Nú á haustmánuðum, þegar uppbyggingartímabilið fer í hönd hjá okkur eftir sumarið, er ekki úr vegi að bæta styrktaræfingum við prógramið – styrkja undirstöðurnar.
Við þurfum nú ekki að leita langt yfir skammt því í næsta húsi við Kaplakrika er Elín.is. Þar rekur félagi okkar, Elín Sigurðardóttir, hug og heilsuræktarstöð. Nú í lok október byrja ný 8 vikna TRX/Rope Yoga námskeið, skráning er hafin. Síðasta vetur skelltu nokkrir félagar sér á námskeið hjá henni og létu vel af.
Hress þar varla að kynna fyrir félögum hlaupahópsins. Fjölmargir félagar mæta þangað reglulega til að fá útrás og stunda þar líkamsrækt. Félagi okkar Egill Ingi starfar þar sem einkaþjálfari, eins kennir Ebba Særún, félagi okkar, m0rgunhressum spinning.
Silja Úlfars er okkur að góðu kunn. Hún er reglulega með ýmis námskeið á boðstólnum, eins býður hún upp á fjarþjálfun sem hentar örugglega einhverjum.
Á Melabrautinni er CrossFit Hafnarfirði til húsa.
Eins er nú lítið mál að gera styrktaræfingarnar á stofugólfinu heima hjá sér. Á YouTube má finna fínustu æfingar styrktaræfingar fyrir hlaupara.