VIKA 3

MÍ ÖLDUNGA
FH sigraði í þriðja sinn í röð í stigkeppni Meistaramóts Íslands innanhúss í frjálsum íþróttum öldunga og fékk 210 stig. Fjölnir varð í 2. sæti með 110 stig og ÍR í þriðja sæti með 105 stig.

Flestir keppenda FH komu úr Hlaupahópi FH eða átta af ellefu. Fengu FH-ingar 21 gull, 12 silfur og 6 brons.

Árangur FH-inganna var eftirfarandi:
Guðni Gíslason 1957: 6 gull
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, 1965: 4 gull
Ebba Særún Brynjarsdóttir, 1982: 3 gull 1 silfur
Trausti Sveinbjörnsson, 1946: 3 gull 1 silfur
Sigurður Pétur Sigmundsson, 1957: 2 gull
Friðleifur Friðleifsson, 1970: 1 gull
Hrönn Árnadóttir , 1979 1 gull 2 silfur
Pétur Smári Sigurgeirsson, 1970 1 gull 2 silfur 2 brons
Helgi Harðarson, 1961 3 silfur 2 brons
Sigurður Haraldsson , 1960: 1 silfur
Steinn Jóhannson, 1968: 3 silfur 1 brons
FH samtals: 21 gull, 12 silfur, 6 brons.

Einstök úrslit má sjá hér: http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib2014D1.htm

LANGHLAUPARI ÁRSINS
Ákveðið hefur verið að framlengja kosningu um langhlaupara ársins framt til föstudagsins 18. janúar kl. 18:00.  Endilega takið þátt í kosningunni á Hlaup.is.  Við minnum á að okkar maður Friðleifur Friðleifsson er meðal þeirra sem tilnefndir eru.

HLAUPASERÍA FH
Eins og síðastliðna vetur fara fram 5km. keppnishlaup síðasta fimmtudag í mánuðunum, janúar, febrúar og mars. Nánar þegar nær dregur.

VIKAN
Þetta verður hefðbundin æfingavika hjá okkur.  Það lítur út fyrir að þessi litli snjór sem lét sjá sig um helgin hverfi strax á morgun, mánudag.  Við munum því hlaupa á marauðum stígum í vikunni.  Munum eftir endurskinsmerkjunum.

Þetta verður frábær hlaupavika!
KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.