VIKA 19

Fimmtudaginn var fór fram Icelandair hlaupið.  Það er skemmst frá því að segja að nokkrir félagar okkar skelltu sér í það og gerðu gott mót, eins og sagt er.  Ebba Særún gerði sér lítið fyrir og sigraði kvennaflokk á flottum tíma og Kristín María varð í þriðja sæti.

Svona var árangur okkar fólks:
26:55 Ebba Særún Brynjarsdóttir
27:31 María Kristín Gröndal
27:33 Sigurður Fannar Ólafsson
27:48 Vilhjálmur Kári Haraldsson
30:07 Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
32:47 Sveinn K Baldursson
33:46 Þorbjörg Ósk Pétursdóttir
35:59 Þórður Ingi Bjarnason
36:02 Carola Frank

Á laugardag efndum við til samskokks með fræknum ÍR-ingum og einnig stóð til að félagar úr hlaupahópi Stjörnunnar kæmu.

Boðið var upp á þrjár vegalengdir +/-10km, 20 og 30 km.  Farið var um uppland Hafnarfjarðar.  Eftir því sem síðuskrifari kemst næst heppnaðist þetta alveg með ágætum.  Hver veit nema svona nokkuð verði gert aftur – jafnvel fljótlega.

Æfingaáætlun nýliða er aðgengilega hér á síðunni í dagatalinu.  Þar er hægt að sjá viku í senn.

Þriðjudagsæfing fyrir hópa 1 og 2 er á sínum stað.  Hlaupið frá Kaplakrika klukkan 17:30
Miðvikudag verður utanvegaæfing klukkan sex.  Hittast við hliðið í Heiðmörk
Fimmtudag (uppstigningardag) æfing klukkan 10.  Hittumst í Kapla.

Það er greinilegt að sumarið er komið, því nú er hvert keppnishlaupið á fætur öðru.  Næstkomandi laugardag, 11 maí fer t.d. fram Neshlaupið, þar er boðið upp á nokkrar vegalengdir.  Nánar um það hér.

Munum svo eftir flottu hlaupi félaga okkar í Haukum, Hvítasunnuhlaup Hauka.  Skráning er í fullum gangi.

Það er um að gera að kynna sér hlaupaárið á Hlaup.is, – hlaupadagsrká 2013.

Svo er það bæði fésbókarsíðan og fésbókarhópur hlaupahóps FH. Endilega kíkið þar inn.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 19

Laugardagsæfingin

Á morgun, laugardag verður samskokk okkar og hlaupahóps Stjörnunnar og ÍR. Lagt verður af stað frá Suðurbæjarlaug klukkan 9.

Hlaupið verður um uppland Hafnarfjarðar og verða þrjár vegalengdir í boði 10, 20 og 30 km (eða þar um bil).

Nýliðar hlaupa eftir sínu prógrammi frá Suðurbæjarlaug klukkan 10.

Mætum hress – það er fín veðurspá fyrir daginn.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Laugardagsæfingin

Hvítasunnuhlaup Hauka

Vinir okkar og félagar í skokkhópi Hauka efna til eins af fyrstu utanvegahlaupum sumarsins 2013.

Hlaupið fer fer fram mánudaginn 20. maí sem er annar í hvítasunnu.  Ræsing og mark er við Ásvelli og hlaupið um uppland Hafnarfjarðar ræst klukkan 10.00.  Hlaupalengd 17.5 km – heildarhækkun á leiðinni 436 m. – mesta hæð 121 m.

Þetta er flott hlaup og um að gera að taka þátt.

Nánar má lesa um þetta á heimasíðu hlaupsins.

Skráning fer fram á hlaup.is.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hvítasunnuhlaup Hauka

Fræðslufundur Laugaskokks og World Class

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fræðslufundur Laugaskokks og World Class

VIKA 18

Þrír félagar okkar tóku þátt í Vorþoninu í gær, laugardag.  Veðrið var ekki upp á það allra besta en þannig getur það verið á þessum árstíma.

Þau hlupu öll á flottum tímum:

Jón Ómar Erlingsson 1:27:47
Ingólfur Örn Arnarsson 1:32:44
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir 1:42:41

Til hamingju!  Og þar með má segja að hlaupasumarið sé hafið – er það ekki?

Æfingar verða með hefðbundnu sniði í vikunni, en á miðvikudag, 1. maí, verður utanvegaæfing klukkan 10.  Mæting við Kaldársel, stefnan sett á Helgafellið.

