Æfingaáætlanir sumar 2014

Sjóðheitar æfingaáætlanir, beint frá bakaranum…
Eru undir flipanum “Æfingaáætlanir” hér fyrir ofan.
Þar eru komnar inn áætlanir fyrir sumar 2014, alla hópa, og svo sér-áætlun fyrir Berlínarfarana okkar.
Smá sýnishorn af viku 24 (9.-15júní) hér á eftir:

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfingaáætlanir sumar 2014

Nýliðahlaup

Nú í vikunni klára nýliðarnir okkar námskeið sitt og á fimmtudaginn , 12. júní, er komið að því að þau hlaupi sitt fyrsta 5 km. hlaup. Þá ætlum við að sjálfsögðu að fjölmenna og hlaupa með þeim. Eftir hlaupið verður boðið upp á léttar veitingar (samt ekki léttvín :-). Þeir sem vilja geta síðan hlaupið sínar áætluðu vegalengdir.

Koma so, sýnum stuðning í verki!

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Nýliðahlaup

Fundur á fimmtudaginn

Þeir sem stefna á maraþon í sumar eða haust eru hvattir til að mæta á fund EFTIR æfingu á fimmtudaginn (á morgun) með Pétri.  Vinsamlegast breiðið út fagnaðarerindið.


Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Fundur á fimmtudaginn

Hvítasunnuhlaup Hauka 9.júní

! FJÖLMENNUM Í HVÍTASUNNUHLAUP VINA OKKAR Á ÁSVÖLLUM !

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Hvítasunnuhlaup Hauka 9.júní

Æfing fimmtudag 29.maí kl.10:00 frá Krikanum

ATH
Vegna frídags 29.maí er æfingin kl.10:00 frá Kaplakrika.

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Æfing fimmtudag 29.maí kl.10:00 frá Krikanum

Mætingar í Krikanum

ATHUGIÐ – ATHUGIÐ

Núna þegar sólin er farin að skína og hitastigið hefur hækkað aðeins þá munum við hittast upp á frjálsíþróttavelli á þriðju- og fimmtudagsæfingum.
Þannig að ef þið eruð ein í heiminum inn í Krika þá erum við hin upp á velli ;o)
Laugardagsæfingar verða áfram á sínum stað frá Suðurbæjarlaug.

Sjáumst hress !

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Mætingar í Krikanum

ÍR samskokk – Afmælishátíð – 17.maí

Sælir félagar
Sjálfsagt hafið þið einhversstaðar séð auglýsingu frá ÍR skokk um afmælishátíðina sem verður 17.maí nk.
Þá höfum við boðið öllum hlaupahópum að koma í samskokk frá Austurbergi og er stefnan sett á Heiðmörk.
Vil ég bjóða ykkur sérstaklega að koma og hlaupa með okkur þennan dag.

Farið verður af stað frá Austurbergi/Sundlauginni klukkan 09:00 og boðið upp á 4 vegalengdir.
8-12-17 og 22 km, 17 og 22 teknir frá staðnum og hlaupið í Heiðmörk og til baka; 8 og 12 km þá verður sameinast í bíla og keyrt að Elliðavatni og þar hlaupnir hringir í Heiðmörkinni.

Að loknu hlaupi verða glæsilegar veitinga fyrir hlaupara.

Vonast til að sjá ykkur sem flest.

Kv. Felix

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við ÍR samskokk – Afmælishátíð – 17.maí

Utanvegaæfing / Aukaæfing 7.maí kl.17:30

Kort fyrir þau ykkar sem ætlið utanvegar 7.maí:

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Utanvegaæfing / Aukaæfing 7.maí kl.17:30

Styrktarhlaup Líffæraþega vegna heimsleika í Argentínu 2014

Fréttatilkynning

Styrktarhlaup Líffæraþega þriðjudaginn 20. maí 2014

Árið 1978 var í fyrsta sinn haldið íþróttamót líffæraþega í Portsmout á Englandi og kepptu þar líffæraþegar frá Bretlandi, Frakklandi, Grikklandi og Bandaríkjunum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og inniheldur Heimsleikasamband Líffæraþega, World Transplant Games Federation (WTGF), nú um 70 þátttökulönd. Síðast þegar leikarnir fóru fram, sem var árið 2013 í Durban í Suður Afríku, tóku fulltrúar 50 þjóðlanda þátt en rétt til þátttöku hafa líffæraþegar og fólk sem er í blóðskilun. Á leikunum í Durban voru keppendur á aldrinum 4 til 80 ára.

