VIKA 29

Nýliðin vika var nokkuð viðburðarik.  Ármannshlaupið fór fram á miðvikudaginn og gerðu félagar okkar ágætis mót, bætingar hjá mörgum.  Aðstæður voru allar hinar bestu, l0gn og rigning.  Úrslitin má sjá hér.

Aðstæður voru ekki eins góðar nú um helgina þegar Laugavegshlaupið fór fram.  Nokkrir félagar okkar tóku þátt og komu í mark á flottum tímum:

6:19:16 Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
6:33:44 Guðni Gíslason
6:35:29 Sigurður Guðni Ísólfsson
6:45:51 Sveinbjörn Sigurðsson
7:03:45 Kristján Ólafur Guðnason
7:09:08 Ósk Gunnarsdóttir

Við óskum þeim til hamingju með hlaupið.

Erna, Guðrún og Steinunn

Erna, Guðrún og Steinunn í Hrafntinnuskeri 12. júlí 2012

Á föstudag lagði hópur félaga okkar af stað frá Landmannalaugum í átt að Þórsmörk. Markmiðið var að fara þessa leið á tveim dögum og taka á móti hlaupurum í Mörkinni.  Það er skemmst frá því að segja að þau hrepptu leiðindaveður, slyddu, rigningu og rok.

Þau þurftu svo sannarlega að hafa fyrir þessu og það er bara vonandi að þau hafi ekki tapað gleðinni fyrir fullt og allt á þessari leið.

Það styttist í Reykjvíkurmaraþonið, rétt tæpar sex vikur í það. Æfingaplan vikunnar er hér fyrir neðan, það má alveg búast við smá rigningu annað slagið.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 29

VIKA 28

Um næstu helgi fer fram Laugavegshlaupið.  Þar munu nokkrir félagar okkar hlaupa þessa 55 kílómetra leið frá Landmannalaugum til Þórsmerkur.  Ætli helsta áhyggjuefni þeirra sé veðrið, við vonum að það verði sem best og óskum þeim góðs gengis!

Ármannshlaupið er 10 km götuhlaup og fer það fram næstkomandi miðvikudag. Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata braut þar sem margir hafa náð sínum besta tíma.   Ármannshlaupið er í ár Íslandsmeistaramót í 10 km hlaupi.

Nú þegar hafa nokkrir félagar okkar skráð sig í hlaupið og má alveg mæla með því.  Nánar um hlaupið hér.

Á sunnudag fer fram stærsta þríþrautakeppni landsins þegar keppt verður í HERBALIFE hálfum járnmanni. Keppnin er Íslandsmeistaramót í þríþraut og fer fram frá Ásvallalaug hér í Hafnarfirði.  Það eru félagar okkar í 3SH sem standa fyrir þessari keppni.  Endilega mætið og hvetjið.

Æfingaáætlun vikunnar er hér fyrir neðan – hörku stuð og komaso!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 28

Hvar verður þú á laugardaginn?

Laugardaginn 6. júlí fer fram Vestmannaeyjahlaup Íslandsbanka í þriðja sinn. Hlaupið fer fram á þeim tíma sem Vestmannaeyingar og aðrir fagna 40 ára goslokum Heimaeyjargossins.

Boðið er upp á þrjár hlaupaleiðir 5, 10 og 21 km og öll hlaup eru ræst á sama tíma kl. 12.00 frá Íþróttamiðstöðinni.

Nánari upplýsingar um hlaupið er á heimasíðu hlaupsins http://vestmannaeyjahlaup.is/.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hvar verður þú á laugardaginn?

Hlaupabolir

Seinni bolasendingin er komin í hús, merktir og flottir.

Þeir verða afhentir fyrir æfingu í dag, því er betra að mæta tímanlega.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hlaupabolir

VIKA 27

Félagar í hlaupahópnum gerðu víðreist um helgina og tóku þátt í Snæfellsjökulshlaupinu sem fram fór á laugardaginn. Ferðin heppnaðist vel í alla staði og þrátt fyrir þreytu og smá stirðleika eru strax hafnar pælingar á fésbókinni um að fjölmenna aftur að ári.

Hægt er að skoða myndir frá hlaupinu á vegg hlaupahópsins á Facebook.

Félagar okkar þau Þórdís Hrafnkelsdóttir, Friðleifur Friðleifsson og Ebba Særún Brynjarsdóttir sigruðu í sínum flokki og Atli Steinn Sveinbjörnsson var í þriðja sæti í sínum flokki.  Frábær árangur hjá þeim og þeim öllum sem tóku þátt í þessu krefjandi hlaupi.  Úrslitin má sjá hér.

Æfingaáætlun fyrir vikun 27 er hér fyrir neðan.

Æfingaáætlun viku 27

Allar æfingar nema recovery og löngu hlaupin byrja á ca 2 km upphitun og enda á 1,5 km niðurskokki

  • Recovery Jogs ( Ról )
  • Long Runs (laugadagar )
  • Steady State Run ( Jafnt )
  • Tempo Run ( langt )
  • Tempo Intervals ( Stutt )
  • Sprettir ( 400 til 2000 m )

Til að finna út á hvaða hraða á að hlaupa æfingarnar þá bendum við á að nota McMillan hlaupareiknivélina. Þar setjið þið inn þann tíma sem þið eigið í t.d 5 km, 10 km, eða 21 km og hvaða tíma þið stefnið á.

