Bostonmaraþon

Boston maraþonið fór fram í dag.  Við áttun nokkra fulltrúa þar sem hlupu á flottum tímum.

Friðleifur Friðleifsson   2:38:48
Pétur Smári Sigurgeirsson  3:11:14
Ólavía Kvaran  3:25:33
Jón Gunnar Jónsson  3:45:19

Við óskum þeim innilega til hamingju!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Bostonmaraþon

VIKA 16

Síðasta hlaupið í hlaupaseríu Actavis og FH fór fram sl. fimmtudag.  Þrátt fyrir kulda og vind var fín stemning og flottir tímar. Lokahófið fer fram 23. apríl næstkomandi í Kaplakrika. Veitt verða stigaverðlaun fyrir þrjú bestu hlaupin í öllum aldursflokkum. Þar að auki verða dregin út fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna til þeirra keppenda sem eru á staðnum – 4 hlaup, fjórfaldur vinningsmöguleiki 🙂

Fyrir þriðju- og fimmtudags æfingarnar í vikunni er boðið upp á bolamátun sem sagt var frá hér á vefnum fyrir skemmstu.  Þið gangið svo frá ykkar pöntun sjálf á netinu, opið verður fyrir pantanir til 22. apríl.

Um síðustu helgi fór fram Parísarmaraþonið.  Einn félagi okkar, Benedikt Ólafsson tók þátt og hljóp á flottum tíma 3:50:54.   Þetta var hans fyrsta maraþon og við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn.

Á morgun, mánudag, fer fram Botsonmaraþonið.  Þar munu nokkrir FH félagar taka þátt; Friðleifur Friðleifsson, Jón Gunnar Jónsson, Ólafía Kvaran og Pétur Smári Sigurgeirsson.  Hlaupið verður ræst klukkan 9 að morgni á staðartíma, klukkan 13 á okkar tíma.  Það verður gaman að fylgjast með þessu á netinu.

Nýliðanámskeið fer í gang hjá okkur mánudaginn 29. apríl næstkomandi.  Endilega verið dugleg að láta áhugasama vita af því.

Æfingar vikunnar:  Sprett úr spori, hlaupið tempó og hlaupið langt.  Svo má hlaupa aðeins meira.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 16

Hlaupasería Actavis og FH #4

Nú í kvöld fór fram fjórða og síðasta keppnin í hlaupaseríu Actavis og FH.  Aðstæður voru frekar kaldar, norð austan 6 m/s og hitastigið undir frostmarki.  Það beit því dálítið í kinnar út að Hrafnistu.

Úrslit í kvennaflokki:
Agnes Kristjánsdóttir – 19:02
Ebba Særún Brynjarsdóttir
19:21
María Kristín Gröndal
19:32

Úrslit í karlaflokki:
Ingvar Hjartarson – 16:00
Hlynur Andrésson – 16:05
Arnar Pétursson 16:22

Úrslit verða birt á heimasíðu allra hlaupara, HLAUP.is

Lokahóf hlauparaðarinnar  fer fram þann 23. apríl kl. 20 í Kaplakrika.

Veitt verða aldursflokkaverðlaun og fjöldi útdráttaverðlauna.

Takk fyrir þátttökuna – KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupasería Actavis og FH #4

Nýliðanámskeið að hefjast

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Nýliðanámskeið að hefjast

Hlauparöð Actavis og FH

Á morgun, fimmtudaginn 11 apríl, fer fram fjórða og síðasta keppnin í hlauparöð Actavis-FH.

Ræsing er við íþróttahúsið á Strandgötu klukkan 19.  Þátttökumiðar verða seldir á staðnum og hefst sala klukkustund fyrir ræsingu.

Á hlaup.is má finna allar upplýsingar um keppnina.

Lokahóf hlaupaseríunnar verður haldið upp í Kaplakrika 23. apríl kl 20. Þar verða veitt stigaverðlaun fyrir þrjú bestu hlaupin í öllum aldursflokkum. Auk þess verða dregnir út fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlauparöð Actavis og FH

Mátun

Fyrir æfingu á morgun, þriðjudag, verður hægt að máta bolina.  Félagar ganga svo frá pöntun sjálfir hér á heimasíðunni okkar.

Bolirnir verða með merki HLAUPAHÓPS FH og svo er innifalin sérmerking (nafn hlaupara) á einn bol.

Eins verður hægt að kaupa þátttökumiða í Actavis/FH hlaupið sem fram fer á fimmtudaginn.  Það er nú ekki verra að vera tímanlega til að forðast örtröð á keppnisdag 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Mátun

VIKA 15

Það er keppnisvika hjá okkur í hlaupahópnum.  Það er að segja á fimmtudaginn fer fram fjórða og síðasta hlaupið í Hlauparöð Actavis og FH.

Sem fyrr er hlaupið er frá íþróttahúsinu Strandgötu, ræst er klukkan 19:00.  Þátttökumiðar verða seldir frá klukkan 18:00 í andyri íþróttahússins.

Veðurspáin er frekar kuldaleg en það verður engu að síður skemmtileg stemning og mikið stuð.

Á þriðjudag er æfing á hefðbundnum tíma.  Hittumst uppí Kapla.

Langt á laugardaginn og ljómandi.

Svo minnum við á að við förum af stað með nýliðanámskeið í lok apríl.  Það verður kynnt nánar þegar nær dregur.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 15

Hlaupabolir!

Þá er komið að því. Búið er að velja boli fyrir hópinn þeir eru frá Newline og keyptir í gegn um Intersport.  Stutterma bolirnir eru gulir og langerma svartir.

Mátun á þeim fram fyrir æfingu eftirtalda daga:
Þriðjudaginn 9. apríl
Þriðjudaginn 16. apríl
Fimmtudaginn 18. apríl

Þegar búið er að máta sjá félagar sjálfir um að ganga frá pöntun og greiðslu.  Upplýsingar um reikningsnúmer er á pöntunarforminu.  ATH það er mjög mikilvæt að senda kvittun í tölvupósti á laufey@intersport.is þegar greitt er.  Endilega kíkið á skráningarformið.  Þar eru einnig linkar í stærri myndir af bolunum.

Stuttermabolirnir kosta 2.500.-
Langermablolirnir kosta 5.990.-

Hægt verður að panta á netinu til 22. apríl n.k.

Skráningarform fyrir konur.

Skráningarform fyrir karla.

Nýliðum býðst að panta svona boli í maí.

🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupabolir!

Eitt gott af YouTube

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Eitt gott af YouTube

Félagsgjöldin

Nú eru félagsgjöldin, 6.000.-  komin í netbanka allra félagsmanna.

Ef þið óskið eftir kvittun til að nýta íþróttastyrk hjá stéttarfélagi ykkar þá sendið þið póst á Þorbjörgu Ósk, tobbape(a)gmail.com

Gjalddagi er 8. apríl n.k.

Sjáumst svo hress á æfingu – KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Félagsgjöldin