Tobba verður með afsláttakort Intersport á æfingum í vikunni.  Félagar sem greitt hafa félagsgjöldin geta krækt sér slíkt.

Við höfum boðið  hlaupahópum Stjörnunnar og ÍR í heimsókn og til að hlaupa með okkur næstkomandi laugardag.  Það verður stefnt að því að vera með þrjár mismunandi vegalengdir sem gaman verður að hlaupa.  Nánari upplýsingar á æfingu.

Stofnuð hefur verið hópasíða fyrir hlaupahópinn á Facebook.  Þar getið þið auglýst, spjallað, komið með athugasemdir og hvað eina sem ykkur finnst eiga heima á slíkum vettvangi.  Ef þið verðið vör við að fésbókarvinir ykkar eru ekki í hópnum, endilega bætið þeim við.

Á morgun fer okkar frábæra nýliðanámskeið af stað.  Endilega látið vini og kunningja vita.

Fimmtudaginn 2. maí er Icelandair hlaupið.  Nánar um það hér.

Munið að hægt er að skrá sig í Reykjavíkurmaraþonið og Miðnæturhlaupið á netinu.

Og að lokum – munið hlaup.is og fésbókarvegg félags maraþonhlaupara.  Það er alltaf eitthvað að gerast á þessum síðum og muna að skrá hlaupin sín á hlaup.is 🙂

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 18

Nýliðanámskeið hefst næstkomandi mánudag – KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Nýliðanámskeið hefst næstkomandi mánudag – KOMASO

Lokahóf hlaupaseríu Actavis og FH

Nú í kvöld fór fram lokahóf hlauparaðar Actavis og FH.  Veitt voru verðlaun fyrir þrjú fyrstu sæti í kvenna og karlaflokki og að auki voru veitt aldursflokkaverðlaun.

Úrslit í kvennaflokki:

1 sæti  Helen Ólafsdóttir – ÍR/Laugaskokki
2 sæti  Agnes Kritjánsdóttir – Actavis hlaupahópur
3 sæti  Ebba Særún Brynjarsdóttir – Hlaupahópi FH/3SH

Úrslit í karlaflokki:

1 sæti   Ingvar Hjartarson – Fjölnir
2 sæti   Arnar Pétursson  – ÍR/Compressport
3 sæti   Hákon Hrafn Sigurðsson – 3SH

Við þökkum öllum öllum þeim sem tóku þátt kælega fyrir og hlökkum til að sjá sem flest ykkar á næsta ári.

Á fésbókarsíðu hlupahópsins má sjá nokkrar myndir frá kvöldinu.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Lokahóf hlaupaseríu Actavis og FH

Æfingar næstu daga

Á morgun, miðvikudag hefjast utanvegaæfingarnar.  Stefnt er að því að hittast klukkan 18:00 við hliðið í Heiðmörk sem er við Maríuhella.

Á fimmtudag, sumardaginn fyrsta, er æfing klukkan 10. Hittumst í Kaplakrika.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingar næstu daga

VIKA 17

Næstkomandi þriðjudag verður lokahóf hlaupaseríu Actavis og FH  haldið í Kalplakrika eins og áður hefur komið fram.

Nú fara að hefjast (auka) utanvegaæfingar og stefnt er að því að þær fari fram á miðvikudögum.  Fyrsta æfingin verður á miðvikudaginn kemur og munu þjálfarar greina betur frá því á þriðjudagsæfingunni.

Næstkomandi laugardag fer fram Vorþon, félags maraþonhlaupara.  Væntanlega taka einhverjir félagar þátt í því. Það er um að gera að mæta og hvetja sitt fólk.  Búið er að breyta hlaupaleiðinni aðeins, nánari upplýsingar eru að finna á hlaup.is.

Hægt er að panta boli til miðnættis mánudags – 22. apríl.

Þetta verður góð vika.

KOMASO!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 17

Bolirnir – hver að verða síðastur

Jæja gott fólk, síðasti dagur til að panta hlaupabol er 22. apríl nk.

Þið farið inn á link hér fyrir neðan og gangið frá pöntun og greiðslu.  Upplýsingar um reikningsnúmer er á pöntunarforminu.

ATH það er mjög mikilvæt að senda kvittun í tölvupósti á laufey@intersport.is þegar greitt er.

Strákar panta hér.

Stelpur panta hér.

Stuttermabolirnir kosta 2.500.-

Langermablolirnir kosta 5.990.-

Á pöntunarsíðunum eru linkar á stórar myndir.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Bolirnir – hver að verða síðastur