Meira af bolum

Bolirnir eru komnir úr merkingu og verða afhentir á æfingu í dag.

Nýliðum verður boðið að máta fyrir æfingu á morgun, miðvikudag og geta í kjölfarið gengið frá pöntun:

Strákar panta hér.
Stelpur panta hér.

Stuttermabolirnir kosta 2.500.-
Langermablolirnir kosta 5.990.-

Á pöntunarsíðunum eru linkar á stórar myndir.

Á pöntunarsíðunni er reikningsnúmer og upplýsingar hverngi ganga á frá pöntuninni, athugið að það verður að senda kvittun á laufey(a)intersport.is þegar gengi er frá greiðslunni, best er að millifæra af eigin reikningi svo það verði enginn ruglingur og auðveldara að para saman pöntun og greiðslu. Hægt er að ganga frá pöntun til miðnættis 6. júní..

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Meira af bolum

VIKA 22

Það hefur verið flottur gangur og árangur hjá nýliðunum okkar.  Þeim fer stöðugt fram og eru að byrja sína fimmtu viku.  Æfingaáætlun þeirra er hægt að nálgast á dagatalinu.

Æfingar verða með hefðbundnu sniði og verður æfingaáætlun hópa 1 og 2 sett inn fljótlega.  En sem fyrr hittumst við í Kapla og hlaupum þaðan.

Laugavegsfarar eru farnir að bæta við æfingum og síðustu miðvikudaga hafa þau skondrast um Heiðmörkina, Esju og Helgafell.  Á miðvikudaginn ætla þau í tröppurnar í Kópavoginum.  Það ert stefnt að því að hittast á bílastæðinu við Digraneskirkju klukkan 18:00.  Öllum félögum er frjálst að mæta og taka þátt.  Þetta er bara gaman.

Á fimmtudag heldur Óskar Jakobsson af stað heim til Ísafjarðar.  Hann leggur formlega af stað frá N1 Ártúnshöfða kl 17:30 og hvetur hlaupara til að hlaupa með sér fyrstu kílómetrana. Svo má alveg minna á áheit hlaupsins; banki: 0556 HB:26 RN:330 Kt:121101-3190 Verum með hjartað á réttum stað ♥

Á fimmtudag fer einnig fram Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. Það er úr mörgu að moða fyrir hlaupara.

Að vanda verður langt hjá flestum á laugardaginn, það má alveg búast við því að farið verði í Uppland Hafnarfjarðar.

Þetta verður ljómandi góð hlaupavika – KOMASO.


Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 22

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka / Regnbogabörn

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka / Regnbogabörn

Sumar í kortunum (vonandi)

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Sumar í kortunum (vonandi)

VIKA 21

Í komandi viku verður nóg um að vera hjá okkur, ef við viljum.

Nýliðum fer vel fram og það er flottur gangur hjá þeim.  Æfingin á morgun er klukkan 10 í fyrramálið, mæting í Kaplakrika.  Æfingaáætlun vikunnar má finna í dagatalinu.

Æfingar fyrir hópa 1 og 2 verða á sínum stað á þriðjudag og fimmtudag.

Á miðvikudag er utanvegaæfing.  Hópurinn hittist við Kaldársel klukkan 18:00

Silja Úlfarsdóttir fer af stað með hlaupanámskeið sín í vikunni.  Það má lesa allt um þau hér.

Þetta verður jollí góð hlaupavika.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 21

Námskeið hjá Silju Úlfars

Hún Silja Úlfars er með flott hlaupanámskeið á dagskránni sem byrja í næstu viku.  Það má kynna sér þau betur hér.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Námskeið hjá Silju Úlfars

Kynningarkvöld – Adidas Concept Store Kringlunni

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Kynningarkvöld – Adidas Concept Store Kringlunni

VIKA 20

Það er flott hlaupavika framundan.  Nú er sumarið komið og því hittumst við á hlaupabrautinni fyrir æfingar í stað þess að safnast saman innandyra.  Þannig verður það fram á haust.  Eins munum við teygja úti í góða veðrinu eftir æfingar 🙂

Áætlun vikunnar fyrir nýliðana er í dagatalinu.

Á miðvikudag er utanvegaæfing, að þessu sinni á að leggja Esjuna og undir fót.  Hittast á bílastæðinu við Esjurætur klukkan 19.

Nokkrir hlaupahópsfélagar hafa skráð sig í Hvítasunnuhlaup Hauka.  Það fer fram um næstu helg, endilega drífa sig í að skrá sig.

Einhverjir félagar ætla að setja saman lið til að taka þátt í Maraþonboðhlaupi FRÍ sem fram fer 21. maí.

Munið eftir hlaupadagbókinni á hlaup.is um að gera að halda utan um æfingar sínar.