Síðustu leikar voru einnig þeir leikar sem Íslendingar tóku fyrst þátt í og voru það þau Kjartan Birgisson, fyrirliði, Björn Magnússon og Laufey Rut Ármannsdóttir sem kepptu í hlaupum, golfi og badminton. Laufey Rut gerði sér lítið fyrir og vann til bronsverðlauna í sínum flokki í 5km götuhlaupi. Þau þrjú eru úr hópi fjölda íslenskra líffæraþega, einstaklinga sem fengu annað tækifæri þegar þeim hlotnaðist líffæri frá öðrum einstaklingi og þar með möguleiki til áframhaldandi lífs og lífsgæða. Það er vert að hugsa til þess hversu heppnir þeir eru sem aldrei þurfa að leiða hugann að þeim aðstæðum sem skapast þegar líffæri gefur sig í líkama einstaklings og um líf og dauða er að tefla. Einnig, að það eitt að hreyfa sig og stunda dagleg störf finnst mörgum mjög eðlilegt og jafnvel sjálfsagt. Við sem erum á fullu í hreyfingu; hjólum daglega til vinnu, hlaupum reglubundið með félögunum, mætum í líkamsrækt eða göngum allan ársins hring okkur til heilsubótar leiðum of sjaldan hugann að því hversu heppin við erum og að þetta er ekki allt saman alveg sjálfsagður hlutur.

Í maí 2013 fór í fyrsta sinn fram á Íslandi götuhlaup til styrktar keppendum sem hugðust taka þátt í Heimsleikum líffæraþega sem fram fór í Durban í Suður Afríku síðar um sumarið. Forsprakkinn var Kjartan Birgisson hjá Hjartaheill og fékk hann til liðs við sig fjölda vina og sjálfboðaliða sem létu viðburðinn verða að veruleika og meira en það, þar sem hlaupið heppnaðist það vel að það var valið „Besta götuhlaupið 2013“ samkvæmt einkunnargjöf fyrir götuhlaup á www.hlaup.is

Í ár verður leikurinn endurtekinn í samvinnu við Heilsutorg.is og fer hlaupið fram þann 20. maí í Fossvogsdalnum en hlaupnar verða tvær veglengdir, 5 og 10 km sem eru löglega mældar.

Allur ágóði hlaupsins rennur til styrktar ferðinni til Argentínu þar sem næstu leikar fara fram, nánar tiltekið í Mar Del Planta 23. – 30. ágúst 2015. Nokkrir íslenskir líffæraþegar stefna á að ferðast til Argentínu og taka þátt í þessum stóra viðburði. Sjá má upplýsingar um viðburðinn á http://www.wtgf.org en þar má sjá hversu stór og metnaðarfullur viðburðurinn er

Kynning fer fram á www.hjartaheill.is og heilsutorg.is en skráning er hafin á http://heilsutorg.karfa.is/products/styrktarhlaup-argentinu-heimsleikafara

Allir sem skrá sig í hlaupið fá 15% afslátt af skóm í vefverslun Heilsutorgs !

Styrktarhlaupinu er fyrst og fremst ætlað að vekja athygli á viðburðinum í Argentínu og því að Íslendingar eru meðal þátttakenda en einnig að safna fé til handa ferðalöngunum.

Mætum öll í Víkina þann 20. maí, hreyfum okkur saman, vinnum kannski til einhverra verðlauna og styðjum við gott málefni.

Fyrir hönd framkvæmdaaðila,

Kjartan Birgisson, ábyrgðarmaður kjartan@hjartaheill.is
Fríða Rún Þórðardóttir, hlaupstjóri frida@heilsutorg.is

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Styrktarhlaup Líffæraþega vegna heimsleika í Argentínu 2014

! ATH AÐ ÆFINGIN ER KL.10:00 Í FYRRAMÁLIÐ 1.MAÍ FRÁ KAPLAKRIKA !

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við ! ATH AÐ ÆFINGIN ER KL.10:00 Í FYRRAMÁLIÐ 1.MAÍ FRÁ KAPLAKRIKA !