennan dag, til hamingju með það Pétur. Gerðu nú eitthvað annað en að hlaupa!
Við hvetjum þó alla sem eru á svæðinu til að mæta á æfingu kl. 9 og hlaupa saman (því það er svo gaman) en munið að kíkja á hlaupaplanið áður en lagt er af stað að heiman.
Sjáumst svo öll á æfingu á þriðjudaginn.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.