Flott veðurspá fyrir næstu daga.  KOMASO.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 20

Nokkur góð ráð

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Video | Slökkt á athugasemdum við Nokkur góð ráð

Maraþonboðhlaup FRÍ

Maraþonboðhlaup FRÍ fer fram þann 21. maí 2013 á þremur stöðum á landinu, Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum.  Hlaupið  er boðhlaupskeppni þar sem allt að sjö hlauparar skipa eitt lið.  Hver liðsmaður hleypur að minnsta kosti einn hring af sjö hringja hlaupaleið.  Heildarvegalengdin sem er hlaupin er hálft maraþon eða 21,097 km og því hver hringur 3 km.  Keppt er í samtals 4 flokkum.   Allir þátttakendur fá staðlað viðurkenningarskjal með mynd af Ólympíuhópi FRÍ 2013 og að loknu hlaupi fer fram happdrætti á staðnum þar sem keppnisnúmer gildir sem happdrættismiði.

Markmiðið með Maraþonboðhlaupinu er fyrst og fremst að auka stuðning við íslenskt frjálsíþróttafólk sem möguleika eiga að keppa á Ólympíuleikunum í Ríó de Janeiro árið 2016.  Einnig er markmiðið að vekja aukna athygli á íþróttinni og benda á að götuhlaupin eru hluti af frjálsum íþróttum.

Lýsing á hlaupaleið í Reykjavík

Hlaupið hefst kl 18:00

Hlaupnir eru sjö hringir (3,07 km hver) og að auki bætt við rúmum 48 metrum í upphafi til að ná fullri lengd á hálft maraþon (21,0975 km.)

Markið er við innganginn í Húsdýragarðinn. Hlaupið er réttsælis. Eftir beina kaflann í upphafi er beygt til hægri upp stíg í gegnum garðinn átt að Laugarásvegi, síðan beygt til vinstri inn á malarstíg sem liggur að bílastæðinu við Farfuglaheimilið, hlaupið er út að gangstétt við Sundlaugarveg og beygt til hægri upp hana, síðan aftur til hægri inn á gangstéttina við Laugarásveg og henni fylgt að Sunnuvegi, þar er hlaupið eftir Sunnuveginum, fyrst niður  og síðan til vinstri í átt að Holtavegi, beygt til hægri og hlaupið á gangstétt meðfram Holtavegi og áfram inn á göngustíg austan við Fjölskyldugarðinn, síðan beygt til hægri inn á gangstétt meðfram Engjavegi, aftur beygt til hægri niður gangstíginn milli Fjölskyldugarðs og Húsdýragarðs, framhjá hringtorginu og beygt til vinstri inn á beina kaflann að markinu og skiptisvæðinu við innganginn í Húsdýragarðinn.

Hvergi er farið yfir umferðargötu, að því undanskildu að  heimilt er að hlaupa stystu leið á akbrautinni á Sunnuvegi ef umferð leyfir, en annars haldi hlauparar sig á gangstéttum og stígum.

Keppnisflokkar

H: Hópur

  • H1: Fyrirtæki/Íþróttamenn/saumaklúbbar ofl. Blandaður flokkur með fleiri körlum en konum
  • H2: Fyrirtæki/Íþróttamenn/saumaklúbbar ofl. Blandaður flokkur með fleiri konum en körlum

E: Einstaklingar (einn hlaupari hleypur alla vegalengdina 21,097 km)

  • E1: Karlar
  • E2: Konur

Boðhlaupskefli
Frjálsíþróttasambandið útvegar boðhlaupskefli. Á hvert boðhlaupskefli munu fyrirtæki geta keypt auglýsingu fyrir 3000 kr. Sett verður einnig upp áheitakerfi í kringum keflin og getur fyrirtækið sem kaupir auglýsingu á kefli/keflin borgað upphæð að eigin ósk ef liðið sem hleypur með kefli þess sigrar. Þannig getur eitt fyrirtæki kostað og keypt t.d 10 kefli og ef liðið sem hleypur með keflið sigrar borgar auglýsandinn aukalega einhverja x upphæð sem það gefur upp fyrirfram.

Skráning, greiðsla og úthlutun keppnisnúmera
Skráning hefst 1. maí og mun fara fram hér á hlaup.is.

Skrá verður nafn sveitar, nöfn hlaupara, keppnisflokk og staðsetningu hlaups á landinu. Fyrirliði hópsins skráir sveitina og greiðir um leið.

  • Skráningargjald í liðakeppni er 10.500 kr á lið.
  • Skráningargjald í einstaklingshlaup er 3.500 kr.

Keppnisnúmerum verður úthlutað á keppnisstað 21. maí frá kl 16:30 og fram að hlaupi. Öll skráning er bindandi og fæst skráningargjald ekki endurgreitt.

Verðlaun
Allir þátttakendur fá staðlað viðurkenningarskjal með mynd af Ólympíuhópi FRÍ 2013 og að loknu hlaupi fer fram happdrætti á staðnum þar sem keppnisnúmer gildir sem happdrættismiði.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um hlaupið veitir Þórey Edda Elísdóttir, thoreyedda@fri.is og í síma 663-1863.

Af hlaup.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Maraþonboðhlaup FRÍ