VIKA 23

Það var alveg súper veður um helgina og félagar voru á hlaupum báða dagana.  Svona á þetta að vera 🙂

Í vikunni munu nýliðarnir hlaupa sitt fyrsta 5km. samfellda hlaup og að sjálfsögðu ætlum við öll að hlaupa með þeim.  Við erum virkilega stolt af þessum flotta hópi. Eftir hlaupið verður boðið upp á hressingu á brautinni.  Við hvetjum að alla félaga til að mæta!

Það styttist í Miðnæturhlaup Suzuki það fer fram 21. júní.  Við stefnum á að fjölmenna í Laugardalinn og hafa það skemmtilegt.  Skráning er hafin.

Hér er æfingaáætlun vikunnar.

KOMASO

Líkar þér þessi grein? Miðlaðu henni:
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.