Þetta verður ljómandi góð hlaupavika – komaso!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 27

Snæfellsjökulshlaupið

www.snorrason.is

Nú er allt klárt fyrir Snæfellsjökulshlaupið, meira að segja veðrið ætlar að vera með besta móti.

Það eru tæplega 50 hressir FH ingar sem ætla í langferðabílnum og jafnvel nokkrir í viðbót.

Planið er þannig:
Mæting 8.30 í Kaplakrika á laugardaginn. Allrahanda ætlar að koma okkur vestur.
Komutími á Arnarstapa um 11.15
Hlaupið hefst kl.12.00
Áætluð brottför frá Ólafsvík um 16.30/17.00
Það sem þarf að hafa í huga:
Komið klædd í rútuna, þ.e.a.s í spendexinu og öllu settinu. Takið með ykkur föt fyrir heimför, sundföt og handklæði. Skellum okkur í sturtu/sund í Ólafsvík.  Muna eftir þúsundkallinum fyrir rútuna!

Það verður flott móttaka í Ólafsvík; fiskisúpa, kaffi og konfekt.

Ekki gleyma að skrá ykkur, það er opið fyrir forskráningu til klukkan 20:00 á föstudag en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum.

Muna að hafa gaman af og brosa 🙂

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Snæfellsjökulshlaupið

Það er ekki úr vegi að hita dálítið upp

Skokka 1-2 km fyrir hlaup til að hita upp fyrir þau sem ætla sér í 5 km. hlaupið.

Lengri upphitun fyrir þau sem ætla í 10 km.

Æfa brosið.

Hrönn þjálfari verður við frjálsíþróttahöllina í Laugardalnum og gaukar að okkur góðum ráðum.

Muna að hafa gaman af.

Og brosa.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Það er ekki úr vegi að hita dálítið upp

VIKA 26

Friðleifur Friðleifsson

Mynd: Mt.Esja Ultra á Facebook

Á fimmtudaginn var lokaslútt hjá nýliðunum okkar.  Þá kláruðu þau æfingaprógrammið með flottu 5 kílómetra hlaupi.  Sumarið kom og þetta var ljómandi góður dagur.  Hægt er að skoða myndir á Fésbókarsíðu hlaupahópsins.

Félagi okkar, Friðleifur Friðleifsson sigraði Mt. Esja Ultra sem fram fór í gær.  Hann hljóp 10 hringi á tímanum 9:43:12 og bætti þar með tímann frá því í fyrra um rúma eina klukkustund og 43 mínútur!  Við óskum honum innilega til hamingju með frábært hlaup.

Eins tóku þær Ragnheiður Hulda Ólafsdóttir og Elín Lovísa Elíasdóttir þátt.  Þær fóru tvær ferðir og kláruðu á flottum tíma.  Öll úrslit má nálgast á hlaup.is.

Búið er að setja inn æfingaáætlun fyrir Amsterdamfara.  Hægt er að nálgst hana hér.  Nú í sumar og fram á haust verður hlaupið eftir þessum æfingaáætlunum.  Fljótlega mun æfingaáætlun fyrir styttri vegalengdir verða sett inn á sama hátt.

Á morgun fer fram Miðnæturhlaup Suzuki.  Það er stórskemmtilegt hlaup og um að gera að taka þátt.  Gott er að hafa tvö atriði á hreinu:

  1. Hafa gaman af hlaupinu
  2. Koma brosandi í mark

Þessi tvö atriði skipta helstu máli. Svo er um að gera að leggja sig dálítið fram.

Næstkomandi laugardag er svo Snæfellsjökulshlaupið! – Þetta verður úrvalsgóð hlaupavika.

Nokkrir bolir eru enn ósóttir.  Hægt verður að nálgast þá fyrir æfingu á þriðjudag.

Komaso!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 26

Fimmtudagsæfingin

Það lítur út fyrir ljómandi gott veður á morgun þegar nýliðarnir klára námskeiðið hjá okkur með fimm kílómetra hlaupi.  Við ætlum að fjölmenna og hlaupa með þeim.

Þetta verður bara gaman.

Pétur þjálfari er þessa stundina að taka þátt í WOW Cyclothon keppninni.  Hann hjólar fyrir TEAM PÍTAN.   Við óskum þeim góðs gengis og svo má auðvitað heita á þessa kappa.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fimmtudagsæfingin

VIKA 25

Þá er komið að því.  Nýliðanámskeiðinu  okkar lýkur mæstkomandi fimmtudag og þá ætlum við öll að hlaupa saman fimm kílómetra hring.

Þau sem eru að undirbúa sig fyrir lengri hlaup, notfæra sér þennan hring sem upphafið og halda svo áfram með sína æfingu.  Við stefnum á að fjölmenna og hafa það gaman saman.

Á miðvikudag ætla Laugavegsfarar og aðrir að sem áhuga hafa að hittast við rætur Esju klukkan 18:30.  Þar verður hlaupið og gengið rösklega um hlíðarnar og upp að Steini.

Sem fyrr eru fjölmörg hlaup í boði.  Um næstu helgi fer fram Ultramaraþon í Esjunni.  Þar er hægt taka þátt og hlaupa frá einni ferð og upp í 10 ferðir.  Nánar um hlaupið hér.

Mánudaginn 24. júní næstkomandi, fer fram Miðnæturhlaup Suzuki.  Þar er í boði 5, 10 og hálft maraþon.  Við höfum fjölmennt í þetta hlaup og eru nýliðar hvattir til að taka þátt.

Komaso

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við VIKA 25