Félagar hlaupahóps FH hafa gert víðreist um allan heim síðustu vikur. Þórdís, Carola, Ingólfur, Guðni, Finnur og Haraldur tóku þátt í Berlínarmaraþoninu 30. september sl. –hér má sjá tíma Íslendinga í því hlaupi. Um síðustu helgi fór fram Chicago maraþonið og tóku þau Friðleifur, Pétur, Fía og Ólafía þátt í því hlaupi. Tímana má sjá hér.
Við óskup félögum okkar innilega til hamingju með árangurinn.
Powerade vetrarhlaupaserían hefst nk. fimmtudag. Þó nokkrir félagar hafa ákveðið að taka þátt og væntanlega bætist við þann fjölda. Hér er hægt að lesa sér til um seríuna.
Æfingaáætlunin er komin á sinn stað.
KOMASO.