VIKA 42

Næstkomandi laugardag fer fram HAUSTþon Félags Maraþonhlaupara.  Ræst er í Elliðarárdalnum og hlaupið út á Ægissíðu.  Nánari upplýsingar er að finna hér.  Það munu án efa einhverjir félagar í Hlaupahópi FH taka þátt.

Árshátíðin fer fram föstudaginn 26. október.  Það stefnir í taumlausa gleði og fjör og því er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og tryggja sér miða í tíma.  Eftir 20. október hækkar verðið!

Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á heimasíðunni okkar.  Ný undirsíða með uppskriftum hefur verið sett í gang.  Við stefnum á að safna þar uppskriftum af hollum, en umfram allt góðum réttum.  Anna Eðavalds býður upp á íslenskt lamb í indverslum felubúningi sem hún galdraði fram þegar Kölnarfarar hittust nú fyrir skemmstu til að rifja upp frábæra ferð.

Síðuskrifari biður fólk um að senda sér uppskriftir að hollum og góðum réttum netfangið er hbirnir(a)gmail.com – til dæmis væri fengur í að fá uppskrift að “síðustu kvöldmáltíð” fyrir maraþon.  Morgunverð meistarans á keppnisdag!  Mánudagsmaturinn, hádegissnarl, létt á miðvikudagskvöldi.  Orukubitar.  Allar hugmyndir og uppskriftir eru vel þegnar.

Æfingaáætlun vikunnar er hér.

Hittumst hress á þriðjudag – KOMASO

ps. munum eftir endurskinsmerkjunum

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.