Það styttist …

Það var töluverð tilhlökkun fyrir laugardegininum á æfingunni nú undir kvöld. Það eru margir að taka þátt í sínu fyrsta 10 km hlaupi og eins eru margir að taka þátt í sínu fyrsta hálfmaraþoni.

Það er alls ekki úr vegi að kynna sér hlaupaleiðirnar á korti.

Veðurfræðingar eru ekki búnir að spá rétta veðrinu en það má öruggleg spá því að góða skapið verður á staðnum og fullt af brosum og góðum félögum.  Þetta verður frábær dagur.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Það styttist …

VIKA 34

Það styttist óðfluga Reykjavíkurmaraþonið.  Þetta er stærsti hlaupadagur ársins hér á landi og mikil tilhlökkun.  Þessa síðustu daga fyrir hlaup verða ekkert sérstakelga rólegir hjá stórum hluta félagsmanna því nú er miður undirbúnigur fyrir Amsterdam sem fram fer í október.  Því er æfingaáætlunin með nokkuð hefðbundnu sniði fyrir hópa 1 og 2 en æfingar fyrir hóp þrjú miðast við taka því heldur rólega fyrir laugardaginn.

Matarræði á keppnisdag er oft hausverkur.  En besta ráðið er að breyta ekki út af vananum og vera ekki með neina tilraunamennsku að morgni þess dags og heldur ekki dagana fyrir.

Steinar B. Aðalbjörnsson, næringafræðingur hefur heimsótt okkur og lesið okkur pistilinn.  Hann skrifaði þetta fyrir nokkru síðan.

Eins er gott að fara yfir reglur hlaupsins.

Eftir hlaupið ætlum við að hittast á kaffihúsinu GÆS og gæða okkur á súpu og brauð. Munið eftir þúsundkallinum og að skrá ykkur á veggnum okkar á Facebook.

Við ætlum að helga okkur reit við MR – þar verðum við með flöggin okkar og tjald. svo er um að gera að mæta í gulu jökkunum og bolunum.  Gott er að mæta tímanlega og hafa tímann fyrir sér til að losna við stress.

Vert er að minna á skráningahátíðina þann 23. ágúst.  Þann dag fá þátttakendur afhent keppnisgögn. Meðal annars þátttökunúmer, tímatökuflögu í skóinn og bol. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíðinni, ef svo ólíklega vill til að einhver eigi það eftir.  Eins eru áhugaverðir fyrirlestrar í boði.

Annars lítur áætlunin svona út – þetta verður súperflott vika.

Komaso!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 34

Maraþonkvöld í Intersporti

Manni vantar alltaf eitthvað 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Maraþonkvöld í Intersporti

Hittingur eftir RM

mynd www.visir.is

mynd www.visir.is

Hittingur og gleði eftir Reykjavíkurmaraþon!
Í ár verður breyting á miðað við síðustu ár. Í stað þess að efna til grillveislu um kvöldið er ætlunin að hittast á kaffihúsinu GÆS við Tjarnarbíó og gæða okkur á súpu og brauði. Staðurinn er frátekinn fyrir okkur milli klukkan 11-13. Verðið 1000 kr á mann, greiðist á staðnum (muna að vera með pening í lausu þar sem við gerum allt upp í einu lagi).
Til að sjá hve mörgum við eigum von á er um að gera að taka þátt í könnunni á hópveggnum okkar á fésbókinni.
Þau sem ekki ætla að hlaupa eru hvött til að mæta og taka þátt, hvetja hlaupara og gæða sér á súpunni – Komaso!
Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hittingur eftir RM

VIKA 33

Félagar hafa verið duglegir við að hlaupa út um allt.  Það fréttist persónulegum bætingum í Grímsnesinu og víða.

Í vikunni fór fram Vatnsmýrarhlaupið.  5 kílómetra hlaup sem er tilvalið til bætinga.
Nokkirir félagar tóku þátt og hlupu á flottum tímum:

23:11    Bjarni Hjaltason
23:13    Hjörleifur Hjörleifsson
24:49    Dagbjört Bjarnadóttir
30:09    Laufey Stefánsdóttir

Öll úrslit eru hér.

Nú í dag, laugardag, hlupu þó nokkrir sín lengstu hlaup til þessa.  Og að sjálfsögðu voru myndavélar með í för…

Á meðan þessu stóð voru nokkrir félagar okkar staddir í Ásbyrgi og tóku þátt í hinu árlega Jökulsárhlaupi.
Lengstu vegalengdina, 33 km. sigraði Kári Steinn Karlsson á tímanum 2:03.  Okkar maður Friðleifur Friðleifsson varð annnar á tímanum 2:15.

21,1 km. hlupu meðal annarra þau Sveinbjörn, Tobba og Margrét Jóhannsdóttir.
1:57  Sveinbjörn Sigurðsson
2:01  Þorbjörg Ósk Pétursdóttir
2:18  Margrét Jóhannsdóttir

Aðstæður voru fínar og var mikil ánægja með hlaupið.

Úrslitin birtast á Tímatöku.net og væntanega á heimasíðu hlaupsins, jokulsarhlaup.is

Á morgun ætlar Silja Úlfars og Maraþonmaðurinn að vera með æfingu við Ráðhúsið í Reykjavík.  Nánar um það á Facebook.

Svona lítur svo æfingaáætlun vikunnar út.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 33

Tilboð hjá Intersporti fyrir RM

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Tilboð hjá Intersporti fyrir RM

Vika 31

Svona lítur vikan út.  Það styttist í Reykjavíkurmaraþonið, félagar eru án efa búnir að skrá sig.  Það er um að gera að minna á að hægt er að hlaupa til góðs og láta gott af sér leiða.   Um að gera að kynna sér málið hér.

Nú eru sumarfríin í algeymi. Það er ekki úr vegið að taka hlaupaskóna með sér og spretta úr spori hingað og þangað um landið.  Víðsvegar má finna góðar hlaupaleiðir og rakst síðuskrifari á flott hlaupakort við sundlaugina á Egilsstöðum.  Þar voru leiðir við allra hæfi.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Vika 31

VIKA 30

Hér fyrir ofan má sjá æfingaáætlun vikunnar.  Það er meira að segja smá sólarglenna í kortunum.

Munið eftir McMillan hlaupareiknivélinni.

Þetta verður góð hlaupavika. Komaso.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 30

Sýnishornasala Brooks

Sundaborg 5 – 2. hæð

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Sýnishornasala Brooks

Æfing á þriðjudag

Á morgun er æfing samkvæmt áætlun.  Við vonum að sem flestir sem tóku þátt í Laugaveginum (bæði keppninni og ekki síður þau sem fóru leiðina á tveim dögum) komi og skokki eitthvað smá með okkur og segi okkur frá öllum ævintýrunum helgarinnar.

Annars eru það Yasso æfingar fyrir hópa 1 og 2 og 6-8 x 400 metrar fyrir hóp 3.

Það má víst alveg gera ráð fyrir rigningu …

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfing á þriðjudag